Vera


Vera - 01.12.1999, Page 32

Vera - 01.12.1999, Page 32
Grein sex kveður á um að aðildaríki sáttmálans skuli gera allar nauðsynlegar ráðstafanir, með lagasetningu ef þörf krefur, til að koma í veg fyrir verslun með konur og misnotkun þeirra í formi vændis. manna um starfsemi nektardansstaða á Islandi segir m.a. „að sambandið hafni öllum tilburðum hins opinbera í þá átt að takmarka athafnafrelsi einstaklinganna." (Mbl. 22.11.1999). Slíkar fullyrðingar eru vart svaraverðar því í raun lýsa þær eingöngu fávisku þeirra sem í ofan- nefndri stjórn sitja um athafnafrelsi einstaklings- ins, eða réttara sagt um skerðingu frelsis milljóna kvenna og barna um heim allan. Fréttatilkynning þessi var send til fjölmiðla eftir að fjórar konur sem unnið höfðu á svokölluðum nektardansstöð- um höfðu leitað á náðir Kvennaathvarfsins þar sem þær höfðu verið misnotaðar í formi vændis. Tuttugu ár eru sfðan stofnaður var alþjóðasáttméli um afnám allrar mismununar gegn konum. Nokkrum árum seinna lögfesti Alþingi Islendinga umræddan sáttmála. Sáttmáli um afnám allrar mismununar gegn konum Sáttmálinn var gerður á allsherjarþingi Samein- uðu þjóðanna í september 1979 og fagnar því á þessu ári 20 ára afmæli sínu. Sáttmálinn er al- þjóðasamningur sem hefur að markmiði að tryggja aukin réttindi kvenna. Stofnað var til hans með það í huga að meirhluti kvennna í þessum heimi býr ekki víð þau mannréttindi sem Mann- réttindasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveður á um. í sáttmálanum segir að aðildarríki Sameinuðu þjóðanna skuli virða réttindi kvenna í þágu lýð- ræðislegra stjórnarhátta. Ríki skulu ennfremur koma í veg fyrir pólitíska mismunun kynjanna á öllum sviðum þjóðfélagsins til þess að bæði kynin fái notið þeirra mannréttinda sem eru ofarlega í ákvæðum stjórnarskráa þeirra ríkja heims er kenna sig við lýðræði. Stjórnvöld eru þess vegna hvött til að grípa til allra hugsanlegra ráða til að rétta megi hlut kvenna um vfða veröld. Sáttmál- inn öðlaðist gildi í september 1981. í desember 1998 höfðu 163 lönd skrifað undir sáttmálann. Island skrifaði undir hann 24. júní árið 1980 og lögfesti hann þann 18. júnf 1985. Sjötta grein sáttmálans fjallar um vændi og al- þjóðaverslun með kynlífsvarning (trafficking), sem oftar en ekki er aðeins annað orð yfir lifandi ein- staklinga, konur og börn. Grein sex kveður á um að aðildaríki sáttmálans skuli gera allar nauðsyn- legar ráðstafanir, með lagasetningu ef þörf krefur, til að koma í veg fyrir verslun með konur og mis- notkun þeirra í formi vændis. Grein sáttmálans fjallar að mestu um aðgerðir gegn þeim sem með einhverju móti stuðla að eða hagnast á misnotk- un annarra í formi vændis. Framkvæmdaáætlun kvennaráðstefna Sam- einuðu þjóðanna, sem Island er fullgildur aðili að, fjallar einnig um alþjóða verslun með kynlffsvarn- ing. Kvennaráðstefnan í Peking árið 1995 ályktaði nú síðast um málið með eftirfarandi hætti: Kvennaráðstefna Sameinuðu Þjóðanna hvetur aðildarriki sáttmálans um afnám allrar mismunun- ar gegn konum að lögfesta og fylgja grein sex eftir með sérstökum lagasetningum ef þörf kref- ur. Til sérstakra aðgerða skal gripið til að aðstoða fórnarlömb alþjóða verslunar með kynlifsvarning og til að refsa þeim er hana stunda. Stjórnvöld aðildarrikja stofnunarinnar skuldbinda sig til að veita fórnarlömbum verslunar með kynlifsvarning heilbrigðisþjónustu, sálfræði- og félagsráðgjöf byggða á samvinnu rikisvaldisins og óháðra mannréttindahreyfinga. Löggæsluyfirvöld skulu ennfremur veita fórnarlömbum vitnavernd, óski einstaklingar sem misnotaðir eru í vændi lögsókn- ar í máli sínu. Alþjóða verslun með konur hefur verið við- fangsefni fjölmargra alþjóðaráðstefna sem haldn- ar hafa verið síðastliðin ár í umboði Sameinuðu þjóðanna eða óháðra félagasamtaka og mann- réttindahreyfinga og hafa ályktanir þeirra byggt á sáttmálanum um afnám allrar mismununar gegn konum. Þrátt fyrir athyglina sem vandamálið hef- ur fengið á alþjóðavettvangi er Ijóst að mikil vinna er framundan, einna helst I þá átt að veita stjórn- völdum aðildarríkja sáttmálans aðhald til að fylgja ákvæðum hans eftir og sýna yfirlýstan vilja sinn í verki. Eins og fram hefur komið eru íslensk stjórn- völd skuldbundin af alþjóðasáttmálum til þess að grípa til aðgerða gegn kynlífsiðnaðinum sem nú þrífst hér á landi, með lagasteningu ef þörf kref- ur. Lagasetning skal taka mið af mannréttindum þeirra kvenna sem orðið hafa fórnarlömb vændis sem rekið er af alþjóða glæpahringjum og íslenskir aðilar hagnast af. I heimildum um kynjasamskipti í Austur-Evr- ópu er því oft haldið fram að með tilkomu lýð- ræðislegra stjórnarhátta muni pólitísk mismunun kynjanna, sem bæld var niður á tímum ríkissósíal- ismans, verða sýnilegri og því einfaldara að ráðast að rótum vandans. Það er mikill misskilningur að lýðræði og frjálst markaðshagkerfi séu eitt og hið sama, eins og hefur verið svo áberandi í þjóðfé- lagslegri umræðu um kynlífsiðnaðinn á Islandi. Hins vegar er rétt að lýðræðislegir stjórnarhættir bjóða upp á óháðan pólitískan vettvang þar sem ólík sjónarmið mætast með það að markmiði að veita stjórnvöldum aðhald til aðgerða sem þau hafa skuldbundið sig til. Rósa Erlingsdóttir, stjórnmálafræðingur, skrifaði lokaritgerð um stöðu kvenna í Austur-Evrópu á tímum stjórnarfarsbreytinganna. Samfara M.A námi stundaði hún samanburðarrannsóknir á þróun stjórnarhátta frá einræði til lýðræðis. 32 • VER A

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.