Morgunblaðið - 04.03.2011, Síða 38

Morgunblaðið - 04.03.2011, Síða 38
38 | MORGUNBLAÐIÐ M ér finnst gaman að öllu föndri og fyrir nokkr- um árum byrjaði ég svo að útbúa ferming- armöppurnar fallegu. Þær gera fermingarbörnunum kleift að varðveita minningar á einum stað, sem er mikils virði,“ segir Lára Björnsdóttir á Fáskrúðsfirði. Hún sinnir ýmiss konar handverki sem hún selur undir merkinu Föndur fjósakonunnar. Sígildar hefðir Fermingarbækurnar eru gorma- möppur sem eru klæddar inn í snotran pappír eða annað efni eftir atvikum. Þessar bækur eru hugs- aðar sem gestabók til að varðveita fermingarkort, skeyti og myndir. „Naumhyggjan sem svo er nefnd er vissulega alltaf meira áberandi. Fermingunni fylgja samt alltaf sí- gildar hefðir og að eiga þennan dag vel skrásettan, hvort heldur er í myndum eða minningum er dýr- mætt,“ segir Lára sem er hús- gagnasmiður að mennt. Hún hefur í gegnum árin verið að dunda sér við ýmislegt heimilisföndur og fyrst fór boltinn að rúlla árið 2007 þegar móð- ir hennar, Elín Kröyer, varð sjötug. Útkoman er falleg „Ég hafði samband við allan systkinahópinn og barnabörnin og bað þau um að leggja eitthvað skemmtilegt í púkk; myndir, texta eða eitthvað annað slíkt sem tengdi þau við ömmu sína. Þegar allt var komið raðaði ég þessu inn í möppu svo úr varð falleg minningabók. Fermingarbækurnar eru í svipuðum stíl; en þær hef ég látið binda inn hjá Hérðasprenti á Egilsstöðum en lími utan um þær og geng frá með öðru móti svo útkoman verður falleg,“ segir Lára og bætir við að sér þykir minningabækur nokkuð sem til- heyra verði öllum merkisdögum mannsævinnar; svo sem skírn, gift- ingu og svo fermingu. Þá hefur hún einnig fengist við að útbúa falleg fermingarkerti sem ofin eru fallegu perlubandi og með glerkrossi sem Verkstæði Kötu útbýr fyrir hana og vekja kertin oft eftirtekt. sbs@mbl.is Mappa fyrir myndir og minningar Fjósakonan föndrar austur á Fáskrúðsfirði. Allar minningar dagsins í eina fallega möppu. Kerti Lífið og ljósið Bók Allar minningar dagsins fara hér í eina bók.Kort Fermingarkortin sem Lára útbýr eru til mörgum útgáfum og í rauninni hvert öðru ólíkara. Listakonan Lára Björnsdóttir föndrar austur á Fáskrúðsfirði ’ Fermingunni fylgja samt alltaf sígildar hefðir og að eiga þennan dag vel skrásettan, hvort heldur er í myndum eða minningum er dýrmætt,“ FERMINGARDAGURINN MINN Gestabók - Myndir - Skeyti V/REYKJALUND, MOSFELLSBÆ, SÍMI 5628500, WWW.MULALUNDUR.IS FÆST Í ÖLLUM HELSTU BÓKAVERSLUNUM LANDSINS Gesta bók, mynd a- og skeyta safn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.