Vera - 01.10.1997, Blaðsíða 35

Vera - 01.10.1997, Blaðsíða 35
Kvennahúsið: FOR KVINDE ONLY Lin Bernbom van Roe tók á móti mér í Re-Design, búð Kvennahússins. í búðar- gluggunum eru gínur í skrautlegum föt- um. Á dyrunum er enn skilti sem á stendur „FOR KVINDER ONLY“. Þegar inn er komið blasa við glæsilegir kjólar úr ótrúlegustu efn- um. Kvennahúsið hefur sannarlega tekið stakkaskiptum síðan ég átti þar síðast leið hjá fyrir fimmtán árum. Ég fór þó að kannast við mig þegar ég rak augu í gömul póstkort frá tímum tímaritsins Kvinder. Lin stjórnar starfsemi Re-Design og er ólaun- uð eins og allar þær konur sem starfa í Kvennahúsinu. Hún er flestum hnútum kunnug og gat því leitt mig um húsið og sagt frá starf- seminni sem þar fer frarn.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.