Vera - 01.10.1997, Qupperneq 44
i -í £
Flauelsmjúkar
hendur
pp
Tk&kal
Laugavegi • Suðurveri
Við kölluðum okkur djassaða
kammersveit og vorum svolítið
í anda Spilverksins," segir Jó-
hanna Þórhallsdóttir, en hún
gefur út disk fyrir jólin,
Flauelsmjúkar hendur sem er væntanlegur
um miðjan nóvember.
Hvað hefurðu verið að fást við frá
Diabolus og þar til nú?
„Ég byrjaði á því að útskrifast úr Hamra-
hlíðinni og fór þá aðeins að fást við blaða-
mennsku. Ég eignaðist barn og ákvað það,
tuttugu og fimm ára gömul, að tími væri
kominn til að gera eitthvað og lagði land
undir fót. Leiðin lá til Englands í söngnám,
nánar tiltekið í Royal Northern College of
Music. Svo kom ég heim og hélt auðvitað
áfram að syngja. Ég fór
þessa klassísku Ieið, söng
með Sinfóníuhljómsveitinni
og Kammersveit Reykjavík-
ur og sóló með píanistum.
Það kom fyrir að ég söng
við jarðarfarir og brúðkaup
og svo kenndi ég tónmennt-
ir og söng við Tónskóla Sig-
ursveins. Ég stofnaði Óp-
erusmiðjuna ásamt Mar-
gréti Pálmadóttur og fleiru
góðu fólki en sú viðleitni til
að auðga menningarlífið í
landinu mætti ekki miklum
skilningi, hvorki frá yfir-
völdum né Islensku óper-
unni sem þó hefði notið
góðs af. Ég fór til Ítalíu
1992 til að læra meira og
syngja, þá til Vínarborgar í
sömu erindagjörðum en síð-
an er ég búin að vera heima.
Ég eignaðist mitt annað
barn og hellti mér út í kór-
stjórn, var meðal annars ein
af stofnendum Kvennakórs
Reykjavíkur. Þá fór ég að
vinna með Leikfélaginu en
„Abugi minn á söng kviknaði
fyrst fyrir alvöru þegar ég
stofnaði hljómsveitina Di-
abolus In Musica ásamt
nokkrum krökkum. Við vor-
um öll í Menntaskólanum við
Hamrablíð fyrir utan þessa
tvo stráka sem námu listir í
Mynd- og bandíðinni. Við gáf-
um út plötu fyrir tuttugu
árum sem fékk fínar viðtökur.
Hópurinn á bak viö
Flauelsmjúkar
hendur. F.v. Páll
Torfi Önundarson,
Aðalheiður
Þorsteinsdóttir,
Jóhanna, Tómas
R. Einarsson og
Sveinbjörn I.
Baldvinsson.
GREINILEGA DENBY
það varð einmitt til að kveikja aftur í mér
áhugann á tónlist eins og þeirri sem er á
nýja disknum. Mér fannst ég orðið eiga það
skilið að leika mér svolítið og fara yfir á
annað svið. Ég bý auðvitað að klassísku
menntuninni en skrúfa svolítið niður í mér,
nota aðra tækni. Ég er farin að syngja með
meiri sveiflu og djassinn læddist inn bak-
dyramegin.“
Hvernig er nýja platan?
„Hún er fyrst og fremst heit. Ég ætlaði að
gera mjúka plötu og það gerði ég líka. Hún
er mjúk, en það sem ég áttaði mig ekki á
fyrr en seinna, var að persónuleiki minn
býður ekki upp á annað en að dramatíkin
fái að fylgja með. Hún er full af bossanova
og tangóum, blönduð og létt stemnings-
plata, en samt sem áður svolítið tregafull.
Jú, það er hægt að dilla sér við hana. Hún
er tilvalin til að hafa undir eldamennskunni
þegar maður á von á elskuhuga sínum í
mat. Ég gef hana út sjálf, þessi plata er af-
mælisgjöf frá mér til mín. Ég leitaði í vina-
hópinn eftir aðstoð og við tókum upp í ein- l
um hvelli á þrem dögum. Það er góð grúppa
sem stendur að verkinu með mér og góð
sveifla í henni. Það eru atvinnutónlistar-
frömuðir eins og Aðalheiður Þorsteinsdótt-
ir píanisti, svo eru þeir sem eru tónlistar-
frömiðir í hjáverkum eins og Páll Torfi Ön-
undarson læknir, Tómas R. Einarsson,
Sveinbjörn I. Baldvinsson skáld og Þorbjörn
Magnússon víninnflytjandi. Við stóðum öll
í að semja og útsetja lög og þýða texta.“
Allir textar á íslensku, auðvitað?
„Já, allir textarnir eru á íslensku. Svo
erum við með gamla heiðursgesti, Sigvaldi
Kaldalóns og Árni Björnsson eiga lög á
plötunni og Davíð Stefánsson á einn texta.
Tíu af fjórtán lögum eru aukinheldur ís-
lensk. Ætli niðurstaðan verði ekki einhvers
konar þjóðlegt dillibossanóva.“
!
EM