Vera


Vera - 01.12.1999, Qupperneq 60

Vera - 01.12.1999, Qupperneq 60
jólabœkurnar B ó K a d Einlæg og meitlnð ljóð Hugástir Ijóð eftir Steinunni Sigurðardóttur Mál og menning 1999 Þegar fólk deyr þá deyr ekki bara fólk með því deyr alheimur af háttalagi, vinnulagi, raddblæ, visku, fávisku. Sérstakur hlátur deyr og bros á sérstökum hraða. Hugástir, nýja Ijóðabókin hennar Steinunnar Sig- urðardóttur, er uppfull af söknuði, trega og hug- leiðingum um hverfulleika lífsins, einsog Ijóðbrot- ið hér að ofan vitnar um. Fólk deyr, ástin hverfur, borgírnar brotna og „þegar komið er í eyðidal er ekkert". Ljóðin eru einlæg og meitluð, hvert orð vandlega valið, hugsunin beinskeytt og myndmál- ið sterkt einsog í Ijóði númer eitt í Brotnum borg- um: / borg númer fjögur er ókleift virki. Fullt af glærum vofum sem búa við ofboðsleg þrengsli. Þangað hefur þú ekkert að gera, ekki aftur. Lítið ber á kaldhæðninni sem oft hefur einkennt Ijóð Steinunnar, en' þó þregður henni fyrir stöku sinnum, næstum einsog óvart: í höfuðborg kaldra sólbaða þar sem konur á nærbuxum leggjast undir hvaða glætu sem er. Borg fyrirferðar: fjallajeppa, árekstra, loftpressuborg. Borg kirkjugarða þar sem hinn látni er SKÁLD og enginn hefur heyrt hans getið. Bókin skiptist í fimm hluta: Nokkrar gusur um dauðann og fleira, Hugástir, Ljóð utan af landi, Tvennur og Brotnar borgir. I fyrsta, öðrum og fimmta hlutanum eru Ijóðin nafnlaus og núm- eruð, I Tvennum eru, einsog nafnið bendir til, tvennur Ijóða með sömu heiti, t.d. Gamlar konur I og Gamlar konur II og I Ljóðum utan af landi ber hvert Ijóð sitt heiti. Hver hluti ber sín sérkenni, bæði í efni og framsetningu, en þrátt fyrir ólík yrkisefni (horfnar ástir, dauðann, frægar borgir, hrútagirðingu, Heklu, o.s.frv.) hafa öll Ijóðin sam- eiginlegan grunntón og mynda sterka heild sem sækir á huga lesandans löngu eftir að lestri lýkur og ekki vafi á því að þessi bók verður dregin úr hillunni aftur og aftur og lesin upp til agna. Best- ir þykja mér fyrsti og síðasti hlutinn, þ.e. gusurn- ar um dauðann og brotnu borgirnar. ( þeim hlut- um er treginn tærastur og myndmálið meitlaðast. Og að mínu mati er þar að finna bestu Ijóð sem Steinunn hefur sent frá sér til þessa. Hinir hlutarn- ir eru síðri, en góðir samt og bókin er heildstæð og vel upp byggð, með ákveðinni stígandi sem magnast hægt og hægt og nær hámarki í loka- Ijóði bókarinnar sem endar á þennan hátt: Ég ber höfuðið hátt, held I einskismanns hönd. Á langri göngu verður fyrir mér garður með hlykkjóttum brjóstsykurbekkjum, sætabrauðshúsi tólfturnakirkjusmiðsins góða og golan í garðinum ber mér að lokum ilminn af elskaðri sál, hún ber mér þytinn af mörgþúsund kossum úr annarri borg, frá árinu fyrir draum. Friðrika Benónýsdóttir, bókmenntafræðingur Saga af illum linga Myrkravél eftir Stefán Mána Mál og menning 1999 Það sem var efst í huga mér eftir lestur á bók Stefáns Mána, Myrkra- n M A B vél, var spurningin hvað er mennska? Ég held að samviskan okkar sé að stórum hluta það sem ger- ir okkur að manneskjum. Kannski dettur mér það helst í hug vegna þess að ofbeldismenn eru yfir- leitt samviskulausir. Hvað það er sem gerir manneskju að ofbeldis- manni veit ég ekki, en við lifum á upplýsingaöld og teljum okkur vita heilmargt t.d. um uppeldis- og siðferðismál. Það er því engin afsökun að fela sig á bak við fáfræðina, það eru bókasöfn á hverju horni ef við höfum viljann til að fræðast. Það eitt að vera einstaklingur krefst þess að taka ábyrgð á eigin lífi og ekki síst á lífi barnanna okk- ar því að þau eru framtíð samfélagsins. Heilþrigt þarn fæðist með hreina vitund og þroskast í gegnum örvun, ást og umhyggju frá umhverfinu, það hefur mikla sköpunarhæfileika og hreina tjáningu. Það hvílir mikil ábyrgð á for- eldrum að koma barni áfallalaust til manns, sér- staklega á þessum tímum sem við lifum á i dag. Ef við stöndum ekki vörð um börnin okkar hver á þá að gera það? Fóstrur leikskólans eða kennarar grunnskólans? ( samfélaginu okkar koma margir að uppeldi barnanna okkar og við sem ábyrgir samfélagsþegnar verðum að höndla þá ábyrgð hvert og eitt með vakandí augum. Stefán Máni segir okkur sögu af dreng sem elst upp við að enginn fullorðinn tekur ábyrgð á eða bregst við tilfinningalegri vanlíðan hans, sem hann sýnir þó á marga vegu. Sagan segir okkur frá því hvernig samfélagið og umhverfið, eins og t.d. leikskólinn og grunnskólinn, tekur þátt í að ala af sér ofbeldismann með þvf að sofa á verðin- um og taka enga ábyrgð. Er athyglisverð lýsingin á því þegar drengurinn kveikir í og fær í fyrsta skipti kynferðislega fullnægingu við að upplifa valdið sem felst í að sjá fólk skelfingu lostið yfir þrunanum. Það sama gerist þegar hann sem full- orðinn maður fer að misnota litlar telpur. Sögupersónan getur á engan hátt tengst öðru fólki tilfinningalega, hann nær í tilfinningar í gegnum valdníðslu og þá helst reiðitilfinningar. Þetta er saga af illum huga, kynferðisofbeldis- manni sem á engan hátt gerir sér grein fyrir því að hann hafi val sem fullorðinn einstaklingur og eru lýsingar trúverðugar. Það hríslaðist um mann hrollur öðru hverju við lesturinn. Sögupersónan er „týpískur" kynferðisofbeld- ismaður, hann fær kynferðislega fullnægingu útúr valdinu sem hann hefur yfir aðstæðum og það hefur ekkert með kynlíf að gera, hann er getulaus kynllfsvera, bæði andlega og Ifkamlega. Skáldsagan Myrkravél er tímabær aðvörun til okkar um að við verðum að vakna sem samfélags- þegnar, standa saman og taka ábyrgð á börnum samfélagsins því svona menn ganga lausir á göt- unum í okkar samfélagi og eru að fremja sálar- morð á börnum. Björg Gísladóttir, starfskona Stigamóta 60 • VERA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.