Vera - 01.08.2000, Side 36

Vera - 01.08.2000, Side 36
Ég tel að það hafi háð okkur að við höfum ekki haft sterka, lifandi, kvennapólitíska rödd á íslandi sem er óháð stjórnmálaflokkum. mannahöfn, eins og ráð var fyrir gert? Þessir tveir atburðir hefðu getað blásið lífi í íslenska kvennahreyíingu ef af þeim hefði orðið, „Akvæði um Jafnréttisþing kom inn í lögin 1991, eftir tillögu frá Önnu Ólafs- dóttur Björnsson þáverandi þingkonu Kvennalistans, og slík þing voru haldin 1993 og 1996.Við reyndum að fá sérstaka fjárveitingu til að halda þingið 1999 eða 2000 en tókst ekki. Þá skipti máli að 1999 var kosningaár og Jafnréttisráð fær umboð sitt á milli þingkosninga. Umboðið rann því út í maí 1999 og þegar nýtt Jafnréttis- ráð kom saman um haustið var umræðan um breytingar á jafnréttislögunum farin af stað. Akvæðið um að Jafnréttisráð haldi Jafnréttisþing var hins vegar fellt úr lögun- um. Að því er varðar Nordisk Forum árið 2000 þá var þar einungis um tillögu að ræða sem ekki hefur fengið mikla umræðu á Norðurlandaráðsþingi eða innan Nor- rænu ráðherranefndarinnar. Ég held að flestum finnist komið nóg. Þetta eru um- fangsmikil og dýr þing. Nordisk forum 1988 var svar við tilmælum frá Kvennaráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna í Nairobi 1985 um svæðisbundnar ráðstefnur og þing grasrótarhópa og Nordisk forum 1994 var til undirbúnings kvennaráðstefn- unnar í Peking 1995. Peking +5, sem var í NewYork í sumar, var annars eðlis og ekki eins umsvifamikið og stóru kvennaráð- stefnurnar. Kvennahreyfmgin var þrátt fyr- ir það mjög áberandi á þinginu og fulltrú- ar íslenskra kvennahreyfinga og frjálsra fé- lagasamtaka áttu fulltrúa þar. Það er talað um kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 2005, kvennaráðstefnu frekar en Peking +10 svo kannski er tilefni til að kalla sam- an norræna grasrótarhreyfmgu að nýju fyrir þann tíma. Umræðan gæti svo sann- arlega farið af stað og kannski yrði það til að hleypa lífi í íslenska kvennahreyfmgu og styrkja starfið fyrir norðan. Ég hef trú á að Valgerður H. Bjarnadóttir nýráðin fram- kvæmdastjóri Jafnréttisstofu muni sinna vel tengslum við grasrótina og óska henni alls hins besta í starfi sínu. AraTigur jafrirettisstarís í 14 ár Tölulegar staðreyndir um árangur í jafnréttismálum þau ár sem Elsa S. Þorkelsdóttir gegndi starfi jramkvæmdastjóra Skrifstofu jafnréttismála og jafnréttisráðs. 40 Hlutfall kvenna Hlutfall kvenna Hlutfall kvenna Hlutfall kvenna Hlutfall kvenna í hópi skrifstofu- í opinberum í sveitastjórnum í ríkisstjórn á þingi stjóra ráðuneyta nejndum 36 • VERA

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.