Vera - 01.08.2000, Side 18

Vera - 01.08.2000, Side 18
Tinna B. Arnardóttir Námse ni um ja nrétti Ásdis Olsen hefur á undanförnum mánuð- um unnið að gerð námsefnis sem ætlað er til jafnréttisfræðslu barna og unglinga á grunnskólastigi. Ásdís er grunnskólakennari að mennt en hún lærði einnig hagnýta fjölmiðlun í Háskóla islands og hélt svo til E3andaríkjanna þar sem hún lauk MA-gráðu i fjölmiðlafræðum. Þar lagði hún sérstaka áherslu á miðlun fræðslu- og áróðurs og fjallar lokaritgerð hennar um skemmti- mennt (eduteinment) sem ætti að koma að góðu gagni i ritun námsefnis Teiknimyndasaga fyrir 10 til 12 ára Heftið fyrir miðstigið er sett upp í teiknimyndasögu stíl en það er Böðvar Leós sem myndskreytti. Sagan er sögð af veru sem varð til á tilraunarstofu í málningarverksmiðju þar sem var verið að reyna að búa til sjálfmálandi málningu. Verunni var sturtað niður um klósettið og eftir langt ferðalag um rör og leiðslur kemst hún upp um vask í skólastofu. Þar kemst hún að því að hún getur gægst inn í líf barnanna með því að gerast laumufarþegi innan í þeim, séð og heyrt það sama og þau og fundið það sama. Veran ferðast svo frá barni til barns og kemst að því að þau koma frá ólíkum að- stæðum, eitt á samkynhneigða foreldra, annað er í hjólastól o.s.frv. og öll hafa þau mismunandi hæfileika. Bókin er skrifuð með fjöl- greindarkenninguna í huga sem leitast við að undirstrika marg- breytileika einstaklingsins á sem jákvæðastan hátt. Hver voru tildrögin? „Jafnréttismálin voru á minni könnu þegar ég var ritstjóri hjá Námsgagnastofnun og þá setti ég í gang vinnu við jafnréttishand- bók fyrir kennara og skóla. Til að tryggja framgang verksins, fag- mennsku og almenna sátt fengum við til liðs við okkur stóran hóp sérfræðinga í skóla- og jafnréttismálum sem jafnframt voru full- trúar helstu hlutaðeigandi stofnana og hópa. Höfundar verksins komu svo úr þeim hópi, þau Stefanía Traustadóttir sérfræðingur á Skrifstofu jafnréttismála og Hafsteinn Karlsson skólastjóri. Hand- bókin verður aðgengileg og fjölbreytt með ýmsum fróðleik, ábendingum og hugmyndum en þar að auki verða í bókinni hag- nýt tæki í formi sjálfskannana og gátlista. Eg hef mikla trú á svo- leiðis tækjum því hegðun okkar og hugsun er svo ómeðvituð. Aldagamlar hugmyndir um kynin eru innbyggðar í menninguna og málfarið. Það er sama hversu fróð, jafnréttissinnuð eða velvilj- uð við erum, við höfum ólíkar væntingar og viðhorf til kynjanna og lendum því óviljandi í því að mismuna kynjunum. Ég hef feng- ið að fylgjast með vinnslu jafnréttishandbókarinnar eftir að ég lét af ritstjórn hjá Námsgagnastofnun og sýnist mér útkoman ætla að verða frábær." Hvcrnig kemur þú síðan að gcrð jafnréttisnámsefnis? „Ég kem þannig að þessu að ég þekki efni handbókarinnar og tek svo þátt í hugmyndavinnu á vegum Námsgagnastofnunar í sam- bandi við jafnréttisnámsefni í lífsleikni. Ákveðið var að gera tvö hefti og huga að jafnrétti almennt á miðstiginu (10-12 ára) en að stöðu kynjanna á unglingastiginu (13—15 ára). Ég og Karl Ágúst Ulfsson tókum að okkur að skrifa bæði þessi hefti. Úrklippubók fyrir 13 til 15 ára Bókin fyrir unglingastigið verður einhvers konar úrklippubók unglings, það er að segja allt efni lítur út fyrir að vera klippt eða rifið út úr blöðum, tímaritum eða bókum og límt inn á síðurnar. Allt eru þetta hlutir sem snerta jafnrétti kynjanna en eru þó hver úr sinni áttinni, til dæmis viðtal úr glanstímariti, blaðsíður úr ævintýrabók, slitrur úr teiknimyndasögu, frétt úr dagblaði o.s.frv. Ekki er um raunverulegar úrklippur að ræða heldur eru þær allar færðar í stílinn, bæði til að gera bókina skemmtilegri og boðskap hennar skýrari. Persónurnar sem koma við sögu eru allar þekktar úr barna- og unglingamenningu en ýmist settar í nýtt og óvænt samhengi eða sögunum um þær breytt svo þær fái nýja merkingu. Þessu er ým- 18 • VERA

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.