Ný saga - 01.01.1987, Blaðsíða 76

Ný saga - 01.01.1987, Blaðsíða 76
KONUR FYRIRGEFA KÖRLUM HÓR sækja um eða kom það aldrei til tals? Bændur borguðu margir umyrðalaust. Til dæmis fékk Jón Einarsson í Rangárvallasýslu fé að láni til að greiða fyrir fyrsta hór- dómsbrot, en treysti sér ekki til að greiða fyrir annað brot sitt, sem uppvíst varð um sumarið 1823. Björn Björns- son bóndi á Efranúpi í Mið- firði ætlaði að borga refja- laust fyrir annað hórdóms- brot sitt, þó hann ætti 4 ung börn og veika konu. í desem- ber 1821 brunnu hins vegar bæjarhúsin og þau hjónin sáu sér ekki annað fært en að sækja um eftirgjöf. Hana fengu þau reyndar ekki af því amtmaður mælti á móti og benti Kansellíi á að Björn teldist til betri bænda.15 Þær konur voru líka til sem neit- uðu að biðja fyrir manni sín- um, heldur létu hann borga: ,,Þareð minn egtamaður Hin- rik Guðmundsson ekki hefur beðið mig um að biðja um uppgjöf hórsektar sinnar, þá er það aldeilis frá að ég leggi þar til nokkur góð orð", lýsti HallvörÁrnadóttir í Mölshús- um yfir í október 1837.16 Eiginkona Hannesar á Litlu- Háeyri á Eyrabakka neitaði að biðja fyrir honum haustið 1854, fyrst hann lét ekki af ferðum sínum til barns- móðurinnar sem var í vist á nálægum bæ. Ekki vildi eigin- kona Ólafs Guðmundssonar á Indriðastöðum í Skorradal heldur fyrirgefa manni sínum annað hórdómsbrot hans haustið 1834 svo hann varð að sækja um undanþáguna einn.17 Þannig gátu konur haldið áfram að búa með manni þó hann tæki framhjá, án þess endilega að fyrirgefa honum breytnina. Hvort umsókn um eftirgjöf þótti vera enn frekari auðmýk- ing fyrir konur, ofaná fram- hjáhald bóndans, er hins vegar óvíst. Fullvíst er þó að það var fátækt sem fékk þær til að sækja um. Þetta fólk gat einfaldlega ekki borgað. Árið 1838 mæltist Guðný Eyjólfs- dóttir i Stíflisdal í Þingvalla- sveit til þess að Þorsteinn Einarsson fengi eftirgefnar sektir, því ella yrði hann ófær um að ala önn fyrir nýfæddu barni sínu og þeim hjónum.18 Fjórum árum áður fyrirgaf Þorbjörg Eyjólfsdóttir í Árnessýslu bónda sínum vegna fátæktar og margra barna, og Halldóra Jónsdóttir vildi halda áfram búskap ,,til að okkar fátæku börn ekki komi sveitinni til þyngsla".19 Þorbjörg Jónsdóttir gat þess 1823 að tíundarupphæð manns síns væri aðeins 5Vi hundrað, en „fólks og ómaga tala 7". Árið 1845 lét Guðrún Árnadóttir sér aftur á móti nægja fullyrðinguna: „Þareð við búum við lítil efni og veitir því þungt að betala allar skuldir".20 Einna nákvæmust og átakanlegust er umsókn Kristínar Loftsdóttur frá 8. mars 1848. Hún var þá um sextugt og maður hennar ára- tug yngri, en Guðrún barns- móðir hans og vinnukona þeirra hálfþrítug:21 Hérmeð dirfist ég í undir- gefni að biðja herra sýslu- mann minn að vera styrkj- andi og mælandi fram með því máli mínu við háyfir- valdið, og auðmúkri bón, að ektamaður minn Matthías Hannesson búandi á Hofi, sem brotið hefur nú með barneign í hódómi, mætti frí verða við lögsókn og sektir sem þaraf fljóta. Ég bið þessa af þeim orsökum að hann er svo fátækur að 74 Þetta fólk gat ein- faldlega ekki borgaö. Nokkrar konur báðu jafnvel yfir- völd um aö leyfa barnsmóður hús- bóndans að vera áfram á bænum svo búskapur leggðist ekki nið- ur. hann getur ekki goldið sekt- ina, nema ég, sem er holds- veikur og þunglega þjáður kararómagi hans, megi missa í þeirri forsorgun og framfærslu sem hann í mörg ár sýnt hefur mér með allri nærgætni og umönnun, sem hann líka framvegis til enda minna vesælu lífdaga gjarnan vill áframhalda eftir ýtrustu kröftum og efnum. Svo sem ég að mínu leyti hef fyrir- gefið honum þetta brot, í þeirri von að héreftir slíti ei tryggð við mig eða sleppi af mér hendi, vildi ég auð- múklegast óska að háyfir- valdinu náðugast þóknað- ist að létta af honum sekt og straffi fyrir mína skuld, sem þoli ekki að útsvar sé lagt á efni okkar sem að mestu leyti ganga til míns undirhalds. Fyrst og fremst var því ver- ið að hugsa um afkomuna og heimilið, og sjónarmið Mar- grétar Þorsteinsdóttur úr Rangárvallasýslu var ríkj- andi. Hún skrifaði í árslok 1834 vegna fyrsta hórdóms- brots manns síns: „ég er full- viss um að það er ekki vors allra mildasta konungs vilji að straffa mig saklausa fyrir brot hans með sameiginlegu eigna tjóni".22 Nokkrar kon- ur báðu jafnvel yfirvöld um að leyfa barnsmóður hús- bóndans að vera áfram á bæn- um svo búskapur leggðist ekki niður. Sesselja Þórarins- dóttir bað til dæmis um það vorið 1846 að vinnukona sem Eiríkur bóndi hennar hafði átt tvö börn með fengi að vera. Hún sagðist vera heilsu- laus sjálf og oft rúmliggjandi, þau ættu 3 óuppalin börn og kotið væri rýrt. Vinnukonan væri því með öllu ómiss- j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.