Vera - 01.10.1997, Page 51
Húsbréfakerfið
Notaðar íbúöir
Hvernig fara íbúðarkaup fram?
0
é
é
o
é
Greiðslumat
Fyrsta skrefið er að sækja um
skriflegt mat á greiðslugetu hjá
viðurkenndri fjármálastofnun,
t.d. banka, sparisjóði eða verð-
bréfafyrirtæki.
Fasteignamarkaöur
Umsækjandi skoðar sig um á
fasteignamarkaðnum í leit að
notaðri íbúð.
Kauptilboð gert
Við gerð kauptilboðs í notaða íbúð
getur húsbréfalánið numið allt að
70% af kaupverði íbúðarinnar við
fyrstu íbúðarkaup, en annars 65%
af kaupverði.
Umsókn um húsbréfalán
Þegar seljandi hefur gengið að
kauptilboði, leggur kaupandi inn
umsókn um húsbréfalán ásamt
greiðslumati og kauptilboði til
Húsnæðisstofnunar.
Mat Húsnæðisstofnunar
Meti stofnunin kauptilboðið
lánshæft fær íbúðarkaupandinn
afhent fasteignaveðbréf til undir-
ritunar, útgefið á nafn seljanda, og
hægt er að ganga frá kaupsamningi.
1>
o
ó
ó
Kaupsamningur
Þvínæst er kaupsamningur
undirritaður.
Mjög óvarlegterad undirrita kaup-
samning áður en samþykki Hús-
næðisstofnunar fyrir kaupum á
fasteignaveðbréfi liggur fyrir. Með
undirritun kaupsamnings eru
kaupin orðin bindandi og fyrir-
varinn um samþykki stofnunar-
innar fyrir kaupunum niður fallinn.
Kaupsamningi þinglýst
Kaupandi lætur þinglýsa kaup-
samningi og kemurafriti til seljanda.
Fasteignaveðbréfi þinglýst
Kaupandi lætur þinglýsa fast-
eignaveðbréfi hjásýslumanni og
afhendir það síðan seljanda.
Afgreiðsla húsbréfa
Húsnæðisstofnun kaupir fasteigna-
veðbréf seljanda og greiðir fyrir það
með húsbréfum.
Veðdeild Landsbanka íslands annast
þessi viðskipti. Eftir að húsbréfa-
flokki er lokað geta þau ekki
farið fram.
Greiðslur af húsbréfaláni
hefjast
Veðdeild Landsbanka íslands
innheimtir afborganir af fast-
eignaveðbréfum fyrir Húsnæð-
isstofnun. Greiðslur hefjast á 3.
almenna gjalddaga frá útgáfudegi
þess og gjalddagar eru 15. hvers
mánaðar.
/ mörgum tilfellum sjá
fasteignasalar alfarið um alla
þætti við íbúðarkaup eða frá
þvíað kauptilboð er gert, fram
að afhendingu húsbréfa.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
SU0URLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI: 569 6900 (kl. 8-16) • BRÉFASÍMI: 568 9422
GRÆNT NÚMER: 800 6969