Vera - 01.08.2000, Blaðsíða 26
Agla Sigríður Björnsdóttir
Áhrifamikil kona
Helga H. Magnúsdóttir er fyrsta
konan sem kemst i áhrifastööu
hjá handknattleikssambandi Evrópu
framkvæmdastjórn hand-
knattleikssambands Evrópu,
EHF, en náói ekki kjöri þar
sem austurblokkin vildi
ekki fá konu í stjórn, en
hún var aftur á móti kjörin
í mótanefnd sem er í raun
mun umfangsmeira starf
en seta í framkvæmda-
stjórninni. Meó því aö vera
komin í mótanefnd hefur
Helga H. Magnúsdóttir
skráð sig á spjöld iþrótta-
hreyfingarinnar í Evrópu
sem fyrsta konan sem
kemst í áhrifastöðu innan
EHF. Til að lesendur Veru
gætu kynnst þessari
kjarnakonu, fékk ég Helgu í
spjall til mín og komst að
raun um að störf hennar
innan íþróttahreyfingarinnar
eru ómetanleg fyrir konur
landsins og unglingsstúlkur
framtíðarinnar.
„Ég er fædd í Hveragerði 21. desember
1948, dóttir Laufeyjar Jakobsdóttur sem oft
hefur verið nefnd amman í Grjótaþorpi og
Magnúsar Finnbogasonar. Ég á sjö systkini
og er sú sjötta í röðinni. Maðurinn minn
heitir Hinrik Einarsson og eigum við þrjú
börn. Ég tók gagnfræðapróf frá Reykliolti í
Borgarfirði og hef unnið hér og þar í gegn-
um tíðina, t.d. í síld, verið bensíntittur,
vann í Hafnarfjarðarapóteki, þar næst í
launadeild Hrafnistu og loks hjá Félags-
stofnun stúdenta en þar hef ég unnið síð-
astliðin níu ár og séð um úthlutun á
íbúðum á stúdentagörðum. Eg er hins veg-
ar að láta af störfum þar og taka við nýju
og spennandi starfi um þessar mundir."
Helga byrjaði í handbolta á tólfta ári en
þá átti hún heima á Laugateigi. Iþróttir hef-
ur Helga stundað frá unga aldri því ein-
ungis þriggja ára gömul var hún farin að
synda í sundlauginni í Hveragerði. Þrettán
ára flytur hún til Hafnarfjarðar og gekk þá
til liðs við FH og spilaði handbolta með
þeim til nítján ára aldurs en þá lagðist
kvennaboltinn niður í FH.
„Þegar þetta gerðist, árið 1967, þá fóru
nokkrar stúlkur úr FH yfir í Fram og þar á
meðal ég. Ég spilaði með Fram til 33 ára
aldurs uns ég hætti alfarið að spila. Fram-
liðið vann marga titla enda kepptum við
víða og fórum m.a. í Evrópukeppnir. Til að
standa straum af kostnaði sem þessu fylgdi
sáum við um að fjármagna mest allt sjálfar,
t.d. með því að selja rækjur, klósettpappír
og halda bingó.”
í mótanefnd EHF
Helga hefur verið í framlínu íþróttahreyf-
ingarinnar um árabil, hún hefur setið í
stjórn HSI og situr nú í framkvæmdastjórn
Iþrótta- og ólympíusambandsins. Helga
hefur einnig verið í nefnd á vegum EHF
ásamt nokkrum öðrum konum en hlutverk
þeirra er að vinna að málefnum kvenna-
handboltans í Evrópu. A þessu ári var hún
svo kosin í mótanefnd EHF en sóttist í
fyrstu eftir sæti í framkvæmdastjórn EHF.
En af hverju var Helga að gefa kost sér í
framkvæmdastjórn EHF?
„A HM 199S (Heimsmeistarakeppni A-
karlalandsliða), sem haldið var hér á ís-
landi, kom framkvæmdastjóri Evrópusam-
bandsins að máli við mig og bað mig um
að gefa kost á mér en mér fannst þetta frek-
ar fráleitt og gaf það frá mér. Síðar fæ ég
skilaboð frá Staffan Holmqvist forseta EHF
um að gefa kost á mér í stjórnina. Þá lá fyr-
ir næsta þingi að fjölga í stjórn og yrði það
að vera kona sem kæmi inn, en sú tillaga
náði ekki fram að ganga. Þetta er svo búið
að vera í deiglunni síðasdiðin tvö ár, en
eins og áður sagði þá vildi Rússablokkin
ekki fá konu inn og því náði ég ekki kjöri.
Ég gaf hins vegar kost á mér í mótanefnd
EHF en þingið kýs í allar nefndir og hefur
kona aldrei verið kosin til embættisstarfa
innan EHF fyrr. Þetta er mun meira emb-
ætti en ég sóttist eftir. Við vorum þrjú sem
gáfum kost á okkur í þetta og þurfti að
kjósa tvisvar, því í seinni umferð er kosið
milli tveggja og þarf hreinan meirihluta til
að ná kjöri.
Jómfrúarferðin
Það sem felst í þessu starfi er að ég er í for-
svari fyrir allar Evrópukeppnir kvenna-
landsliða en haldnar eru þrjár keppnir ann-
að hvert ár fyrir A-landslið, 20 ára landslið
og 18 ára landslið. Þegar Evrópukeppni er
úthlutað til einhvers staðar þarf ég að fara
og skoða keppnisaðstöðu, búningaað-
stöðu, æfmgaaðstöðu, vellina, hótelin og
hvernig samgöngum er háttað. Þegar í
sjálfa úrslitakeppnina er komið þarf ég að
vera á svæðinu meðan keppnin stendur. Ég
þarf að vera eftirlitsmaður, vera í móts-
stjórn, í dómstóli keppninnar o.m.fl. Jóm-
frúarferðin mín verður til Frakklands í lok
ágúst þar sem úrslitakeppni 20 ára kvenna-
landsliða fer fram og síðan verður keppni í
26 • VERA