Ritmennt - 01.01.1997, Page 128
GUNNAR SVEINSSON
RITMENNT
Hér verður slegið fram þeirri tilgátu að bréf Öku-Þórs hafi orð-
ið út undan af einhverjum ástæðum þegar Ingibjðrg Skaftadóttir
lét bréfasafn föður síns af hendi árið 1935. Vera má að hún hafi
ekki áttað sig á undirskriftinni, Öku-Þórs-nafninu. Ég minnist
glöggt Ingibjargar sem eftirminnilegs gests á heimili foreldra
minna á Seyðisfirði þar sem faðir minn var sóknarprestur á árun-
um 1926-1942. Sennilegt er að hún hafi sýnt presti sínum þetta
dularfulla bréf sem fjallaði um trúmál og afhent honum það til
eignar. En ekki er mér kunnugt um hvort hann hefur getað ráð-
ið gátuna um ritara bréfsins, og ekki man ég til þess að hafa séð
þetta bréf á yngri árum né heyrt á það minnzt.
Ingibjörg (Anna Ingibjörg fullu nafni) Skaftadóttir (1867-1945)
fæddist í Kaupmannahöfn. Guðfeðgin við slcírn hennar voru
hjónin Jón Sigurðsson skjalavörður og Ingibjörg Einarsdóttir auk
danskrar lconu. Það var að beiðni Ingibjargar að barnið var slcírt
nafni hennar ásamt móðurnafni Slcafta, en móðir hans var Anna
Margrét Björnsdóttir Ólsen frá Þingeyrum.13 Á efri árum sínum
hafði Ingibjörg Skaftadóttir á sér fyrirmennskubrag 19. aldar og
bar það með sér að hún hefði verið glæsileg á yngri árum. Haust-
ið 1882, þá á 15. ári, fór hún til Kaupmannahafnar.14 Þar dvaldist
hún noklcur ár á heimili Tryggva Gunnarssonar, kaupstjóra
Gránufélagsins og síðar bankastjóra, við nám í tungumálum,
hljóðfæraleik og listdansi.15 Systursonur Tryggva, Hannes Haf-
stein, var þar heimagangur og þeir félagar hans, Einar Hjörleifs-
son, Gestur Pálsson og Bertel E.Ó. Þorleifsson, en þeir höfðu
staðið að útgáfu tímaritsins Verðandi árið sem Ingibjörg kom til
Hafnar, 1882. Ingibjörgu hefur verið lýst á þann veg að hún hafi
verið „kona fríð sýnum, vel í meðallagi há, grannvaxin, hand-
smá, hörundsbjört, jarphærð, augu dökkblá og ljómandi, varir
rjóðar fram á elliár, hreyfingar léttar og mjúklegar".16 Þær mæðg-
ur, Sigríður Þorsteinsdóttir og Ingibjörg, stóðu að útgáfu fyrsta
13 Sjá athugasemd Ingibjargar Skaftadóttur á lausu blaði í Lbs 2561 4to.
14 Sjá athugasemd Ingibjargar við bréf frá Kristjönu Kristjánsdóttur, Stærra-Ár-
skógi, til móður hennar, Sigríðar Þorsteinsdóttur, Lbs 2561 4to.
15 Listdans var Ingibjörgu mjög hugleikinn, „og mun hún hafa sýnt ótvíræða
hæfileika í þá átt. Hafði kennari hennar sagt: „Gid jeg havde faaet Dem för.""
Margrét Friðriksdóttir: „Anna Ingibjörg Skaptadóttir". I, bls. 151.
16 Sama rit, bls. 152.
122