Saga - 2005, Page 156
Saga XLIII:2 (2005), bls. 156–160.
S VA N U R K R I S T J Á N S S O N
Opinber saga hins opinbera
Ólafur Rastrick og Sumarliði A. Ísleifsson, Stjórnarráð Íslands
1964–2004 II. Saga ríkisstjórna og helstu framkvæmdir til 1983.
Verkið skiptist í tvennt. Höfundur fyrri hluta, sem nefnist „Við-
reisnarárin“, er Ólafur Rastrick og höfundur seinni hluta Sumarliði
A. Ísleifsson sem einnig er ritstjóri heildarverksins. Tímabilin tvö
eru jafnlöng, tólf ár, og umfjöllunin er ríflega 200 blaðsíðna löng um
hvort tímabil. Tímabilaskiptingin 1959–1971 og 1971–1983 er mjög
eðlileg. Annars vegar var samstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
flokks sem mynduð var 1959 í kjölfar skipbrots vinstri stjórnar árið
áður og skammlífrar minnihlutastjórnar Alþýðuflokks sem naut
hlutleysis Sjálfstæðisflokks. Viðreisnin boðaði tímamót í íslenskum
stjórnmálum. Fyrrum höfuðandstæðingar í stjórnmálum landsins,
sem höfðu tekist hatrammlega á nálega áratugum saman, settust
við samningaborð og komu sér saman um ríkisstjórn. Viðreisnar-
stjórnin varð langlífust allra ríkisstjórna og, eins og Ólafur Rastrick
bendir réttilega á (II, bls. 16–17), eru Alþingiskosningar árið 1963
einu þingkosningar á 20. öld þar sem mögulegir meirihlutaflokkar
gengu bundnir til kosninga. Stjórnarflokkarnir lýstu yfir fyrir kosn-
ingar að þeir myndu halda ríkisstjórnarsamstarfinu áfram fengju
þeir tilskilinn meirihluta.
Í þessum hluta ritverksins er ekki að finna stafkrók um forseta
Íslands, Ásgeir Ásgeirsson, hvað þá það lykilhlutverk sem hann
gegndi við að leiða saman forystumenn Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks, en hann sést á tveimur ljósmyndum (II, bls. 13 og
17). Slík efnistök eru lítt fallin til að auka skilning á íslenskri stjórn-
málasögu, ekki síst vegna þess að Viðreisnarstjórnin byggðist í
grundvallaratriðum á hugmyndum Ásgeirs um gjörbreytta kjör-
dæmaskipan og mikilvægi tvíhliða samstarfs við Bandaríkin um
leið og ný ríkisstjórn hvarf með öllu frá fyrri samþykktum Alþing-
is og ríkisstjórnar um brottför bandarísks herliðs frá Íslandi.
Samræmi er í efnistökum beggja höfunda ritverksins. Í báðum
hlutum er fyrst kafli sem nefnist „Stjórnmál og stjórnmálaþróun“. Í
seinni hlutanum er þessi kafli ítarlegri (27 bls.) en í hinum fyrri (17
Saga haust 2005-NOTA 23.11.2005 20:10 Page 156