Ný saga - 01.01.1987, Síða 70
Þess hefur gætt nokkuð að
undanförnu að það ljós-
myndaefni sem er aðgengi-
legt öllum, t.d. frá Þjóðminja-
safni og Ljósmyndasafni, hafi
með vissum hætti verið ofnot-
að, sömu myndirnar verið
notaðar aftur og aftur í bók-
um, tímaritum, blöðum og á
sýningum. Þetta á t.d. við um
ýmsar myndir frá Reykjavík
sem hefur verið mjög í sviðs-
ljósi sagnfræðinga og áhuga-
manna um sögu, ekki síst í
tengslum við 200 ára afmæli
borgarinnar. Þessar myndir
gefa þó margar enn nokkra
möguleika með því að lesa
þær betur en gert hefur verið.
Sagnfræðingar geta með
því að rýna vel í myndir og
stækka einstaka hluta þeirra,
ef þær eru skýrar, leitt fram í
dagsljósið nýjar sýnir sem
venjulegu fólki eru huldar við
fljótlega skoðun. Þannig er
því t.d. farið um margar
myndir sem eru teknar af
stóru sviði. Þar geta óvart
„villst" inn á myndina hvers-
Fyrirmaðurá hvítum gæðingi og forvitniráhorfendurfyrir framan
skrautlega forhlið Smjörhússins í Hafnarstræti 22. Takið eftir
höfuðfötunum. Þarna má sjá kúluhatt, flathatt, sixpensara og
kaskeiti á karlmönnum en stráhatta með blómum og baskahúfur á
konum.
Vel klæddar mæðgur með
eitthvert smáræði ( höndum
koma út úr búð. Meðfram hús-
veggnum er hestajata fjær en
kjallarahleri nær.
dagslegir eða óvæntir hlutir
sem ljósmyndarinn hefur
ekki verið að taka mynd af.
Með því að stækka þá út úr
myndinni eru kannski komn-
ar margar smámyndir sem
hafa sjálfstætt gildi og geta
staðið sem nýjar myndir í
sagnfræðiverki. Þannig geta
mikið notaðar myndir haft
óvænta nýja möguleika.
Ljósmyndin, sem fylgir
greininni, er tekin af Pétri
Brynjólfssyni í austurenda
Hafnarstrætis. Þetta svæði
var þá stundum kallað Thom-
senstorg vegna þess að Thom-
sensmagasín ‘var í mörgum
húsum beggja megin götunn-
ar og strætið athafnasvæði
verslunarinnar. Tilefni
myndatökunnar er líklega
það að einhverjir góðborg-
arar eru að leggja á stað í út-
reiðartúr á björtum helgi- eða
tyllidegi. Með því að rýna í
myndina má þó sjá margt
68