Vera


Vera - 01.12.1999, Page 63

Vera - 01.12.1999, Page 63
 % h sjóninni eilíflega þakkiát fyrir að gefa mér hann Hilmar minn." Þú giftir þig einhvern tíma á þessum árum? „Já, það gekk ekki upp. Mér finnst það eins og vondur draumur þegar ég hugsa um þetta tíma- bil. Það er orðið mér svo fjarlægt. Ég efast um að við mundum þekkjast þó við hittumst á götu. Við bjuggum aðeins saman í fjögur ár og áttum ekk- ert barn, sem betur fór. Eftir skilnaðinn tók við stormasamt tímabil hjá mér með mikilli drykkju. Oftast gat ég samt haft strákinn minn og honum þótti vænt um mig. Hann mátti líka alltaf gista og vera hjá þeim pabba og mömmu og þau létu sér mjög annt um hann. Nú höfðu þau meiri tíma og efni en á fyrri árum. Ég reyndi oft að hætta í óreglunni og fara í meðferðir- en því miður gafst ég alltaf upp eftir smátíma. Svo kynntist ég Am- eríkana sem ég taldi mig vera trúlofaða. Þá spillti önnur stúlka á milli okkar, sagði mér um hann allskonar tröllasögur, m.a. að hann hefði nauðg- að henni. Sjálfsagt hefur þetta verið tómur upp- spuni, þessi stúlka hefur oftar gert í því að eyði- leggja vonir mínar. En ég tapaði hreinlega allri dómgreind við þetta nýja áfall. Ég var ófrísk en nú vildi ég ekkert annað en fara í fóstureyðingu og dreif það I gegn. Ég get ekki lýst þeim hryllingi. Það ráðlegg ég engri konu, maður iðrast þess alla tíð. Enda keyrði nú um þverbak hjá mér í óregl- unni. Þessi ár eru eins og i móðu. Ég bjó með ein- hverjum strákum tíma og tíma, allt endaði það i upplausn. Loks sáu foreldrar mínir sér ekki annað fært en að láta svifta mig sjélfræði, líka vegna drengsins. Ég veit núna að þeim gekk gott eitt til, en þá varð ég hreint og beint viti mínu fjær af reiði og beiskju. Ég lenti inn é geðdeild og þar kynntist ég seinní manni mínum, sem var i með- ferð sem eiturlyfjasjúklingur. Já, það var þá stað- urinn, munu víst margir hugsa." En þú hefur haldiö að nú væri að birta til? Enn færist þetta daufa bros á andlit hennar. „Já, víst hélt ég það. Við héldum það bæði. Víð ætl- uðum að byrja frá grunni, byggja okkur upp nýtt líf saman. Og í fyrstu leit út fyrir að allt gengi vel. Enn á ný varð ég ófrísk. Þvílík gleði. Þegar ég fékk að vita það sveif ég á lækninn og faðmaði hann og kyssti. Hann hefur áreiðanlega haldið að ég væri alvarlega biluð. Já, það leit úr fyrir að nú ætl- aði allt að ganga vel. Þó varð ég fljótt vör við nokkra ofbeldishneigð hjá manni mínum. En ég var svo illu vön að ég hélt að það væri bara eðli- legt að hann gæfi mér utan undir öðru hvoru. Við eignuðumst tvo drengi, maðurinn minn var á sjó og hafði góðar tekjur. Og ég átti mjög góða vinkonu sem ég reyndar kynntist gegnum Félags- málastofnun. Það atvikaðist þannig að þegar elsti drengurinn minn fór I skóla vildi ég gjarna hjálpa honum með heimanámið, svo hann lenti nú ekki Rafnhlldur var aöeins 11 ára þegar hún byrjaði að drekka. í vítahring eins og ég. En nú komst ég auðvitað að því að ég kunni ekkert sjálf. Svo ég fór til þeirra á Félagsmálastofnun og bað um hjálp við þetta við- fangsefni. Þá kom Soffía til mín, guð blessi hana. Síðan hefur hún alla tíð verið mín besta vinkona og staðið með mér gegnum þykkt og þunnt. Hún kemur ekki fram við mig eins og tilsjónarkona - þó hún sé það - heldur sem systír eða móðir. Hvar væri ég ef ég ætti hana ekki að?" Og síðan? „Síðan? Já, síðan fór því miður að síga á ógæfu- hlið. Maðurinn minn slasaðist og gat ekki unnið í langan tíma. Það þoldi hann ekki, hann byrjaði aftur (vímuefnunum. Honum voru líka gefin deyf- andi lyf í veikindunum sem juku áhættuna. Ég stóð mig kannske ekki heldur nógu vel [ sambúð- inni. En sagði það alltaf og segi það enn að