Morgunblaðið - 04.03.2011, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 04.03.2011, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ | 57 S vilkona mín rakst á fötin inni í skáp hjá sér fyrir nokkru og spurði Bjarka hvort hann hefði hug á að máta þau. Hann mátaði og fílaði sig svona svakalega vel í föt- unum að það varð varla aftur snúið. Hann er reyndar búinn að fara hring í búðunum og máta þessi hefðbundnu fermingarföt, en hann ákvað í kjölfar- ið að klæðast fötum afa síns,“ segir Margrét Ósk Guðjónsdóttir, en sonur hennar, Bjarki Rúnar Sigurðsson ætlar að fermast í forláta smóking sem afi hans lét sauma á sig fyrir rúmum sjötíu árum. „Afi hans var fæddur árið 1921 og hét Hjörleifur Gunnarsson. Hann úskrifaðist úr Verslunarskólanum ár- ið 1940, þá 19 ára gamall, og lét þá sérsauma á sig þessi rosalega fallegu smókingföt,“ segir Margrét og bætir við að nýja skyrtu hafi Bjarki þó þurft að kaupa fyrir fermingardag- inn, upprunalega skyrtan með smók- ingnum sé ekki til. Fleiri hafa nýtt fötin Hjörleifur lést fyrir nokkrum árum og Margréti er ekki kunnugt hvar fötin voru saumuð á sínum tíma. „Það er í raun algjör tilviljun að þessi föt séu enn til, segir Margrét. Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvort fleiri fjölskyldumeðlimir hafi nýtt sér fötin góðu í gegnum tíðina og það er svo segir Margrét. „Frændi sonar míns fermdist í þeim árið 1997 en við vitum ekki til þess að fleiri hafi nýtt sér þau.“ Eru sem sérsniðin Bjarki fermist þann 9. apríl næst- komandi í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og undirbúningurinn er þegar hafinn. „Hann heldur veislu með frænda sínum og það verður rautt þema enda er íþróttafélag Hauka þeim frændum afar hugleikið,“ segir Margrét. Umræddur frændi er einnig barnabarn Hjörleifs en ekki kom þó til baráttu milli fermingardrengjanna um fötin þar sem þau eru sem klæð- skerasniðin á Bjarka. „Flestir jafnaldrarnir búnir að finna sér fermingarföt en þau koma öll úr verslunum,“ segir ferming- arbarnið Bjarki. „Mér fannst þessi lausn bara miklu flottari og þægilegri. Þau eru líka eins og sérsniðin á mig.“ birta@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Fínn í smóking Bjarki Rúnar Sigurðsson og Margrét móðir hans. Í sjötugum smóking frá afa Á meðan jafnaldrarnir þræða tískuverslanir í leit að fermingarfötum getur Bjarki Rúnar Sigurðsson hugað að öðru. Hann ætlar nefnilega að fermast í smóking sem afi hans klæddist árið 1940. ’ Hann heldur veislu með frænda sínum og það verður rautt þema enda er íþróttafélag Hauka þeim frændum afar hugleikið. Fermingargjafir þurfa ekki að kosta nein ósköp til að slá í gegn og endast alla ævi. Vandaður svissneskur vasahnífur er áhald sem allir ættu að eiga og ef fermingarbarnið á ekki einn slíkan fyrir er alveg ómissandi að gefa þetta þarfaþing. Þá má stóla á að hnífurinn verður tekinn með í útilegur og æv- intýri, stungið ofan í ferðatöskuna fyrir ferðalög til útlanda eða pakkað með öllum hin- um nauðþurftunum á leið í nám erlendis. Hnífurinn góði er kannski ekki alltaf uppi, en hann er alltaf hafður á vísum stað enda aldrei að vita hvenær þarf sem snöggvast að opna dós, festa ró, draga tappa úr flösku eða plokka flís úr tá. ai@mbl.is Áhugaverðar fermingargjafir Þarfaþing sem nýtist lengi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.