Ný saga - 01.01.1987, Blaðsíða 47
Á HEIMDALLI SUMARIÐ 1898 — VARÐGÆSLA OG VEISLUHALD
á þessa ferð sem eins konar
sumarleyfi, því að skipið
hafði átta daga viðdvöl á Poll-
inum og var ekki haldið til
neinna eftirlitsferða þaðan,
þó að brezkir togarar væru þá
farnir að venja komur sínar á
fiskimið Norðlendinga. í stað
togaraveiða stunduðu yfir-
menn skipsins skemmtiferðir
og fóru m.a. í tveggja daga
reiðtúr að Goðafossi. Eftir
skemmtilega dvöl á Akureyri
héldu Heimdallsmenn til ísa-
fjarðar og tóku þar enn kol.
Þaðan var svo haldið á fund
skemmtilega fólksins á hval-
veiðistöðvunum og m.a. siglt
með fjölskyldu Ellefsens frá
Sólbakka í Önundarfirði að
Framnesi í Dýrafirði til þess
að koma Bergfjölskyldunni á
óvart! Útkoman í júlí var sú
að Heimdallur var aðeins 10
sólarhringa á sjó en 21 í
höfnum.
I ágúst hélt gleðin áfram,
því að varðskipsmönnum var
boðið að taka þátt í þjóðhátíð
Reykvíkinga, sem fram fór á
Landakotshæð og víðar 2.
ágúst. S.V. Hansen tók þátt í
undirbúningi að róðrar-
Á Akureyri 14. júll.
- Jakob Havsteen
konsúll, kona
hans og dóttir I
hópi danskra varð-
skipsmanna.
Dóttirin er fyrir
miðju fremst, frú-
in aðeins aftar til
hægri, en konsúll-
inn er I öftustu
röð og ber kúlu-
hatt. - í fremstu
röð, lengst til
vinstri, er Corfit-
zen, skipstjóri á
Vestu. Á myndinni
eru einnig Jens-
hjónin og Tvede
málari.
Beitiskipið Heimdallur á Faxaflóa sumarið 1898.
keppni hátíðarinnar og var
dómari í henni ásamt Mark-
úsi Bjarnasyni, skólastjóra
Stýrimannaskólans. Síðasta
eftirlitsferðin út á Faxaflóa
var farin 3. ágúst og fimm
dögum seinna hélt skipið í síð-
asta sinn frá Reykjavík þetta
sumar. Nú var farið til eftir-
litsstarfa við Austfirði með
aðalbækistöð á Seyðisfirði en
kolatöku á Eskifirði. Fór skip-
ið allt norður að Langanesi og
hafði þá um sumarið verið við
alla strandlengju íslands að
undanskyldu svæðinu frá
Eyjafirði austur að Langa-
nesi. Úthaldið í ágúst skiptist
þannig, að skipið var 10 sólar-
hringa á sjó og 17 í höfnum.
Þegar rætt er um árangur
gæzlustarfa varðskipa, verð-
ur jafnan fyrst fyrir að fjalla
um, hversu margir togarar
eða önnur fiskiskip voru
tekin við ólöglegar veiðar,
færð til hafnar og sektuð.
Sumarið 1898 tók varðskipið
Heimdallur sex brezka togara
og tvö línuveiðiskip í íslenzkri
landhelgi og færði til hafnar.
Þar voru skipstjórar leiddir
fyrir innlenda dómara og
dæmdir í sektir, sem námu
frá 5 og upp í 100 sterlings-
pund auk þess sem botnvörp-
ur togaranna voru gerðar
upptækar.
Mestan feng fékk Heimdall-
ur á Faxaflóa í maí, en þar
voru teknir fjórir togarar á
tveimur sólarhringum. Einn
þeirra var Hulltogarinn
Cuckoo, sem tekinn var við
veiðar út af Keflavík 23. maí.
Skipstjóri hans var sænskur
og varð alveg óður („gal í hov-
edet"), þegar hann heyrði
dóminn, sem hljóðaði upp á
100 punda sekt. Hinir tveir
togararnir voru teknir í
ágúst, annar við Vestmanna-
eyjar og hinn á Héraðsflóa. —
Annað línuveiðiskipið var tek-
ið við Dyrhólaey á fyrstu dög-
45