Morgunblaðið - 04.03.2011, Síða 42
42 | MORGUNBLAÐIÐ
S
terkasta minningin er
hvað mér fannst ég stinga
í stúf þegar hópurinn
gekk fram kirkjugólfið.
Ég var frekar lágur í loft-
inu á þessum árum og rosalega lítill
við hliðina á hinum fermingarbörn-
unum,“ segir ÓIafur Þór Jóelsson,
þáttastjórnandi Game Tíví.
Ólafur man líka vel eftir aðalferm-
ingargjöfinni. „Þetta var tvöfalt kas-
ettutæki og hægt að taka upp á því á
tvöföldum hraða. Þetta var mjög há-
þróuð og framúrstefnuleg græja og
mér fannst ég hafa himin höndum
tekið að hafa fengið svona svakalega
gjöf,“ segir Ólafur sem fermdist um
miðjan 9. áratuginn.
„Svo er mér líka minnisstæð
stemningin í kringum allan daginn,
að hitta allt þetta fólk, fá sinn svefn-
poka og átján orðabækur. Þegar ég
lít til baka var þetta ósköp ánægju-
legur dagur.“ ÓIafur segist vera af
trúuðu fólki kominn þó kirkjusóknin
sé misgóð. Hann tók ferminguna
mjög alvarlega og vandaði sig við
valið á biblíutilvitnun til að lesa við
sjálfa athöfnina.
„Ég hreinlega lagðist yfir þetta
verkefni. Ég man reyndar ekki í dag
hver tilvitnunin var, en ég man að
hún skipti mig mjög miklu máli þá,“
útskýrir hann og hlær.
Klæddur í anda tímabilsins
Það verður að segjast eins og er
að Ólafur fermdist á sérlega óheppi-
legum tíma í tískusögunni.
„Ég tók ekki jakkafötin á þetta,
heldur var ég í gullfallegum gráum
buxum og silkiskyrtu sem glansaði
svo mikið að fólkið í kringum mig
þurfti helst að setja upp sólgler-
augu. Svo var ég með gult lakkr-
ísbindi og í gulri jakkapeysu yfir.
Maður yrði örugglega tekinn af lífi
ef maður myndi láta sjá sig svona úti
á götu í dag, en þetta þótti gríð-
arlega flott á þessum árum og eng-
inn gerði athugsemdir við múnder-
inguna.“
Ólafur segir mikið veislufólk í
ættinni enda var fermingarveislan
með stærsta móti. „Það hefur aug-
ljóslega verið mikið góðæri þarna í
kringum 1985 því við buðum um 100
manns í veisluna og héldum hana í
Oddfellowhúsinu niðri við Reykja-
víkurtjörn. Bornar voru fram allar
gerðir af kökum og mat sem hugsast
getur enda fjölskyldan hálfgert
landslið í bakstri.“ Fermingardreng-
urinn Ólafur uppskar aldeilis mikið
af gjöfum, en auk þess að fá snældu-
tækið fékk hann nægan ferming-
arpening til að kaupa sína fyrstu
PC-tölvu. „Ég var þegar kominn á
fullt í tölvuleikjunum í Commodore
64-leikjatölvunni, en hafði ekki átt
borðtölvu áður. Hún var með floppy
drifi og grænum skjá og var þar
komin tækni sem seint yrði toppuð,“
segir Ólafur en hann hafði vonast til
að tölvukaupin yrðu upphafið að
glæstum forritunarferli. „En svo
kom í ljós að ég hef rökfræðigáfur á
við hagamús þannig að ekkert varð
úr þeim draumum.“
ai@mbl.is
Ólafur „Ég var þegar kominn á fullt í tölvuleikjunum í Commodore 64-leikjatölvunni.“
Fermingarföt-
in þóttu gríð-
arlega flott
Ólafur Þór Jóelsson fékk forláta tvöfalt kasettutæki í
fermingargjöf. Enginn gerði athugasemdir við gult
lakkrísbindið og jakkapeysuna í stíl.
’
Ég var í gullfallegum gráum buxum og silki-
skyrtu sem glansaði svo mikið að fólkið í
kringum mig þurfti helst að setja upp sólgleraugu.
Svo var ég með gult lakkrísbindi og í gulri jakka-
peysu yfir. Maður yrði örugglega tekinn af lífi ef
maður myndi láta sjá sig svona úti á götu í dag.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
53
75
9
03
/1
1
Gjafabréf gildir í tvö ár frá útgáfudegi.
BROT AF HEIMINUM
Í FERMINGARGJÖF
PANTAÐU FERMINGARGJÖFINA
Á WWW.ICELANDAIR.IS
GJAFABRÉF ICELANDAIR GILDIR
SEM GREIÐSLA UPP Í FUGFAR TIL ALLRA
ÁFANGASTAÐA Í EVRÓPU OG NORÐUR-AMERÍKU
ÞÚ VELUR UPPHÆÐINA
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
Vinsamlegast athugið: Einstaka sinnum kemur fyrir
að viðskiptavinir Icelandair fljúgi með vél sem ekki
er búið að setja í ný sæti og nýtt afþreyingarkerfi.