Vera - 01.10.1997, Síða 10
Kolrassa krókríöandi. Sigrún, Bíbí,
Anna Magga, Eiíza meö fiöluna og
Kalli trommari í baksýn.
DÚKKULÍSUR 1982' I98Ó
Skilja eftir sig 1 og 1/2 breiðskífu.
Dúkkulísurnar voru stofnaðar á Egilsstöðum
haustið 1982 af „þarlendum“ skólasystrum
sem höfðu reyndar verið að spá í að stofna
hljómsveit alveg frá því einhvern tímann í
grunnskóla. Vinur þeirra og hjálparhella,
Karl Erlingsson, varð sá hvati að þær Iétu til
skarar skríða.
Grýlurnar bafa ekki haft nein áhrif.?
„Ja, kannski að því leyti að þeim gekk
vel“, segir Guðbjörg Pálsdóttir, stödd í
Reykjavík 18. október, eins og allar
Dúkkulísur sem átt hafa heimangengt til að
mæta í þrítugsafmæli Erlu söngkonu sem
búsett er í höfuðborginni. Hún segir okkur í
stuttu máli frá stofnendum Dúkkulísa og
núverandi stöðu þeirra meðan hún bíður eft-
ir að komast að í snyrtingu hjá vinkonu sinni
á eftir Erlu bassaleikara: „Dúkkulísurnar
voru fimm manna hljómsveit strax í upphafi:
Erla Ingadóttir spilaði á bassa, ég á tromm-
ur, Hildur Viggósdóttir á hljómborð, Þórunn
Víðisdóttir á gítar. Erla Ragnarsdóttir var í
skóla í Reykjavík þegar við byrjuðum, en
það var alltaf ákveðið að hún yrði
söngkonan í hljómsveitinni þannig að
nokkrar leystu hana af þangað til hún gat
byrjað. Svo fréttum við af Grétu og hún
gerðist gítarleikari okkar sumarið 1983.
Arið 1984 tókum við þátt í Músiktilraunum
- og unnum.“
Hvers vegna hœttuð þið?
„Ætli það hafi ekki verið almenn þreyta.
Við vorum líka í skóla og tókum
stúdentspróf 1986, þannig að þá urðu
tímamót hjá flestum, langskólanám og
svoleiðis - nýtt líf. En við höfum haldið sam-
bandi hver við aðra, reyndar mismiklu eftir
tímabilum, en samt...Já, og svo hittumst við
í sumar og spiluðum á 50 ára afmæli
Egilsstaða við ótrúlega mikil fagnaðarlæti.
Ég vona að við spilum saman aftur einhvern
tímann síðar.“ Og við fáum að vita að Hild-
ur Viggós er kennari, eins og flestar Dúkku-
lísur. Hún býr í Danmörku ásamt eigin-
manni og tveimur sonum, 4 og 8 ára. Harpa,
sem tók við af Hildi sem hljómborðsleikari í
Dúkkulísum, býr á Akureyri með sinni
familíu, á son og dóttur, tæplega eins og 3
ára. Erla bassaleikari er dagmamma á Egils-
stöðum, á sjálf 2 og 7 ára stelpur og 4 ára
strák. Nafna hennar söngkonan er sagn-
fræðingur og kennir við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Hún á tvær stelpur, 3 og 7 ára.
Sjálf er Guðbjörg kennari á Egilsstöðum og
á 3 ára son.
GRÉTA Sigurjónsdóttir gítarleikari náði
að starfa með tveimur kvennahljómsveitum
áður en hún gekk í Dúkkulísurnar. Hún var
í skóla á Eiðum og æfði þar með mikilli
leynd eftir iokun skólans fyrir bekkjar-
skemmtun í hljómsveitinni Orghestrur. Þetta
var einhvern tímann veturinn 1981 - 1982.
