Ritmennt - 01.01.1997, Síða 29
RITMENNT
HANDRITASAFN LANDSBÓKASAFNS 150 ÁRA
móti handritum. Einnig er lagt mat á handrit ef þess er óskað,
stundum með kaup í huga. Er fóllt oft heimsótt vegna þessara
starfa.
Skráning er tvíþætt. í aðfangabólc, sem er í formi dagbólcar, er
skráð allt handritaefni sem ætlað er til varðveislu í deildinni. Þar
kemur fram gefandi eða seljandi og afhendandi, ef því er að
skipta, og gefið er yfirlit yfir það efni sem hefur borist hverju
sinni. í öðru lagi er um að ræða nálcvæma efnisskráningu, eða
með öðrum orðum endanlega skráningu, það er þegar handritun-
um eru gefin föst og óbreytanleg númer. Er undirbúningsstarf að
þessum lokaáfanga í reynd meginviðfangsefni handritadeildar-
fólks, eins og nú skal lýst í nokkrum orðum. Handrit bókakyns:
Handritið er mælt, blöð talin og athugað hvort í það vanti, hvort
um sé að ræða auðar síður eða innskotssíður og hvort um fleiri
en eina rithönd geti verið að ræða. Gerð er nákvæm grein fyrir
öllu efninu og ef ritara eða höfundar eða höfunda er eklci getið er
reynt, meðal annars með samanburði við önnur handrit, að finna
þann eða þá sem eiga í hlut. Ef sú leit ber ekki árangur og elclc-
ert ártal er í handritinu er eklci annað til ráða en að álylcta um
aldur rithanda út frá stafagerðinni. Handritasöfn eða blandað
lausblaðaefni: Handritaefni er flokkað og því raðað til skráning-
ar og það skráð á sama hátt og hér hefur verið rakið. Við skrán-
inguna er reynt þegar um ræðir til dæmis bréfasöfn að leggja
grundvallaráherslu á að finna hver vera muni réttur bréfritari.
Svo nefndur sé annar vandi til úrlausnar á það við um allt efni
að reynt er að ganga úr skugga um hvað af því muni ef til vill
hafa komið fyrir almennings sjónir eða með öðrum orðum það
sem kallað er not af handritinu. Gerð er enn frekari grein fyrir
úrvinnslu þessa efnis hér í næsta kafla, þar sem fjallað er um út-
gáfu handritaskránna.
Handritum eða handritaefni er fenginn umbúnaður eftir þörf-
um, meðal annars hlífðarkápur úr bókbandsspjaldaefni eða papp-
írsumslög með réttu sýrustigi, og ritaðar upplýsingar oft settar á
umslagaefnið, svo sem nöfn allra bréfritara og fjöldi bréfa í bréfa-
söfnum. Gengið er sérstaklega frá handritum til viðgerða og
filmunar.
Til rannsóknarstarfa teljast hinar fræðilegu athuganir sem
liggja að baki ýmsum aðkallandi úrlausnarefnum til þess að
handrit geti talist fullskráð, sem og útgáfur handritatexta. Þá er
25