Vera - 01.08.2000, Side 30
I
- segir Elsa S. Þorkelsdóttir,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Skrifstofu jafnréttismála
Um leið og ný jafnréttislög voru
samþykkt frá Alþingi sl. vor var
samþykkt að flytja stofnunina
sem á að framfylgja þeim út á
land. Stofnunin heitir lafnrétt-
isstofa og tekur við starfi Skrif-
stofu jafnréttismála. Elsa S.
Þorkelsdóttir var framkvæmda-
stjóri Skrifstofu jafnréttismála
og lafnréttisráðs í 14 ár. Hún
segir það mikil vonbrigði að
loksins þegar lög eru sett um
að sjálfstæð stofnun skuli
sinna jafnréttismálum, stofnun
sem hún hefur trú á að geti
blómstrað, sé jafnframt sam-
þykkt að hún skuli staðsett
utan höfuðborgarsvæðisins.
Hún er ósátt við hvað málið
fékk litla umræðu í þinginu og
veltir fyrir sér af hverju þing-
konur beittu sér ekki af meiri
hörku fyrir því að málið færi á
annan veg.
Vera ræddi við Elsu um starf
hennar og þróun jafnréttisum-
ræðunnar á opinberum vett-
vangi undanfarna áratugi.
Viðtal: Elísabet Þorgeirsdóttir
Om^kleg gagnrýni
CI bd var fyrst beðin að segja örlítið frá
sjálfri sér og hvað hún gerði áður en hún
kom til starfa fyrir Jafnréttisráð. Hún er
fædd 1953 og segist hafa verið einn vetur
í MR en ekki verið ákeðin í hvað hún vildi
læra og fór til útlanda.
„Þetta var á miðju hippatímabilinu og
ég bjó um tíma í Danmörku, Bandaríkjun-
um og Frakklandi. Eg var tvo vetur við
frönskunám í Strassborg og langaði að læra
þar stjórnmálafræði en varð að ná mér í
stúdentspróf fyrst. Þar bjargaði Öldunga-
deild Menntaskólans við Hamrahlíð mér,
eins og fleiri konum á þessum árum. Ég var
þar við nám á árunum 1975 til 1978. Þetta
var fyrsta öldungadeildin við menntaskóla
og þar var mikið af konum sem voru
komnar aftur til náms eftir að hafa sinnt
barnauppeldi. Ég tók námskeið í lögfræði
sem Gunnar Eydal, núverandi skrifstofu-
stjóri Reykjavíkurborgar, kenndi og hann
kveikti svo mikinn lögfræðiáhuga hjá mér
að ég ákvað að innrita mig í lagadeild Há-
skóla Islands að loknu stúdentsprófi, í stað
þess að fara aftur til Strassborgar eins og ég
hafði ætlað mér. Ég hef hins vegar haft
tækifæri til að koma þangað sem starfs-
maður Skrifstofu jafnréttismála á fundi á
vegum Evrópuráðsins, en mér þykir alltaf
vænt um þá borg,“ segir Elsa.
Vorið 1984 útskrifaðist hún úr lögfræð-
inni og eignaðist son um svipað leyti. Vet-
urinn eftir vann hún við kennslu en gerð-
ist svo lögfræðingur Barnaverndarráðs Is-
lands og vann þar í rúmt ár, eða þangað til
hún var beðin að leysa Elínu Flygenring af
sem framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs árið
1986. Hún eignaðist síðan tvær dætur,
1992 og 1995, með manni sínum, Má
Guðmundssyni hagfræðingi. Þegar Elsa er
spurð um áhuga á málefnum kvenna á
yngri árum segist hún ætíð hafa haft áhuga
30 • VERA