það var ekki um neina ofdrykkju að ræða hjá mér meðan ég var með litlu drengina mína. En svo var ég orðin svo hrædd við manninn minn og ofbeldi hans, sem nú hafði aukist að mun, að ég ákvað að skilja víð hann. Þvílík ósköp sem þá dundu yfir. Maðurinn minn lagði hatur á mig og hann kærði mig og sagði að ég væri óhæf móðir. Hvers vegna hann var allt í einu svona marktækur, sem var ennþá meiri óreglumaður en ég hef nokkurn tíma verið, skil ég ekki. Það skilur barnaverndarnefnd ein. Seinna iðraðist hann þessa vonskuverks síns og tók framburð sinn til baka. En þá var hann allt (einu ekki marktækur." Nú verður löng þögn og Rafnhildur tekur á, eins og til að ganga móti stormi þegar hún heldur áfram. „Þú þekkir framhaldið. Drengirnir voru teknir frá mér. Það var óskaplegur tími frá því að ég vissi að þeir áttu að fara. Óttinn og þessi máttvana reiði. Það er kannske þroskaleysi en ég get ekki hugsað hlýtt til hjónanna sem tóku þá. Þau byrjuðu að umgangast þá sex vikum áður en þeir fóru. Kon- an hjá Féló brosti framan í mig og sagði: „Þetta gengur allt ágætlega. Þeir eru meira að segja farnir að kalla þau pabba og mömmu!" Það var eins og hún væri að segja mér að ég væri í sætri kápu. Það er ótrúlegt hvað fólk getur verið grimmt við þá sem það þorir til við. Einn daginn var ég óvenju hrædd. Ég lét þá ekki á leikskólann heldur bað konuna uppi fyrir þá. Svo ætlaði ég með þá I bæinn að kaupa jólaföt þegar ég kæmi úr vinnunni. Þetta var snemma í nóvember. En þegar ég kom heim voru þeir farnir. Ég fékk ekki að kveðja þá. Barnaverndarnefnd hafði fundið þá hjá grannkonu minni og hún sagði að svo mikið hefði legið á að þeir fengu ekki að fara [ skóna. Þeír voru teknir á sokkaleistunum. Ég ætla ekki að lýsa þeim jólum og ég ætla ekki að lýsa þeim tfma sem í hönd fór. Ég reyndi allt sem mér datt í hug til að endurheimta börnin mín. Ég fór í mál sem ég tapaði auðvitað. Loks varð ég algjörlega rugluð. Systir mín kom að mér þar sem ég var búin að setja bangsana drengj- anna f stólana þeirra við borðið og var að mata þá. Þetta er allt eins og í þoku fyrir mér. Ég man þó að oft sat ég við gluggann og beið þeirra, var viss um að nú færu þeir að koma. Þeir mundu auðvitað koma í leigubíl og svo mundi ég hlaupa út og faðma þá að mér og við skildum aldrei framar. Þannig dreymdi ég mig frá veruleikanum. Ég fékk mér litla tík um þetta leyti en ég varð að láta hana aftur. Mér þykir mjög vænt um dýr en hef sjaldan getað haft þau vegna flækingsins sem alltaf er é mér. Hilmar minn reyndi að styðja mig eins og hann gat en hann var oft hjá föður sínum á þessum tíma, eins og eðlilegt var þar sem ég var ekki mönnum sinnandi. Það varð niðurstaða þessa máls að ég mátti hitta börnin tvisvar á ári í tvo tíma, undir eftirliti. Seinna var þetta rýmk- að um klukkutíma vegna „góðrar hegð- unar minnar", svo nú má ég sjá þá í þrjá tíma tvisvar á ári undir eftir- liti og hringja [ þá á hátíðum. Eins og allar mæð- ur geta hugsað sér er þetta óskaplega erfitt og ég er lengi að jafna mig eftir hvert skipti. En alltaf þekkja þeir mig og eru svo góðir við mig, elsku strákarnir. Það á að heita að ég sé þó orðin með öllu viti. Ég gerði reyndar þau mistök að fara að búa með manni enn á ný, en það gerði auðvitað bara illt verra og hann lagði á mig hendur eins og allir karlmenn sem ég hef umgengist - nánast. Ég vil Maðurirm mirm lagði hatur á mig og hann kærði mig og sagði að ég væri óhæf móðir. Hvers vegna hann var allt í einu svona mark- tækur, sem var ennþá meiri óreglumaður en ég hef nokkurn tíma verið, skil ég ekki. Það skilur barna- verndarnefnd ein. VERA • 63

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.