Vera


Vera - 01.12.1999, Blaðsíða 17

Vera - 01.12.1999, Blaðsíða 17
Fagfólk sem vinnur með fjölskyldur og börn horfa almennt á vanraeksluna sem hina miklu meinsemd nútímans, vanrækslu gagnvart börnum, foreldrum og fjölskyldum sem birtist á ýmsan hátt í menningu okkar og þjóðfélagsgerð. og erum meðvituð um að nekt og erótík á í raun lítið skylt við slíka hluti. Samt hefur klæðskerum klámmarkaðarins á Islandi tekist að markaðssetja sína vöru í gagnsæju dulargervi listdans. Þegar það blasir einnig við að klámiðnaðurinn er að gera út á neyð kvenna þurfum við alvarlega að fara að velta fyrir okkur hvers konar „menn- ingu" og viðhorf við erum að rækta með okkur ( okkar samfélagi, hvaða skilaboð við erum að gefa börnum okkar og unglingum, hvers konar jarðveg við erum að skapa fyrir lífstréð okkar, fjölskyld- una. Allar fjölskyldur fá margskonar þroskaverkefni, áföll og kreppur að glíma við og hafa að einhverju leyti mismunandi forsendur og möguleika vegna innri og ytri aðstæðna til að takast á við marg- þættan vanda lífsíns. Sem einstaklingar höfum við fengið mismun- andi veganesti með okkur út 1 llfið og höfum þannig mismunandi forsendur til að fóta okkur og halda jafnvægi á álagstímum og læra að takast á við hin neikvæðu öfl tilverunnar þannig að við lendum ekki sjálf inn í niðurrifsvítahring sjálfsniðurlægingar og flótta. Klámvæðingin mengar Við þörfnumst samfélags sem styrkir okkur í að læra að taka ábyrgð á okkur sjálfum, auka okkar lífshæfni, þ.e. getuna til skapandi starfs, getuna til að læra að elska okkur sjálf og aðra, þróa djúp og náin til- finningatengsl við aðra manneskju, njóta heilbrigðra ásta og gleði, taka ábyrgð á eigin heilsu. Við þörfnumst samfélags sem kennir okk- ur að virða bæði kynín jafnt, hvort sem er til launa, ásta eða annarra þátta tilverunnar. I viðskiptaheimi klámsins virðast engin siðferðileg lögmál gilda. Konur og kvenleikinn er notaður á niðurlægjandi hátt ( gróðaskyni sem söluvara í nafni frelsis. Kynlífið og hið nána í samskiptum kynj- anna afskræmt og niðurlægt. Það alvarlegasta er þó kannski að þeim skoðunum er óspart komið á markað að þetta sé það sem nú- tíminn kjósi, þetta sé löglegt, konurnar velji þetta sjálfar og að eftir- spurnin réttlæti og sanni ágæti þessa alls. Klámvæðingin og hugarfarið sem henni fylgir er farið að menga allt okkar líf og hefur auðvitað alvarlegustu áhrifin þar sem síst skyldi, á óþroskaða, unga eða veika einstaklinga og inn í fjölskyldu- tengsl þar sem ærinn uppsafnaður vandi er fyrir. Mér finnst mikilvægt að við reynum að taka heildstætt á þessu máli, að hvert og eitt okkar finni sitt ábyrgðarhlutverk í því. Það er gleðilegt að þagnarmúrinn er rofinn, umræðan farin af stað en við þurfum að gera okkur grein fyrir að hér er viðfangsefni sem reynir verulega á hæfni okkar og getu að skapa samfélag sem við sættum okkur við. Skoðanakannanir sýna að mikill meirihluti landsmanna er á móti þessari klámvæðingu en það þarf samstillt átak og aukna meðvitund til að snúa þessari óheillaþróun við. Bæjaryfirvöld eru þegar byrjuð að kanna hinar lagalegu forsendur og verður vonandi eitthvað ágengt í því en gætu í millitíðinni látið herða eftirlit með þeim stöðum sem bjóða upp á klámsýningar. Fjölmiðlar gætu aukið gagnrýna og málefnalega umfjöllun um þessi mál og bundist sam- tökum um að auglýsa ekki klámið og við bæjarbúar almennt staðið betur á okkar verði og gert þær kröfur til umbjóðenda okkar ( bæjarstjórn og á Alþingi að stuðla markvisst að aukinni fjölskyldu- vernd og framtíðarheilbrigði í samfélaginu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.