Vera - 01.08.2000, Síða 41
jfcr i
Konurnar gefa til kynna ad þær vanti túlkun
á þau tungumál sem skrifuð eru á spjöldin.
Sigríður Margrét og Jóhanna fylgjast með.
í biðröð ásamt konum frá Mið-Austurlönduin;
Hólmfríður, Sigríður M. og Þórdís Sigurðar-
dóttir frá Þróunarsamvinnustofiiun.
Greinarhöfundur, Elsa S. Þorkelsdóttir, Þórdís
og Hóhnfríður í fundasalnum.
Kynjasjónarmið haft að leiðarljósi
Ríki eru hvött til að staðfesta viðaukann
við kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna
sem heimilar sérstaka kæruleið vegna
meintra brota á sáttmálanum og til að stað-
festa Rómarsamþykktina um Alþjóðlega
glæpadómstólinn en þar eru m.a. nauðg-
anir, kynlífsþrælkun, þvingað vændi og
þvingaður getnaður skilgreind sem stríðs-
glæpir þegar framkvæmd í stríði og eru
við vissar skilgreindar aðstæður talin brot
gegn mannkyni. Þá er í lokaskýrslunni
fjallað um hnattvæðinguna og áhrif henn-
ar á stöðu kvenna. Lýst er yfir mikilvægi
þess að kynjasjónarmiðið sé haft að leiðar-
ljósi bæði í viðbrögðum við hnattvæðingu
og við breytingar á stjórn- og efnahags-
kerfum ríkja. Tekið er fram að vinnu- og
framleiðsluferli séu að breytast og að örar
tækni- og samskiptabreytingar hafi ólík
áhrif á líf kvenna og karla. A meðan hnatt-
væðingin hefur aukið möguleika sumra
kvenna, hafa möguleikar annarra veikst,
m.a. vegna aukinnar misskiptingar milli
ríkja og innan einstakra landa. Að lokum
skal þess getið að í lokaskýrslunni er mik-
ilvægi samþættingar sem aðferðar við að
korna á jafnrétti kynja ítrekað en á því sviði
eigum við Islendingar mikið starf fyrir
höndum. Af þessari stuttu samantekt má sjá
að eins og Peking áætlunin þá á þessi loka-
skýrsla, ef vel er á málum haldið, að nýtast
í starfi okkar hér landi. Skýrsluna og stjórn-
málaályktunina er að finna á heimasíðu
Sameinuðu þjóðanna en slóðin er
http://www.un.org/womenwatch/daw.
Ný skref - ný verkefni
Frá Islandi sóttu aukaallsherjarþingið, auk
okkar þriggja sem þegar eru nefndar, Páll
Pétursson, félagsmálaráðherra sem flutti
ræðu íslenskra stjórnvalda, Berglind As-
geirsdóttir ráðuneytisstjóri í félagsmála-
ráðuneytinu, þingmennirnir Drífa Hjartar-
dóttir og Jóhanna Sigurðardóttir, Hólm-
fríður Sveinsdóttir varaformaður Kvenrétt-
indafélags íslands, Bjarney Friðriksdóttir
framkvæmdastjóri Mannréllindaskrifstofu
Islands, Sigríður Margrét Guðmundsdóttir
formaður Unifem á Islandi og Þórdís Sig-
urðardóttir frá Þróunarsamvinnustofnun
Islands. Þessi hópur hefur rætt hvernig
staðið skuli að kynningu lokaskýrslunnar
og hvernig hún geti sem best nýst konum
og jafnréttisstarfinu á Islandi. Að því er
Peking áætlunina varðar þá byggir fram-
kvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar til f)ög-
urra ára um aðgerðir til að koma á jafnrétti
kynja tímabilið 1998 til 2002 mjög mikið
á þeim tillögum sem samþykktar voru á
ráðstefnunni í Peking. Því til viðbótar gaf
félagsmálaráðuneytið árið 1998 út skýrslu
samráðshóps ráðuneyta þar sem tilgreind
eru þau verkefni sem stjórnvöld telja brýn-
ast að unnin verði á næstu árum. Ahugi
mun vera á því í félagsmálaráðuneytinu að
þýða lokaskýrsluna og gefa út, sem ég tel
mjög mikilvægt. Einnig hefur verið rætt
um að draga sérstaklega fram ýmis ákvæði
sem brýnust þykja og kynna sérstaklega.
Hefur í því sambandi m.a. verið rætt um
þau ákvæði er varða sérstöðu erlendra
kvenna.
Peking +5 færði okkur ný skref og ný
verkefni. Það er því rétt og eðlilegt að við
notum þann tíma sem framundan er þar til
undirbúningur nýrrar framkvæmdaáætl-
unar ríkisstjórnarinnar hefst, til að skoða
og kynna lokaskýrsluna frá NewYork. Und-
irbúningur nýrrar framkvæmdaáætlunar
mun væntanlega hefjast á næsta ári. Það er
ekki nóg að setja verkefni á blað. Þau þarf
að vinna. Stjórnvöld hafa skuldbundið sig
til að tryggja framkvæmd bæði Peking
áætlunarinnar og þeirrar lokaskýrslu sem
samþykkt var í New York í vor. Við sem
þingið sátum gegnum hér mikilvægu hlut-
verki. Ekki síst tel ég að kvennasamtök,
Mannréttindaskrifstofan og önnur frjáls fé-
lagasamtök gegni mikilvægu hlutverki í að
fylgja þessu starfi eftir. Hið sama á við um
Alþingi og stjórnmálaflokka. Að tryggja
það að við orð verði staðið, kom til um-
ræðu á sérstökum fundi sem Alþjóðlegu
þingmannasamtökin stóðu fyrir samhliða
þinginu. Jóhanna Sigurðardóttir alþingis-
maður vakti þar m.a. athygli á hlutverki
þjóðþinga við að tryggja framkvæmd Pek-
ing áætlunarinnar og lokaskýrslunnar og
taldi mikilvægt að þjóðþingin kölluðu eft-
ir skýrslu um framkvæmd einstakra verk-
efna og málasviða. Jafnframt hvatti hún til
umræðu á þjóðþingum um málefni
kvenna.
Mikilvægt lokaskjal
Þetta var í fyrsta sinn sem ég tók þátt í starfi
Sameinuðu þjóðanna að mannréttindum
kvenna. Starfið á erlendri grundu bæði í
rnars, maí og samhliða aukaallsherjarþing-
VERA • 41