Vera - 01.12.1999, Page 43
Venjulegur meðaljón fer því létt með að eyða
drjúgum hluta af matarpeningum mánaðarins á
einni kvöldstund. Enginn hörgull virðist þó vera á
viðskiptavinum, enda karlmannlegt að geta boð-
ið erlendum konum drykk og upp í dans - ein-
hverstaðar í öllum herlegheitunum situr einhver
og malar gull.
Islenskt „þorpssamfélag" þolir þó ekki enn
viðvarandi og sýnilega stétt kynlífsverkafólks. (Hér
er ég að þýða enska orðið sex workers sem nær
yfir alla þá sem vinna í einhverskonar kyn-
lífstengdum iðnaði, allt frá topplausum börum og
yfír í götuvændi.) Súludansstaðirnir eru því reknir
með farandvinnuafli, nýjar stúlkur koma og gaml-
ar fara, svo hratt að þær ná aldrei að verða sýni-
legir einstaklingar í þjóðfélaginu með andlit og
nafn. Engum dettur í hug að kenna þeim íslensku,
sýna þeim Þingvelli, Gullfoss og Geysi eða bjóða
þeim upp á hákarl og brennivín, eins og þó þykir
jafnan hæfa að gera við útlenda gesti.
En þó nöfn og andlit stúlknanna renni saman
í eitt, hafa líkamar þeirra og tilvist valdið miklu
fjaðrafoki hjá þjóðinni. Stjórnvöldum og sóma-
kærum borgurum stendur stuggur af nýrri ásýnd
höfuðborgarinnar og fáir Akureyringar eru stoltir
af vafasömu heimsmeti. Innlendir og erlendir
kvenskörungar hafa hinsvegar áhyggjur af velferð
og aðbúnaði hinna erlendu stúlkna. Þær sem hafa
nefnt vændi sem mögulegan fylgifisk þessarar
nýju dansmenningar hafa verið úthrópaðar sem
nornaveiðarar og þeim borið á brýn að vilja raska
lögmáli hins frjálsa markaðar með slíkum aðdrótt-
unum. í öllu hafaríinu veit enginn hvað skal halda
um blessaðar stúlkurnar. Eru þær fórnarlömb fá-
tæktar og óprúttinna „þrælasala" sem nota sér
eymd og hremmingar heima fyrir? Eða eru þær
óskammfeilnar stúlkukindur sem kinnroðalaust
berstrípa Kkama sína og hverfa síðan af landi
brott með vasana fulla af þjóðartekjum Islend-
inga? Það væri tímanna tákn ef jólasveinar og
erótískar dansmeyjar tækju höndum saman við
æsku landsins um þessi jól og gengju í kringum
einiberjarunn til móts við nýja öld.
Telag um
Maríusetur
Félag um Maríusetur verður stofnað í Þjóðleikhús-
kjallaranum mánudaginn 27. desember kl. 20.
Góð skemmtiatriði og góðar fréttir.
Munið að þetta er setur allra kvenna.
Kosið verður tólf kvenna ráð til að stjórna
félaginu og lög verða samþykkt.
Mætum allar.
Nefndin.
Gefum
okkur Öllum betri framtíð
wm
Ert þú aflögufær?
Hjálparstarf kirkjunnar beinir söfnunarfé
• til bágstaddra íslendinga
• til fólks sem býr við örbirgð í þriðja heiminum
• á átaka- og hamfarasvæði um allan heim
KEJ
HJÁLPARSTARF
KIRKJUNNAR
Gíróseðlar liggja frammi í öllum bönkum,
sparisjóðum og á pósthúsum.
Þú getur þakkað
fyrir þitt hlutskipti
VERA • 43