Ný saga - 01.01.1987, Blaðsíða 18

Ný saga - 01.01.1987, Blaðsíða 18
GLOUCESTERMENN í LÚÐULEIT réðu Eskimóa til sín og sumarið 1884 sótti danskt herskip Eskimóa um borð í tvær Gloucester skonnortur. Samkvæmt grein Collins var aðalveiðisvæði Glouces- termanna sumarið 1884 frá Dýrafirði að Skagagrunni. Þó geta skipstjórarnir þess í dag- bókum sínum að hafa fiskað út af Patreksfirði og einn minnist á að hafa komið í höfn í Grímsey og stundað veiðar þar í kring. Bandaríkjamenn- irnir hafa því kannað miðin Fersklúöu skipað upp í Gloucester um 1890. vítt og breitt úti fyrir Vest- fjörðum og Norðurlandi vestanverðu. Skonnorturnar þrjár veiddu allar vel. Alice M. Will- iams fékk 162.000 pund af saltlúðuflökum, sem seldust á $8.317,30 og komu $268,90 í hlut. Concord seldi 152.425 pund af saltlúðuflökum, á $7.884,87, en ekki er getið um hlut. David A Story fékk $7.600,00 fyrir 139.000 pund af flökum og fengu skipverjar $220 í hlut. Af tölum úr Glou- cester blöðunum frá árunum 1884-1895 má ráða að þessi afli hafi verið í meðallagi fyr- ir skúturnar allan þann tíma sem þær stunduðu veiðar við ísland og þá að hluturinn hafi verið á bilinu tvö til þrjú- hundruð dollarar. Collins get- ur þess í grein sinni til saman- burðar að veiðin við Græn- land þetta sumar hafi verið á bilinu 73-83.000 pund af salt- lúðuflökum, sem var helm- ingi minna en veiddist við ís- land.13 Var því ekki að furða þótt Gloucestermenn færðu sig af Grænlandsmiðum á miðin við ísland eftir 1884. Til þess að tryggja sig í sessi komu þeir sér síðan upp ræðismanni á Dýrafirði, Niels Christian Gram, kaupmanni þar, til að gæta enn hagsmuna sinna, eins og síðar verður vikið að. Collins verður tíð- rætt um hversu mjög það myndi auðvelda veiðarnar, ef dönsk yfirvöld féllust á að leyfa lúðuveiðimönnum að landa salti, tunnum og öðrum útbúnaði til skamms tíma — gegn tryggingu. Slíkt myndi gera veiðarnar ,,mun ánægju- legri en ella". Collins tekur þó fram að öll samskipti við ís- lenska embættismenn hafi verið hin ákjósanlegustu og þeir hafi reynt að gera banda- rísku sjómönnunum lífiðeins auðvelt og þeim var unnt innan ramma laganna. í heild er tónninn í grein Collins jákvæður gagnvart lúðuveiðum landa sinna við ísland. Hann telur tilraunina sumarið 1884 hafa gefið góða raun og sé þess að vænta að enn fleiri skip frá Gloucester muni leita til íslands sumarið 1885. ENN TIL ÍSLANDS Vorið 1885 lögðu sex Glou- cester skonnortur af stað á ís- landsmið. Það voru skút- urnar þrjár, sem farið höfðu sumarið áður og þrjár til sem vildu freista gæfunnar á þess- um nýju miðum. Skonnortan Concord komst þó ekki á leiðarenda og Alice M. Will- iams fórst um haustið rétt í þann mund sem halda átti heirn aftur.9 Þó segir í frétt í skýrslu bandarísku fiskveiði- nefndarinnar árið 1886 að veiðarnar þetta sumar hafi gengið vel, þrátt fyrir þessi óhöpp og ís á miðunum. Frétt- inni lýkur svo: „Það virðist örugglega mega spá því að þetta nýja athafnasvæði, sem fiskveiðinefndin vakti athygli þeirra Gloucestermanna á, muni í framtíðinni eins og tvö sl. ár veita viðunandi afrakst- ur."10 Skýrsla fiskveiði- nefndarinnar styðst aðallega við frásögn Charles B. John- sons, skipstjóra á Marguerite frá Gloucester og segir hann að heildaraflinn hafi verið 582.000 pund af flökum, svo meðalafli hefur verið um 116.000 pund, sem var heldur lakara en árið áður. Af frásögn Johnsons má sjá hvaða gjöld skonnorturnar þurftu að greiða. Ekkert veiðileyfi var nauðsynlegt og engin opinber gjöld voru greidd utan vita- og hafnar- gjalds. Vitagjaldið miðaðist við stærð skipsins og þurfti Johnson að greiða 30 kr. fyrir Marguerite sem var 103 tonn. Hafnargjaldið var 5 kr. og greiddist í fyrstu þrjú skiptin sem skip kom til hafnar, en féll síðan niður. Eins og áður þurfti að semja við einkaaðila um geymslu á salti og öðru því sem setja þurfti á land. 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.