Vera


Vera - 01.12.1999, Síða 57

Vera - 01.12.1999, Síða 57
jólabœkurnar B ö K A D ö M A -B- eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur Bjartur 1999 Það er alltof sjaldgæft að ungar íslenskar kon- ur þeysi fram á ritvöllinn og sýni hvað í þeim býr. Þess vegna er sérlega ánægjulegt að Guðrún Eva sendi nú frá sér sína aðra bók, en á síðasta ári kom út eftir hana smásagnasafnið Á meðan hann horfir á þig ertu María mey. I ár er það skáldsag- an Ljúlí Ijúlí. Þetta er sagan af henni Sögu litlu sem er svo ung og óreynd enn og barmafull af sakleysi og ósnertum ávöxtum. Og hún veit ósköp vel (og kann því svo sem ekkert illa) að hún er litla Lólít- an sem hákarlarnir og úlfarnir eru svo sólgnir í. Henni finnst ekkert vont að þeir þrá að gleypa hana í sig í einum sætum munnbita. Hún vill gjarnan láta borða sig. Þeir sem hafa tapað þvi sem enn býr í hennar barnslega kroppi og hugs- andi haus vilja auðvitað fá að dreypa af vörum hennar á löngu týndum veigum. Fallna engla dreymir jú um að baða sig í ósnertri morgunmjöll. En það getur líka verið þreytandi að vera álitin barn þegar eitthvað allt annað logar þar fyrir inn- an. Og litla sæta Saga þráir að syndga því sá sem er hreinn vill verða skitugur. Hún hvorki kann né vill spara sitt heita hjartablóð. Hún vill svo gjarnan finna til. Hún sér í, hillingum allt sem er bannað eða á skjön við hið viðurkennda og hún er stútfull af viðþolslausu lífi og tilfinningum í öllum regn- bogans litum sem hún veit ekki alveg í hvaða far- veg skal beina. Hún er í stöðugum slagsmálum við engla, púka og aðrar furðuskepnur sem hlaupa um í kollinum á henni. Hún vill vera óþekk en hún þráir llka að lifa fallega, sem getur verið ansi erfitt í heimi sem er fullur af fólki með miður fagrar hugsanir. Hún kastar sér óhikað út I djúpu laug- ina, bara ef hana langar, því hún trúir því í sakleysi sínu og reynsluleysi að það sé henni fyrir bestu að gera aðeins það sem hana langar til. Og hún trú- ir líka í sakleysi sínu að til sé einhver einn og end- anlegur sannleikur. Af þessu öllu leiðir að hún rek- ur sig á marga veggi og kútveltist kveinandi í klassískri tilvistarkreppu þess sem stendur á tví- tugu, með hjartað utanáliggjandi. Hún er sjálf- hverf og skoppar á milli hroka og auðmýktar og skilningarvitin eru svo ofurnæm að það er ýmist vítiskvöl eða alsæla. Hún er perla hún Saga og mér þótti strax vænt um hana og ekki kom það mér svo sem heldur á óvart að hún rataði þá leið sem svo margri perl- unni er tamt: I svínskjaft. En hún er sterk þessi stelpa og lætur ekki svo auðveldlega bryðja sig í bita. Kannski þarf hún bara að smakka, rétt eins og svínin og ekki er það sjálfgefið hverjum blæð- ir þegar bitið er. Saga er stúlka sem hefur ekki alist upp við hefðbundnar aðstæður. Nokkrir karl- kyns félagar (þar á meðal meintur faðir) hafa fóstrað hana eftir sínum reglum (eða óreglum). Þeir eru á skjön við uppalendanormið og gróflega gefnir fyrir sopann. Sæta litla Saga hefur ekki einu sinni gengið í leikskóla (sem þykir víst nauðsynlegt ( dag). En af misjöfnu þrffast jú börnin best, sagði hún amma mín alltaf, og víst er að þó Saga hafi kannski ýmsa djöfla að draga vegna bakgrunns síns, þá hefur hún grætt meira en tapað á sínum uppeldisviðskiptum. Hún hefur ýmislegt fram yfir jafnaldra sína sem gerir hana að þeirri perlu sem hún er og á eftir að koma henni vel í lífinu. Hún hefur bara ekki ennþá áttað sig almennilega á því. Margur mun eflaust fussa og sveia