Vera - 01.08.2000, Page 29
S K Y N D
M¥N Q
Pt
ína teiknari
Hún heitir Kristín Eiríksdóttir, kölluð Stína, og er
höfundur teiknimyndasögunnar sem hefur göngu
sína hér í blaðinu. Stína teiknaði líka mynd í síð-
ustu Veru.
Stína er aðeins 18 ára en hefur þegar ákveðið
stefnuna í lífi sínu. Myndlist er hennar helsta
áhugamál en hún yrkir líka Ijóð og hefur gaman af
Ijósmyndun. „Ég hætti eftir hálft ár í MH og fór til
Kúbu," segir hún. „Síðasta vetur var ég á mynd-
listarbraut í lýðháskóla í Svíþjóð og hef nú fengið
inni í listalýðháskóla í Holbæk, rétt hjá Kaup-
mannahöfn."
Stína er félagskona í Bríeti og hefur mikinn
áhuga á feminisma. Hún segir að mikil gróska sé í
feministahreyfingunni í Svíþjóð og að hún hafi
hrifist mjög af kraftinum þar. „Það eru alls konar
hópar starfandi og þær eru yndislega róttækar og
skemmtilegar," segir hún. „Feministablaðið Bang
er frábært blað og unglingatímaritið Darling en
þar er tekið á vandamálum ungs fólks út frá fem-
inísku sjónarhorni. Svo var frábær framhaldsþáttur
í sænska sjónvarpinu sem heitir Clappet, eða bilið,
og fjallar um tvær unglingsstelpur sem eru að
uppgötva bilið á milli kynjanna. Mér finnst að ís-
lenska sjónvarpið ætti að kaupa þessa þætti því
ungt fólk hér á landi þarf svo sannarlega að fá
fræðslu í þessum efnum," segir Stína og lofar að
senda Veru teikningar áfram þó hún fari um stund
til Danmerkur.