Ný saga - 01.01.1987, Blaðsíða 22

Ný saga - 01.01.1987, Blaðsíða 22
GLOUCESTERMENN I LÚÐULEIT Gloucestermennirnir hafi gengið alllangt í leit sinni að tómstundagamni og í afriti af bréfi dagsettu 18. ágúst 1891, sem hann hefur sent Sjávar- útvegsráðuneytinu í Washington og tollyfirvöld- um í Gloucester segir hann m.a.: Vegna aukinna siglinga bandarískra skipa til ís- lands til lúðuveiða hefur, einkum í seinni tíð, borið á slæmri hegðun og ósiðum meðal áhafnanna. Mér þætti því nauðsynlegt að komið væri á nánari regl- um um hegðun og hlýðni, sem skipverjum væru kynntar áður en þeir legðu af stað frá Gloucester; t.d. að menn verði að biðja skip- stjórann um landgöngu- leyfi og verði að snúa til skips á þeim tíma sem skip- stjórinn ákveður og að þeir hegði sér vel og karlmann- lega („manly") bæði um borð og í landi... Ástandið hér í sumar hef- ur verið þannig að ekki aðeins skipstjórarnir held- ur einnig íbúar þorpsins hafa verið í lífshættu vegna drukkinna bandarískra sjó- manna sem farið hafa í hóp- um um þorpið, reynt að brjóta upp glugga og hurðir að næturlagi, mölvað rúð- ur, grýtt hús og annað því- umlíkt.17 Gram er ekki einn um þessa skoðun sína, því svo virðist sem Þingeyri hafi haft á sér orð fyrir lauslæti og frá- sagnir af ágangi Bandaríkja- mannanna við íslendinga einskorðast ekki við frásögn hans. Frú Hlíf Matthíasdóttir, sem er fædd og uppalin í Dýrafirði, hefur sagt mér að móðir hennar hafi orðið fyrir áreitni Bandaríkjamannanna þegar hún var eitt sinn að sækja vatn og mun hún ekki hafa verið ein um þá reynslu.18 Af kirkjubókum má og ráða að stundum hafi kynni íslenskra stúlkna af hinum erlendu sjómönnum orðið ansi náin. Urðu um það blaðaskrif í Þjóðviljanum unga árið 1895. Upphaf þess máls var ferð dansks læknis, dr. Ehlers, til íslands sumarið 1894 til að kanna útbreiðslu holdsveiki hérlendis. Kom hann m.a. til Þingeyrar og eft- ir heimkomuna skrifaði hann grein í Ugeskrijt for Læge, þar sem hann segir frá óþrifnaði og ólifnaði á íslandi og nef nir Þingeyri sem dæmi um hið síðarnefnda. Var greinin þýdd á íslensku og birtist m.a. í Þjóðviljanum unga. 19 Upplýs- ingar sínar hafði Ehlers frá Sigurði Magnússyni, héraðs- lækni á Þingeyri, en Sigurður segir í ævisögu sinni að sér hafi aldrei dottið annað í hug en upplýsingarnar yrðu álitnar trúnaðarmál.20 Dýr- firðingar urðu, sem vonlegt var, ekki upp með sér af lýs- ingunni og skoruðu á lækninn að standa fyrir máli sínu. Hann gerði það og lýsti þar undrun sinni að Dýrfirðingar skyldu ekki snúa sér beint að því að reka af sér slyðruorðið frekar en ráðast gegn sér fyrir að segja almælta hluti.21 Því má kannski bæta við að grunnt var á því góða með Sig- urði og Dýrfirðingum, en engu að síður er augljóst að Þingeyri hefur haft á sér vafa- samt orð vegna hinna erlendu sjómanna. ÍSLENDINGAR í GLOUCESTER Það var augljóslega algengt að íslendingar væru í áhöfn lúðuskipanna. Hins vegar er aðeins á einum stað um það getið í bandarískum heimild- um, mér kunnum, að íslend- ingar hafi farið vestur um haf að vertíð lokinni. Það er í skrásetningarbréfi frá 1886. Þar segir að með skonnort- unni Landseer hafi komið frá ísafirði tvær stúlkur, Stina og Holmfrida Johnson. Með þeim í för sýnist hafa verið eitt lamb á fæti! Tíu árum seinna mátti lesa eftirfarandi frétt í Gloucesterblaðinu Fisherman: Einhver hressilegasti hóp- ur sem um getur og saman hefur komið í McClure kapellunni, voru íslend- ingar sem hittust þar að kvöldi þriðja janúar s.l. Þeir voru þar í boði prest- sins og frú Chalton. Kvöld- ið leið við ýmis konar ánægjulega skemmtun. Kór söng íslensk þjóðlög. Veitingar voru bornar fram og allir skemmtu sér vel. Gestirnir gáfu presti fallegan ruggustól.22 Athyglisverðast við þessa frá- sögn er að samkoman skyldi haldin í janúar. Það sýnir að íslendingar hafa haft vetur- setu í Gloucester og nágrenni. Ekki verður ráðið af frásögn- inni hvernig þessi hópur hef- ur verið saman settur, en þess eru þónokkur dæmi að ís- lendingar hafi sest að í Glouc- ester. Frú Hlíf Matthíasdóttir sagði mér af fjórum frænkum sínum frá Svalvogum í Dýra- firði, sem fóru vestur og sett- ust að í Gloucester og ná- grenni og er þeirra getið í Vesturfaraskrám.2i Þess má þó vænta að ýmsir hafi farið vestur án þess að fara eftir þessum „opinberu" leiðum, m.a. kannski þær „Stina og Holmfrida". Einnig gat Hlíf Sumarnæturnar vöktu áhuga Glou- cestermanna og þess er getið að hinn langi dagur auðveldi veiðarnar þar sem hægt sé að stunda þær jafnt á nóttu sem degi. „Ástandið hér í sumar hefur verið þannig að ekki aöeins skipstjór- arnir heldur einnig fbúar þorpsins hafa verið i Iffs- hættu vegna drukkinna banda- rlskra sjómanna sem farið hafa í hópum um þorpið, reynt að brjóta upp glugga og hurðir að nætur- lagi, mölvað rúður, grýtt hús og annaö þviumlíkt." 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.