Vera - 01.12.1999, Blaðsíða 7
I
a T V I N N U J—L F I N M
Impra er ný þjónustumiðstöð frum-
kvöðla og fyrirtækja sem tók til
starfa á Iðntæknistofnun siðastliðið
/ bókinni Atvinnurekstur kvenna er að finna
niðurstöður nefndar sem mat þörf fyrir sérstakar
stuðningsaðgerðir sem tækju mið af þörfum
kvenna i atvinnurekstri.
VERA • 7
Fyrsti handhafi FKA viðurkenningarinnar var Hillary Clinton. Við afhendinguna, f.v. Brynhildur Þorgeirs-
dóttir listakona, Edda Sverrisdóttir i Flex, Hillary, Jónina Bjartmarz formaður FKA og Dagný Halldórsdóttir
i Skimu.
vor. Þar er sérstaklega miðað að því
að þjónusta athafnakonur og stuðla
að þekkingaruppbyggingu þeirra.
Lögð er áhersla á að veita konum
sem hyggja á atvinnurekstur aðstoð
við stofnun fyrirtækis. Tilgangurinn
er fyrst og fremst sá að gera konur
færari um að vinna að sinni hug-
mynd, leiðbeina þeim um hvar hægt
er að afla sér þekkingar og koma á
samstarfsneti milli kvenna í sam-
tekur að sér ábyrgð á lántökum til helmings á við
banka. Að mati Jónínu hefur kynning á þessum
sjóði verið of lítil sem sýnir sig m.a. í því að lána-
möguleikar þar eru ekki að fullu nýttir.
I öðru lagi að koma á fót upplýsingamiðstöð
fyrir atvinnurekendur sem legði áherslu á að
styrkja konur, vegna þess hvað þær eru fáar, en
væri að öðru leyti fyrir bæði kynin. „Þetta hefur
verið gert með stofnun IMPRU, sem er þjónustu-
miðstöð fyrir fyrirtæki og frumkvöðla og hefur
aðsetur á Iðntæknistofnun. Þar starfar góður
hópur af faglærðu fólki og meðal þeirra er Hulda
Halldórsdóttir sem er I hlutastarfi fyrir FKA.
Þriðja tillaga nefndarinnar var svo að stjórn-
völd myndu styðja við stofnun félags kvenna I at-
vinnurekstri. Félagið myndi síðan starfa sjálfstætt
að hagsmunamálum kvenna I atvinnurekstri en
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið aðstoða við
stofnfundinn og styrkja rekstur félagsins og starf-
semi næstu tvö til þrjú árin, m.a. með starfs-
manni. Síðan er meiningin að félagið bendi á
hvað þurfi að gera enn frekar til að efla eigin at-
vinnurekstur kvenna, þ.e. bæði til að fjölga fyrir-
tækjum kvenna og stuðla að því að þau sem fyrir
eru eflist og dafni."
FKA viðurkenningin
Jónína segir mikilvægt að konur í atvinnurekstri
verði sýnilegri en þær hafi verið, m.a. til að vera
öðrum konum fyrirmyndir. Þegar haldnir eru
fundir f FKA er fundarstjóri og fyrirtæki hennar
auglýst sérstaklega og fyrirhugað er að kynna fé-
lagskonur í Frjálsri verslun á næstunni. Stjórn FKA
ákvað í sumar að veita viðurkenningu árlega til
aðila sem hafa unnið sérstaklega vel að hagsmun-
um kvenatvinnurekenda og verið þeim hvatning
eða fyrirmynd.
„Við ákváðum að einskorða þetta ekki við
bærilegri stöðu. Konur sem þegar
eru í atvinnurekstri geta einnig feng-
ið leiðsögn varðandi framtíðarmögu-
leika fyrirtækja sinna. Þá er miðað að
því að veita persónulegan stuðning
og hvatningu, auka hæfni í áætlana-
gerð og stjórnun og koma á sam-
starfsneti kvenna í atvinnurekstri.
Impra er leiðandi í mótun stuðn-
ingsverkefna fyrir konur í atvinnu-
rekstri, hvetur þær til nýsköpunar og
er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar
fyrir konur. Nýverið var farið af stað
með verkefnið „Reynslunni ríkari",
fræðsluverkefni ætlað konum á
landsbyggðinni. Þegar hafa á þriðja
tug kvenna tekið þátt í verkefninu
og sýna kannanir mikla ánægju með
það.
Jafnframt rekur Impra fjölmörg
verkefni fyrir Nýsköpunarsjóð sem
eru ætluð einstaklingum og fyrir-
tækjum um land allt. Heimasíða
Impru er á slóðinni www.impra.is
og eru netföng starfsmanna þar. All-
ir sem áhuga hafa eru hvattir til að
hafa samband.
konur, það er sem sé mögulegt að karlmaður fái
þessa viðurkenningu því þeir geta að sjálfsögðu
unnið málefnum okkar gagn, og eins fyrirtæki
eða stofnun. Hins vegar var enginn vafi í okkar
huga þegar við vissum að Hillary Clinton væri
væntanleg til landsins að veita henni fyrstu viður-
kenninguna. Hvergi í heiminum hefur verið stofn-
aður annar eins fjöldi af fyrirtækjum kvenna og í
Bandaríkjunum. Konur hafa stofnað þar fleiri
fyrirtæki en karlar undanfarið, enda hefur Clinton
stjórnin unnið markvisst að því að hvetja konur til
þess og þar vitum við hvaða áhrif Hillary hefur
haft, fyrir utan allt sem hún hefur gert fyrir hags-
munamál kvenna almennt. Sjálf er ég mikill aðdá-
andi hennar eftir að hafa lesið bók hennar, It
takes a village. Þar lýsir hún sýn sinni á sam-
félagið, hugsjón sinni fyrir betri heimi og sam-
ábyrgð samfélagsins. Hún leggur t.d. áherslu á
samfélagslega ábyrgð fyrirtækja sem mér finnst
mjög athyglisverð."
I stjórn FKA sitja auk Jónínu: Aðalheiður Héð-
insdóttir, Kaffitári ehf., gjaldkeri; Dagný Halldórs-
dóttir, Skimu ehf., varaformaður; Edda Sverris-
dóttir, Versluninni Flex, meðstjórnandi; Hansína B.
Einarsdóttir, Skref fyrir skref ehf., meðstjórnandi;
Hildur Petersen, Hans Petersen hf., ritari og Linda
Pétursdóttir, Baðhúsinu ehf., meðstjórnandi.