Morgunblaðið - 04.03.2011, Page 54
Góða ferð - handbók um útivist er nýútkomin handbók
sem inniheldur afar fjölbreyttan fróðleik fyrir alla þá sem
hafa hug á að stunda útivist, hvort sem um er að ræða
byrjendur eða lengra komna.
Hvað gamall temur, ungur nemur segir máltækið. Því getur verið gaman fyrir ungmenni þessa lands að líta
um öxl og fræðast um eftirminnileg ummæli, yfirlýsingar og tilsvör frá fyrri tímum. Tilvitnanabækur eru til
þess tilvaldar, og má nefna sem dæmi Tilvitnanabókina og Kjarna málsins sem báðar komu út í fyrra.
Bækur Halldórs Laxness ættu að rata í eign hvers ferming-
arbarns. Sjálfstætt fólk er meðal fjölmargrra öndvegisrita
höfundarins.
Um fermingu fara
margar stúlkur að
stíga sín fyrstu skref
á sviði andlitsförð-
unar. Þá er gott að
hafa handbók við
höndina sem hefur
það að leiðarljósi að
kenna stúlkum ým-
islegt um umhirðu
hárs og húðar sem
og fyrstu skrefin í
náttúrlegri og hóf-
stilltri förðun. Til-
valin til þess er nýút-
komin handbók frá
snyrtivörurisanum
Bobbi Brown og ber
hún heitið Beauty
Rules. Bókin fæst á
ýmsum sölustöðum
Bobbi Brown snyrti-
vara hér á landi.
Íslenzkir þjóðhættir eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili er
eitt af öndvegisritum íslenskrar bókmenntasögu. Bókin
kom fyrst út árið 1934 og var svo nýverið endurútgefin. Til-
valin gjöf fyrir þau sem vilja fræðast um lifnaðarhætti
þeirra sem landið byggðu á undan okkur.
Orðabækur gagnast flestum á lífsleiðinni og
eru nauðsynleg uppflettirit við hverskyns
nám og lestur. Góð gjöf til framtíðar.
Bækur eru góðar gjafir, um það
geta flestir verið sammála. Bækur eru
líka trúlega með eigulegustu gjöf-
unum og margir halda upp á ferming-
arbækur sínar allt fram á síðasta dag.
Fermingarbörn eru eins ólík og þau
eru mörg og því gleðilegt að til er
fjöldinn allur af bókum um margvísleg
málefni.
birta@mbl.is
Bækur
til fram-
tíðar
54 | MORGUNBLAÐIÐ
Laugavegi 86 • sími: 511-2004
Glæsilegt
fermingartilboð