Vera


Vera - 01.12.1999, Side 12

Vera - 01.12.1999, Side 12
Skapandi og gefandi félagsskapur „Þegar ég heyrði fyrst um Netið kom upp mynd í huga mér af skapandi kon- um. Netið er hvetjandi fyrir konur sem þurfa hvatningu og einnig gefandi. Mórallinn og samkenndin skapa þá til- finningu," segir Anna Laxdal, skrifstofustjóri á rannsóknastofu í meinefnafræði á Land- spítalanum, en hún er nú tengill í stjórnunarhóp Netsins. „Ég kynntist Netinu árið 1990 í gegnum kunningjakonu rhína sem þá var komin á kaf í þennan félagsskap og hún bauð mér á fund. Mér fannst svo- lítið skrítið að mæta á fundi enda hef ég aldrei tekið beinan þátt I svona fé- lagsstarfí, en þetta þótti mér áhugavert. Þarna voru konur á ýmsum aldri að gera hluti sem ekki gerast nema I samhentum hópi. Á fundum voru fluttir afar forvitnilegir fyrirlestrar og þar rann fram fróðleikur sem erfitt er að nálg- ast annars staðar. Síðan kynntist ég konunum betur og mér þótti bæði fróð- legt og gaman að hlusta á önnur og um leið ný sjónarmið, t.d. um stöðu kvenna á vinnumarkaðinum. Félagsskapurinn er mjög sterkur og ég hef eign- ast góðar vinkonur í hópnum. Það hefur skipt mig miklu máli að víkka þannig vinahópinn." Grasrótarhreyfing „Það hefur styrkt mig að vera í Netinu og vissulega hef ég þroskast á þess- um níu árum sem ég hef verið í félagsskapnum. Þar safna ég alls konar þekk- ingu, fæ hugmyndir og þróa þær með samsuðu frá öðrum. Við höfum verið mjög nánar, það hefur gefið mér mjög mikið og allur jákvæður þroski gagn- ast manni líka í starfi." Anna telur að það skipti miklu máli að Netið haldi áfram að starfa. „Þó sumar konur í viðskiptahópi Netsins séu einnig í FKA, þá er það allt annar fé- JVœrtwv. 'um/7 tma tneð nuddi Grœöandi nuddolíur -j(tfb/ía Qfóú'/iio/íu tVfö/áíj/'&iMo/ía Yndislegar olíur úr lífrænt ræktuðum og villtum jurtum. Olíurnar fást m.a. í heilsubúðum og apótekum um land allt, þar liggja frammi bæklingar með leiðbeiningum um notkun. Framleiðandi: MóSr Jörð Vallanesi, FljótsdalshéraS. Dreifing: MóSr Jörðog Lyfjaverslun íslands. ^//Vrw /'œ/t/n/r e/' /id//ú/'iii) e/'/t (// lagsskapur og nokkrar Netkonur í stjórnunarhópi sækja einnig félagsskap í til dæmis Lionessur, Soroptimista o.fl. Þá er það nándin í Netinu sem færir okk- ur aðrar vlddir á tilveruna. ( báðum hópum Netsins leita konur hver til annarrar eftir aðstoð við hvers konar vinnu, skiptast á hugmyndum og alls konar þjónustu sem hægt er að veita í það og það skiptið. Samkennd er mikil hjá konum í Netinu og sem dæmi um það og styrk hópsins vil ég endilega benda á eitt gott dæmi þar sem ein úr hópnum hafði lengi látið sig dreyma um að stofna sína eigin versl- un en einhvern veginn ekki lagt í að fara alla leið. En fyrir hvatningu fré kon- unum I Netinu varð þessi draumur hennar að veruleika. Netið er upphaflega grasrótarhreyfing og þannig viljum við hafa það áfram," segir Anna en hún telur mikilvægt að hafa í huga að Netið sé ekki staðnað fyrirbæri. „Við reyn- um að aðlaga okkur tímanum. Þær reglur sem við höfum gefið okkur hafa alltaf verið sveigjanlegar." Við skiptum allar máli, við erum Netið Anna segir að innan stjórnunarhópsins sé að mörgu leyti öðruvísi fundað en hjá viðskiptahópnum. „Við nálgumst hlutina á annan hátt en þær. Flestar erum við í einskonar stjórnunarstöðum og er oft spjallað um vinnuna, hvað við séum að gera, um skipulagningu og verkefni. Þá fylgjumst við með nýj- ungum og öðrum breytingum hver hjá annarri. Maður er alltaf að reyna að endurnýja sig og sækir styrk og upplýsingar hjé hinum." Anna gegnir nú starfi tengils fyrir stjórnunarhóp, en hún leggur áherslu á að Netið byggist upp á samvinnu. „Hópurinn kemur með hugmyndir en tenglarnir eru eins og útsendarar fyrir hann, þeir skipuleggja starfið út á við. Netið gengur út á það að við allar skiptum máli, að allar konurnar séu virkar. Við erum Netið." Netkonur leggja mikið upp úr því að fá fjölbreytt úrval af fyrirlesurum á fundi. „Oftast fáum við konur," segir Anna. „Konur sem hafa frá einhverju að segja og geta miðlað af reynslu sinni. Mikil breidd er í vali á fyrirlesurun- um. Einn veturinn fengum við t.d. til okkar konur sem hafa menntað sig á listasviðinu og vinna við það fag. Annan veturinn var þemað konur sem hafa lokið doktorsgráðu. Einnig höfum við fengið til okkar erlenda fyrirlesara sem hafa verið staddir hér á landi og við frétt af þeim. Þá höfum við fengið til okk- ar miðil, heimspeking, blaðamann, borgarritara og marga fleiri. Þá hélt Vig- dís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti (slands einnig fyrirlestur hjá okkur og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri hefur tvisvar verið gestur okkar. Einu sinni fjallaði hún um konur og Efnahagsbandalagið og í annað sinn kom hún tíl okkar eftir að hún varð borgarstjóri og kynnti innviði starfsins. Haust- og vorferðir eru hluti af dagskré Netkvenna en þar er reynt að blanda saman skemmtun og fróðleik. „í síðustu haustferð fórum við í Bláa lónið og þá hélt m.a. Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt fyrirlestur um hönnun og uppbyggingu nýja Bláa lónsins. í vorferðunum reynum við að gera eitthvað „öðruvísi", lögð er áhersla á útivist og í síðustu vorferð var m.a. siglt í gegn- um Dyrahólaey. Eins og ég sagði áðan þá erum við Netið, við konurnar sem sækjum fundi, hlýðum á fyrirlestra og förum í vor- og haustferðir. Með þvl að vinna saman í Netinu erum við líka að vinna fyrir hver aðra og með hver annarri. Þess vegna geta allar konur sem vilja veita öðrum konum stuðning og styrkja sig félagslega verið þátttakendur í Netinu. Netvinna er kunnátta sem maður lær- ir af reynslu og hún er skemmtileg og gefandi."

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.