Vera - 01.08.2000, Blaðsíða 19
Úr jafnréttisnámsefni í lífsleikni fyrir 13 til 15 ára
•tiartima hennar Möggu qafst ekki
UPP> 5em betur fer. Og það var evo
rýtið að þegar við vorum búnar að
f;a v,ð mömmu svolitla stund fðr
° ^ur strax að líða grasnna og blárra.
3 mamma sagði okkur Möggu allt um
^ðingar oq það sem líkaminn hennar
°00u var að ganga í gegnum. Við
9'etum svolítið og hlógum
svoiftið og kúrðum svolítið
1 ariginu á mömmu. Það er
5vo skrýtið hvað það er
5tundum gott að veraí
þc0ar maður er
að verða stór.
ist ætlað að aflijúpa dulin skilaboð sem felast í sögunum eða fyr-
irbærunum sem um er að ræða eða að varpa nýju ljósi á aðstæð-
ur sem unglingarnir þekkja en gera ekki athugasemdir við dags
daglega.
Myndskreytingarnar verða unnar í sama stíl, þ. e. sem klippi-
myndir þar sem ljósmyndað andlit er til dæmis skeytt við teiknað-
an búk, persóna af klassísku málverki er klippt inn í mynd úr Ikea
bæklingi, o.s.frv.
Ég er mjög ánægð með þetta námsefni og hlakka til að sjá
hvernig það reynist í skólum landsins. Þess má líka geta að auk
jafnréttisheftanna og handbókarinnar er verið að vinna verkefna-
hefti með þessu námsefni. Til viðbótar öllu þessu hefur Náms-
gagnastofnun nýlega gefið út mjög skemmtilegt myndband um
jafnréttismál sem kallast Brimbrot og er eftir Asthildi Kjartansdótt-
ur. Það verður því úr nógu jafnréttisefni að rnoða í framtíðinni
fyrir fróðleiksfúsa kennara.
Blaðafrétt
Þótti frásögn
Rauðhettu
tortryggileg
Nokkurt annríki var hjá lögreglunni í Reykjavík
um helgina. Ung stúlka var látin gista fanga-
geymslur eftir að lögreglan veitti henni athygli í
annarlegu ástandi í slagtogi við sjö dvergvaxna
karlmenn sem lögreglan telur vera af ítalska
herskipinu L'aventura. Við yfirheyrslur kvaðst
stúlkan hafa étið eitrað epli. Önnur stúlka lagði
fram kæru á hendur úlfi nokkrum sem hún kvað
hafa étið sig og ömmu sína. „Við tókum þetta
nú mátulega alvarlega," sagði Viðfinnur
Grimmson varðstjóri í samtali við blaðið. „Að
sögn stúlkunnar á úlfurinn að hafa logið sig
inná gömlu konuna, gleypt hana með húð og
hári, lagst síðan í rúmið hennar og gleypt síðan
stúlkuna þegar hana bar að garði. En þetta
verður að teljast afskaplega ótrúlegt, einkum
vegna þess að umræddur úlfur er þekkt Ijúf-
menni og hefur aldrei gert flugu mein. Auk þess
höfum við gömlu konuna grunaða um að hafa
klæðst afar lystaukandi náttkjól. Stúlkan var
einnig klædd í rauða kápu en eins og allir vita
eru úlfar vitlausir í rautt... eða eru það naut?"
sagði Viðfinnur að lokum.
Þegar blaðið var að fara í prentun bárust því
áreiðanlegar heimildir fyrir því að umrædd
stúlka hefði oft verið gleypt áður og látið sér vel
líka. Auk þess mun hafa fundist vínflaska í körfu
hennar.
Smælki að utan:
Karla í húsverkin
I sumar tóku liundruð kvenna þátt í mótmælaaðgerðum í Mexíkóborg til að kreíjast
þess að karlar ynnu húsverk á heimilum og til að korna á verkfalli húsmæðra í einn dag.
Konurnar fylktu liði niður eina af aðalgötum borgarinnar og lömdu skeiðum í potta og
pönnur til að krefjast þess að ríkisstjórnin bannaði myndbirtingar sem þykja niðrandi
fyrir konur. Einnig kröfðust þær þess að húsverk yrðu metin til fjár í hagkerfmu. Einn
skipuleggjenda göngunnar, Dunia Rodriguez, hvatti konur til að lyfta ekki litla fingri
þennan dag, en Sameinuðu þjóðirnar höfðu tilnefnt hann alþjóðlegan dag húsverka.
VERA • 19