Ritmennt - 01.01.1997, Page 80
RITMENNT 2 (1997) 76-80
Hildur G. Eyþórsdóttir
íslenslc bólcaútgáfa
í 30 ár, 1967-1996
Yfirlit íslenskrar bókaútgáfu í 30 ár, frá 1967 til 1996, sem hér birtist er sjálfstætt
framhald yfirlits bókaútgáfu 1887-1966 sem kom út í Árbók Landsbókasafns 1967
og er það haft hér til samanburðar. Birt er tafla með tölfræðilegum upplýsingum um
bókaútgáfuna og síðan eru ákveðnir þættir sýndir á myndum. Upplýsingarnar eru
fengnar úr Árbók Landsbókasafns, íslenskri bókaskrá og Gegni, tölvukerfi Lands-
bókasafns íslands - Háskólabókasafns.
/
Iþessari grein er yfirlit um íslenska bóka-
útgáfu síðustu 30 ára, frá árinu 1967 til
ársins 1996. Niðurstöðutölur birtast í Töflu
1. Þar er efnisflokkum sem byggjast á flokk-
unarkerfi Deweys1 raðað í stafrófsröð. Tafl-
an er í raun framhald af svipaðri töflu um
bókaútgáfu 80 ára tímabils, frá 1887 til
1966, sem Ólafur F. Hjartar tók saman og
birti í Árbók Landsbókasafns 19672. Stuðst
er að miklu leyti við verk Ólafs um efnis-
flokkun til þess að gera yfirlitin samanburð-
arhæf. Aftan við 30 ára tímabilið eru því
niðurstöðutcilur hvers efnisflokks frá yfirlit-
inu 1887 til 1966 birtar ásamt hundraðs-
hlutfalli miðað við heildarfjölda. Auk þess
birtist fjöldi rita yfir allt 80 ára tímabilið.
Horfið var frá því að endurskoða þær tölur
að sinni. I töflunni er einnig hægt að sjá yfir
bæði tímabilin árlegt meðaltal titla í hverj-
um efnisfloklci.
Upplýsingarnar í 30 ára yfirlitið eru
fengnar úr Árbólc Landsbólcasafns fyrir árin
1968 til 1973. Þá er stuðst við töluyfirlit um
íslenslca bólcaútgáfu í íslenslcri bólcaslcrá
yfir árin 1974 til 1996. Auk þess voru dregn-
ar út tölur úr tölvukerfinu Gegni til saman-
burðar og til þess notað útprentunarforrit
fyrir íslenska bókaskrá. Þrátt fyrir alla
tækni verður að segjast eins og er að tölur
sem þessar verða alltaf afstæðar og breytast
þar sem stöðugt er verið að vinna með færsl-
urnar. Bæði bætast færslur við og einnig er
unnið að endurflokkun. Þess vegna má segja
að urn leið og tafla er gerð verði hún úrelt
því að nýjar færslur bætast við. Eins verða
þessi tvö yfirlit aldrei alveg sambærileg.
Eigi að síður gefur þetta yfirlit haldgóðar
vísbendingar.
1 Hér er átt við bandaríska tugstafakerfið Dewey
Decimal Classification sem notað er við flokkun
rita í flestum íslenskum bókasöfnum.
2 Ólafur F. Hjartar: íslenzk bókaútgáfa 1887-1966.
Landsbókasafn íslands. Árbók. í hverri Árbólc
Landsbókasafns birtist kafli um íslensk rit sem var
skrá yfir bókaútgáfu ársins á undan. Frá og með ár-
inu 1974 birtist skrá um útgáfu hvers árs £ sérstöku
riti, Islenskri bókaskrá.
76