Ritmennt - 01.01.1997, Síða 40
STEINGRÍMUR JÓNSSON
RITMENNT
siðbótina 1550 að bókaprentun hófst að nýju á íslandi. Jón
Matthíasson snerist til lúthersku og hélt áfram prestskap á
Breiðabólstað. Árið 1559 var Passio eftir Antonius Corvinus
prentuð og þremur árum síðar Guðspjallabók Ólafs Hjaltasonar
biskups. Af bókum þessum er til sitt hvort eintakið í Konungs-
bókhlöðu í Kaupmannahöfn, bæði óheil. Heimildir eru urn
þriðju Breiðabólstaðarbókina en ekkert eintalc hennar hefur
varðveist.
Þegar Jón Matthíasson andaðist 1567 tók ungur prestur við
Breiðabólstað. Það var Guðbrandur Þorláksson sem verið hafði
við nám í Kaupmannahöfn og án efa kynnst prentsmiðjum og
prentuðum bókum. Hvort prentverkið á Breiðabólstað olli ein-
hverju um að Guðbrandur tók staðinn er ekki vitað, en þegar
Guðbrandur varð biskup á Hólum 1570 flutti hann með sér
prentsmiðjuna til Hóla ásamt prentaranum Jóni Jónssyni, syni
Jóns Matthíassonar, sem erft hafði prentsmiðjuna. Næstu árin
og áratugina áttu þessir tveir menn eftir að vinna þrelcvirld í
íslenslcri bólcagerð.
Áriö 1573 ritaði Guðbrandur biskup bréf á latínu til kollega
síns í Danmörku, Péturs Palladíusar Sjálandsbiskups.2 Þar segir
meðal annars í íslenskri þýðingu:
Þegar ég heyri að þér getið nú útvegað pappír myndi ég gjarnan vilja fá
hann hingað. í síðasta bréfi (sem ég var nánast neyddur til að skrifa fyrir
auman landa minn og prest, sem lcvaðst myndu fara til Kaupmanna-
hafnar og beiddist þess að ég talaði fyrir málstað hans hjá yður í engan
veginn auðveldu máli) bað ég yðar ágæti að 12 búnt yrðu send mér á
lcomandi ári, bæði til þarfa skólans sem og til að prenta nokkrar smá-
bælcur sem gagnlegar væru skólanum og kirkjunni hér, því ég hef prent-
smiðju sem er farin að gefa sig sökum aldurs en má gera við. Hjá mér er
auk þess maður sem lært hefur nokkuð til prentunar. Eklcert annað þarf
því en pappír og prentfarva, sem ég bið að sendur verði mér tillagaður
hálfur áttungur svartur litur. Nokkur skinn skulu einnig leggjast með,
svonefnd þófaskinn.
Árið 1575 kom fyrsta bókin. Lífsins vegur, út og á næsta ári
þrjár til viðbótar. En áður en þær voru tilbúnar bilaði prentpress-
an. Þótt ekki verði annað skilið af orðum Guðbrands biskups í
eftirgreindu bréfi en ómögulegt hafi verið að lagfæra pressuna,
2 Bréfabók Guðbrands, nr. 44, bls. 40-41.
36