Vera - 01.10.1997, Blaðsíða 17
/
Eg er eiginlega viss um að í dag væri
ekki kona í bankaráði ef ég hefði
ekki verið varamaður,“ segir Anna
Margrét. „Þegar ég kom inn í
ráðið var það í fyrsta sinn sem
kona úr hinum svokölluðu fjórflokkum var
kjörin þangað. Kjörtímabilið þar á undan
hafði önnur kona setið í bankaráði og var
fulltrúi Kvennalistans. Það var Kristín
Sigurðardóttir og við störfuðum þétt saman í
tvö ár. Ég kom inn ung og óreynd og mér
fannst mikill stuðningur af henni.“
Þegar er búið að tilnefna fulltrúa í stjórn
Landsbanka íslands hf. og á Anna Margrét
sæti í þeirri stjórn, sem er tilnefnd af
viðskiptaráðherra. Stjórnin er byrjuð að
vinna samhliða bankaráði Landsbankans og
vinnur að breytingum sem gerðar verða
þegar bankinn breytist í hlutafélag um næstu
áramót, en þangað til starfar bankaráð
Landsbankans eins og áður. Anna Margrét
verður eina konan í stjórn hins nýja
hlutafélags. En skiptir máli að konur eigi
fulltrúa þar?
Ef það hefði ekki gerst má allt eins vera að
Kristfn hefði verið eina konan í sögu
bankans sem hefði setið þar sem aðalmaður.
Reyndar átti sér stað mjög skemmtilegt
atvik á meðan við Kristín vorum báðar í
bankaráðinu. Það var 19. júní árið 1993. Þá
sat kona, sem var varamaður Steingríms
Hermannssonar, fund í bankaráði í hans
stað. Á þessum fundi voru því þrjár konur.
Það var í fyrsta sinn í sögu bankans sem
konur voru í meirihlua á fundi bankaráðs.
Það var tekin af okkur rnynd og við vorum
komnar á spjöld sögunnar! Á þessum fundi
vorum við að ráða útibússtjóra og við
skipuðum tvær konur í stöðu útibússtjóra."
Er þetta skemmtilegt starf'?
„Mér hefur þótt þetta mjög lærdómsríkt,
skemmtilegt og ögrandi verkefni. Mér finnst
líka mjög spennandi að taka þátt í þeim
breytingum sem framundan eru. Þetta er
reynsla sem mér finnst mjög mikils virði að
hafa fengið.“
Pú komst inn sem varamaður, en hefur á
þessu kjörtímabili setið í bankaráði sem
Anna Margrét Guðmundsdóttir, í bankaréði Landsbankans
Getur reynst erfitt
aö brjóta ísinn
aðalmaður. Var það sjálfgefið vegna þess að
þú hafðir þegar setið í ráðinu?
„Nei, ég þurfti að berjast fyrir því. Ræða
málið við fjölda manns, afla mér stuðnings
og virkilega hafa fyrir því. En það hafðist.
Ég held að allir möguleikar standi konum
opnir en við erum kannski ekki alltaf nógu
viljugar til þess að berjast fyrir þeim. I
stjórnmálum og atvinnulífi kemur ekkert
upp í hendurnar á okkur. En við erum ekkert
einar um að þurfa að berjast, karlarnir þurfa
þess líka. Þetta er bara staðreynd sem fólk,
sem vill hasla sér völl í stjórnmálum, verður
að gera sér grein fyrir.“
Heldurðu að það sé óttinn við baráttuna
sem heldur aftur af konum við að leggja út á
þessar brautirí’
„Ég veit það ekki. Það er svo margt hægt
að gera í lífinu. En ef kona hefur virkilegan
áhuga á þátttöku í stjórnmálum, þá finnur
hún leið.“
Sérðu fyrir þér að kona setjist í
bankastjórastólinn í Landsbankanum hf.
ncestu árinf
„Kannski ekki alveg næstu árin en ég vona
að við eigum eftir að sjá það í framtíðinni."
Nú ert þú einnig í bcejarstjórn í Keflavík.
Hvernig eru valdahlutföllin þar?
„Þar eru ellefu bæjarfulltrúar og þar af
„Já, ég tel það skipta máli að konur eigi
fulltrúa í bankaráði og í stjórnum fyrirtækja
almennt. Einnig á Alþingi og í
sveitastjórnum til að öll sjónarmið fái að
njóta sín. Það skiptir auðvitað máli að konur
taki þátt í störfum í þjóðfélaginu, hvort
heldur er í stjórnun eða atvinnulífi.“
Finnst þér þú hafa einhver völd?
„Ekki sem kona, en hver og einn
bankaráðsmaður hefur viss völd og það er
nauðsynlegt að þeir sem halda um völdin
endurspegli þversummuna af þjóðfélaginu
hverju sinni.“
Hafa konur í stjórnunar- og valdastöðum
aðrar áherslur en karlar?
„Það er erfitt að segja...Jú, ég held að það
sé alveg óhætt að segja að við höfum annars
konar nálgun oft á tíðum en svo verður hver
og einn að vera meðvitaður um hlutverk sitt.
Hvað Landsbankann hf. varðar, þá er
stjórnin skipuð til þess að gæta hagsmuna
þess fyrirtækis.“
Hvers vegna hafa svona fáar konur komist
í valdastöður í Landsbankanum?
„Landsbankinn er hundrað og ellefu ára
gamalt fyrirtæki. Karlaveldið þar á sér svo
langa sögu og þegar hefð er orðin gömul og
gróin, getur reynst erfitt að brjóta ísinn. Ég
kom inn vegna þess að aðalmaður veiktist.
j C 0 0 0
1. o o e 'o e o.ojj
'0?0-<]r/á • OOo'G&.^ájá|
J-'-A' ; 1 Vo o o.oÆ
Anna Margrét Guðmunds-
dóttir, bæjarfulltrúi í
Keflavík, hefur setið í
bankaráði Landsbankans
frá því um áramótin 1993-
94. Hún kom þá inn sem
varamaður í stað Eyjólfs
Kr. Sigurjónssonar, fulltrúa
Alþýðuflokks sem hafði
veikst alvarlega. Þá sat
þar fyrir önnur kona, sú
fyrsta í yfir aldarlangri
sögu bankans, Kristín
Sigurðardóttir. í dag er
Anna eina konan sem á
sæti í bankaráði
Landsbankans.
fimm konur; forseti bæjarstjórnar og
formaður bæjarráðs eru konur og síðan
erum við tvær sem leiðum okkar lista,
þ.e.a.s. ég leiði Alþýðuflokkinn og Drífa
Sigfúsdóttir leiðir Framsóknarflokkinn. Við
komum báðar inn árið 1986 og vorum þá - í
fjörutíu ára sögu bæjarfélagsins - konur
númer þrjú og fjögur sem kornu inn í
bæjarstjórn. Það má því segja að við höfurn
séð miklar breytingar á stuttum tíma.“
vra 17