Vera - 01.06.1995, Síða 44
tónli t
Þaö er sérstök upplifun aö fara á tónleika hjá Kvennakór
Reykjavíkur. Horfa á þær ganga inn á sviöiö, hverja á fætur
annarri, lengi, lengi. Þaö er eins og ekkert lát ætli aö veröa á
þessum endalausa straumi af konum. Að þessu sinni eru þær
í nýjum búningum, sem mynda geysifallega jarölitasinfóníu.
Og svo hefja þær upp raust sína.
Kvennakór Reykjavíkur bauð til Vorsveiflu í Langholtskirkju í byrjun maí
og hafði góða gesti sér til fulltingis, m.a. Signýju Sæmundsdóttur söng-
konu og Simon Kuran fiðluleikara, en aðalpíanóleikari kórsins er Svana
Víkingsdóttir. Um leið og konurnar hófu sönginn mátti heyra að þær hafa
æft vel í vetur enda er starf kórsins með blómlegasta hætti. Kórinn er nú
skipaður um 120 konum og innan hans eru smærri hópar sem sérhæfa
sig í mismunandi tónlist.
Ekki verður litið framhjá hlut stjórnandans, Margrétar
Pálmadóttur söngkonu, í þeim árangri sem kórinn hefur
náð og frumkvæði hennar í öllu þessu starfi. Kórinn nýt-
ur nú þeirrar reynslu sem hún hefur aflað sér sem stjórn-
andi ýmissa barnakóra og raddþjálfari kóra á borð viö
Pólýfónkórinn og Söngsveitina Fílharmóníu. Auk þess
stofnaði hún Kór Flensborgarskóla og stjórnaði honum
af miklum krafti, og með frábærum árangri, um tíu ára
skeið.
Það var létt yfir þessum tónleikum, en þeir hófust á
íslenskum lögum úr leikritum. Þessum íslenska hluta
tónleikanna lauk svo með hinni gullfallegu Ave Mariu
Sigvalda Kaldalóns. Signý söng einsöng meö kórnum og
var flutningur þeirra yndislegur.
Negrasálmar voru næstir á dagskrá og þá sungu
Gospel-systur Möggu Pálma með kórnum ogtriói Aðalheið-
ar Þorsteinsdóttur sem var, auk hennar, skipað þeim Ás-
geiri Óskarssyni á slagverk og Gunnari Hrafnssyni á kontra-
þassa. Þessi ýmist gleði- eða tregaþrungna tónlist
bandarisku þrælanna sveiflar manni ósjálfrátt í sætinu, en
Sometimes I feel like a Motherless Child gekk mér innst
aö hjarta, með einsöng Signýjar og stuðningi kórsins.
Eftir hlé tóku við klassísk sönglögfrá mið-Evrópu ogí þeim hluta tónleik-
anna gekk Simon Kuran til leiks í Spiel auf deiner Geige das Lied von Leid
und Lust sem Signý söng og var flutningur þeirra hrífandi.
Vorsveiflu Kvennakórsins lauk með lögum úr ýmsum söngleikjum og
það voru ánægðir tónleikagestir sem héldu út í bjarta vornóttina. Kvenna-
kór Reykjavíkur hefur sýnt sig og sannaö, fyrst og síðast sem kór náttúr-
lega, en einnig sem einn gleðilegasti angi kvennahreyfingarinnar í dag. Á
undanförnum árum hafa konur stofnað samtök og starfað saman til að
berjast gegn kúgun og ofbeldi, enda ekki vanþörf á. Kvennakór Reykja-
víkur er ekki stofnaður vegna kúgunar og þeirrar reiði sem hún leiðir af
sér, heldur er hann stofnaöur af einskærri gleði - nefni-
lega sönggleðinni, en sú gleði er svo mögnuð að hún
getur örugglega flutt fjöll. Og þegar 120 konur koma
saman og magna þvílíkan seið — þá öðlast lífið nýjar
víddir.
Góða ferð
Sonja B. Jónsdóttir