yfir óheil- næmu heimilishaldinu en ég hafði mjög gaman af þessari sérstæðu fjölskyldu og dæmalausum sam- skiptum og samtölum meðlima hennar, sem ein- kennast oftar en ekki af gráglettni. Þau leika sér óspart með tungumálið, snúa því við og láta það standa á haus með orðaleikjum og rími. Sérsmíða tunguna eins og margt annað í sínu lífi. Saga er með einhverskonar Línu Langsokks- sindróm, svona kotroskin með fléttur í hárinu og gefur skít I allar reglur. Fullorðið barn sem er svo- lítið pabbalaust. En samskiptaleysi feðginanna ristir ekki djúpt og eg hefði reyndar viljað sjá meira af pabbanum, hann er nánast ósýnilegur og það er of lítið gert úr áhrifum afskiptaleysis hans á stúlkukindina. Við finnum vissulega fyrir því en það hefði mátt hnoða meira deig í kringum það. En kannski lætur höfundur pabbann vísvit- andi vera svona loftkenndan til að lesandinn upp- lifi það sama og Saga: Hún finnur nánast ekkert fyrir þessum föður sínum eða hann fyrir henni, þó þau hafi búið undir sama þaki alla hennar ævi. Ég hefði Ifka viljað að höfundurinn fyllti betur upp í þá eyðu sem mér fannst skapast í sambandi við hver væri blóðfaðir Sögu, þv( á einum stað kemur það berlega fram að þeir gætu allir verið það. Og f framhaldi af því er næsta óeðlilegt hvað þeir láta sér lítið bregða þegar hún fer að sofa hjá einum þeirra. Ef þeir vita með vissu hver faðirinn er hefði það þurft að koma skýrar fram. Það truflaði mig líka svolítið hversu lýsingin á Sögu átti vel við höf- und bókarinnar (dökka þykka hárið og barnslega útlitið) og kápumyndin gæti alveg verið af Guð- rúnu Evu sjálfri (mér skilst að svo sé þó ekki). Sagan af henni Sögu þótti mér skemmtileg af- lestrar. Hún er lipurlega skrifuð og svolítið sérstök að þvi leyti að hún byggist að mestu upp á sam- tölum, en Guðrúnu Evu lætur vel að skrifa samtöl sem oft á tiðum eru full af kaldhæðni, skopskyni og sársauka. Tónninn í þessari bók er ekki ólíkur þeim tón sem hljómar í smásagnasafninu sem kom út í fyrra: Tónn sem er einhverskonar blanda af sakleysi, losta og einmanaleika. Það var gaman að fá að vera með Sögu þetta eina ár I lífi hennar, glugga I dagbókina hennar og fylgjast með því hvernig hún (eins og svo margur) þarf að fara svolítið frá sjálfri sér til að komast að einhverju um sjálfa sig. Það er ástæða til að óska Guðrúnu Evu til hamingju með Ljúlí Ijúlí. Það er vel að verki staðið hjá höfundi sem hefur aðeins þrjá yfir tvítugt og er að senda frá sér sina fyrstu skáldsögu. Kristin Heiða Kristinsdóttir Hrollvekja ór braeea- bveríi Laufey eftir Elísabetu Jökulsdóttur Mál og menning 1999 Laufey er fyrsta skáld- saga Elísabetar Jökuls- dóttur. Frásögnin er í höndum tveggja ung- menna I braggahverfi I Reykjavík á eftirstríðsárun- um og skiptist I stutta kafla þar sem þau segja frá til skiptis. Með þessu skapar höfundur tvö sjónar- horn á umhverfi og atburði sem eru að mörgu leyti ólík, en þó lík. Bæði sjónarhorn koma vel til skila ákveðnum kulda og einmanaleika, þó svo að sögumenn búi við ólíkar aðstæður. Höfundi tekst einstaklega vel að koma ýmsu til skila sem ekki liggur i orðanna hljóðan, sérstaklega í frásögnum Laufeyjar sjálfrar. Þannig skapast til dæmis samúð með ákveðnum aukapersónum án þess að það virðist vera ætlun sögumanna. Þar sem ákveðin tengsl eru á milli sögumanna, en sýn þeirra og fyrirætlanir ólíkar, skapast mikil spenna sem heldur lesandanum í heljargreipum 57 VER A •

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.