Næsta vetur voru það Gvendólínurnar og
þessar sveitir voru með frumsamið efni. Það
var því ekki nema von að Dúkkulísurnar
fréttu af Grétu, þannig að hún sameinaðist
þeim. Þeirra fyrsti frami var að lenda í öðru
sæti í hljómsveitakeppni í Atlavík - svo
komu Músiktilraunir og í kjölfarið á sigrin-
um plötusamningur við Skífuna: „Þetta
gerðist allt mjög hratt eftir Músiktilraunir og
varð mikil keyrsla - plata, hljómleikar, böll.
Við urðum útkeyrðar á stuttum tíma og pen-
ingalega var þetta mjög erfitt. Við þurftum
að leggja peninga í allslags græjur en inn-
koman var ekki eins mikil“. Gréta hefur
spilað með nokkrum hljómsveitum síðan
Dúkkulísur hættu, t.d. með Guðbjörgu
Dúkkulísutrommara í Ökklabandinu og auk
þess í Bergmáli, harmonikkubandi og sem
trúbadúr: „Þá hef ég tekið lög t.d. frá Alanis
Morissette, Susanne Vega, Chrissie Hynde
og Svart/hvítu hetjuna mína“, segir Gréta en
hún samdi einmitt það lag og texta fyrir
Dúkkulísurnar. Gréta útskrifaðist úr
heimspekinámi í HI 1995 og gerðist
grunnskólakennari við Brúarárskóla en auk
þess tónlistarkennari; kenndi á rafmagns-
gítar, bassa og trommur - nóg að gera þann
tíma. Nú er Gréta með gítarinn í Revkjavík
og stundar nám við Tónlistarskóla FIH.
KOLRASSA KRÓKRÍÐANDI 1992
/ fullu fjöri - afköst: 2 og 1/2 geisladiskur, 1
fyrir erlendan markað og sá 4. fulli á
leiðinni.
Kolrassa krókríðandi á sex ára afmæli 28.
nóvember á þessu herrans ári, 1997, og er
þar með orðin langlífasta kvennahljómsveit
landsins. Sér ekkert fyrir endann á hennar
ferli því liðsmenn virðast á einu máli um að
seiglast áfram. I þessum skrifuðum orðum er
hljómsveitin að fara öðru sinni til Lundúna á
þessu ári að spila á hljómleikum í Covent
garden og Kentish town. Auk þess stendur
fyrir dyrum að búa til myndband fyrir nýtt
lag sveitarinnar - Crash. Já, kvennahljóm-
sveit skrifa ég, en 1/5 er þó karlkyns -
trommarinn Karl en hann hefur nú sést í kjól
eins og trommarinn í Sveindísi forðum. „Við
stofnuðum Kolrössu hátíðlega rétt fyrir
hljómleika á vegum Fjölbrautaskóla
Suðurnesja“, segir Elíza söngkona. Hinar í
„við-inu“ voru Sigrún gítarleikari, Bíbí
bassaleikari og Birgitta trommari Vilbergs-
dóttir. Þær stúlkur höfðu reyndar áður
spilað saman í hljómsveitinni Mönnum.
Vorið 1992 tók Kolrassa krókríðandi þátt í
Músiktilraunum og vann - 10 árum á eftir
Dúkkulísum var þeim sagt, en er ekki alveg
staðfest hér vegna lélegs tímaskyns allra
viðkomandi. Hins vegar er áþreifanlegur
sexlaga diskurinn Drápa sem sveitin hljóð-
ritaði fyrir verðlaunaféð - og gott meira eigið
silfur að vísu. Allar þær sem stofnuðu
Kolrössu krókríðandi eru enn í sveitinni,
utan Birgitta sem starfar á bókasafni í
fæðingarbæ sveitarinnar, Keflavík. 1 stað
Birgittu fór Kópavogsbúinn Karl að tromma
með Kolrössu árið 1993. Upp úr því fór
sveitin að hugsa um að bæta við gítarleikara
og í gegnum Emiliönu Torrini mætti Anna
10