Ný saga - 01.01.1987, Blaðsíða 50
Á HEIMDALLI SUMARIÐ 1898 — VARÐGÆSLA OG VEISLUHALD
Júlíus Havsteen amtmaður,
Jón Vídalín kaupmaður og
H.E. Tvede apótekari, sem
lézt raunar úr taugaveiki eftir
stutta legu um sumarið. —Á
ísafirði sóttu Heimdallsmenn
heim þá Hannes Hafstein
sýslumann og Ásgeir Ásgeirs-
son kaupmann hinn yngri.
Fór mjög vel á með varðskips-
mönnum og Hannesi, en
kvöldið hjá Ásgeiri er sagt
hafa verið svo leiðinlegt
(„kjedsommeligt"), að eini
ljósi punkturinn var sá, að
frúin bar fram skyr,—Á Akur-
eyri hittu Danir fyrir einn
sinn bezta gestgjafa, en það
var Jakob Havsteen kaup-
maður og konsúll, sem bæði
veitti vel og útvegaði hesta til
skemmtiferða. — Á Seyðis-
firði voru það þeir Ernst apó-
tekari og Otto Wathne kaup-
maður, sem héldu uppi risnu.
Jón Vídalín er í Alþingis-
rímunum sagður hafa kunnað
að dorga valdsmenn. Dagbók
S.V. Hansens frá sumrinu
1898 rennir stoðum undir
þessa fullyrðingu eins og sést
af því, hvernig Vídalín eyddi
deginum hinn 5. ágúst þetta
sumar. Hansen segir svo í ár-
bók sinni (lausleg þýðing
greinarhöfundar): „Fagurt
veður. Kl.1-4 um eftirmiðdag-
inn í landi með meistara og
fórum í reiðtúr með Jóni
Vídalín inn að Elliðaám.
Hann hafði lagt til ágæta
skeiðhesta („glimrende
Skeidere".) Meistari datt af
baki. Mættum Englendingi
einum, sem var við veiðar í
Elliðaánum. Um kvöldið stór
miðdagur hjá Sjeffanum.
Meðal gesta voru landshöfð-
ingi, amtmaður og Vídalín
með frúm".
Ekki verður annað sagt en
góður tónn sé í garð íslands
og íslendinga í dagbók S.V.
Hansens. Hann átti hér góða
daga og virðist hafa verið
ánægður með yfirmenn sína
og undirmenn á Heimdalli og
flesta gestgjafa. Hann hafði
samband við fjarskylda ætt-
ingja konu sinnar, en hún átti
ættir að rekja til Hans Hjalta-
líns kaupmanns á Stapa.
Verður að ætla, að S.V. Han-
sen hafi verið full alvara
þegar hann skrifar í dagbók
sína hinn 27. ágúst, að það
hafi verið með miklum trega,
sem hann missti Island úr
augsýn í síðasta sinn þetta
sumar.
Heimildir:
Dagbók Sigurd Valdimars
Hansens er í eigu sonar hans,
dr.Preben Hansen, en hann var
læknir í Kaupmannahöfn. Pét-
ur Sigurðsson, fyrrverandi for-
stjóri Landhelgisgæslunnar,
fékk hjá honum ljósrit af dag-
bókinni og lánaði greinahöf-
undi. P. Hansen hefur gefið
Þjóðminjasafni ljósmyndir
þær, sem birtar eru.— Frásögn
af viðskiptum Seltirninga og
brezkra togaramanna er sótt í
rit Jóns Þ. Þórs Breskir togarar
og íslandsmið 1898-1916, Rvík
1982. —Upplýsingar um Ch. G.
Middelboe eru úr Dansk Bio-
grafisk Leksikon, 9. bindi, Kmh.
1981. Því má svo bæta við, að
hann var flotamálaráðherra
Dana í ráðuneyti Sehesteds
1900-1901, síðasta ráðuneyti
hægri manna í Danmörku fyrir
kerfisbreytinguna 1901. Það
hafa því verið tvö ráðherraefni,
sem hittust um borð í Heim-
dalli að kvöldi 16. maí 1898, en
þar sátu þá þeir „sysselmand
Havsteen" og „kaptajn Middel-
boe" „til Musik,,,Nordlyset" og
The".
0
I
48