Vera - 01.08.2000, Blaðsíða 47
Hjálpa alnæmissjáílcmn
börnnm f Rnmenfn
í lok nóvember í fyrra var sagt frá því í útvarpi að munaðarlaus, alnæmissjúk
börn í Rúmeníu þyrftu á aðstoð að halda og væru föt og leikföng vel þegin.
Nokkrir tugir íslendinga brugðust við neyðarkallinu og sendu pakka til Rúmeníu.
í mars var haldinn fundur með því fólki sem hafði sent gjafir eða póstkort til
barnanna og ákveðið að stofna félagið Vinir Nicolae Balcescu stofnunarinnar.
Félagið stofnaði síðan lokaðan bankareikning til að hægt væri að leggja inn
peninga til að aðstoða og gleðja börnin á Victor Babes sjúkrahúsinu í Búkarest.
Kristinn Snæland leigubílstjóri átti frumkvæðið að
því að kalla fólkið saman og var hann kosinn í Vina-
nefnd sem stýrir starfmu, ásamt sex öðrum. Ein þeirra
er Ragnheiður Steindórsdóttir leikkona.Vera ræddi við
þau um þetta mikilsverða framtak.
„Viðtalið sem við heyrðum í útvarpinu var við El-
ísabetu Alm, sænskan lektor í Norræna húsinu, sem
sagði frá góðgerðafélagi í Rúmeníu sem Martha Banu-
lescu stærðfræðiprófessor stofnaði og stýrir. Félagið
hefur það markmið að hjálpa og gleðja HIV jákvæð
og alnæmissjúk börn sem hafa verið yftrgefm af for-
eldrum sínum og dvelja á sjúkrastofnunum," segja
Kristinn og Ragnheiður.
Þau voru bæði stödd í bílum sínum þegar þau
heyrðu viðtalið við Elísabetu og brugðust skjótt við.
Kristinn renndi vestur í Norræna hús og talaði við El-
ísabetu en Ragnheiður hringdi og ræddi við hana.
Bæði fengu þau nöfn og heimilisföng barna og tíndu
til ýmsar gjafir sem þau sendu til barnanna. Eftir jólin
komu þakkarkort frá börnunum þar sem þau nefndu
ýmislegt sem þau vanhagaði um, einnig kom bréf frá
Mörthu og beiðni um t.d. ritföng, ljósritunarpappír
o.fl. Þar sagði hún að einn þáttur í starfsemi félags
hennar væri að bjóða börnunum í ferðalög til að létta
þeim lífið. Til þess að auðvelda það ætlar hún að
kaupa átta manna bíl því börnin mega ekki ferðast
með rútum eða almenningsvögnum. Síðast þegar
fréttist vantaði aðeins um 1000 dollara upp á að það
takist. Börnin mega heldur ekki gista á hótelum svo
Martha stefnir að því að kaupa lítið hús í Karpatafjöll-
unum þar sem jrau gætu dvalið sér til heilsubótar.
Vinafélagið safnar peningum
„Ástæðan fyrir því að ég ákvað að hafa samband við
fólkið sem hafði brugðist við hjálparbeiðninni var
m.a. sú að það er svo dýrt að senda peninga til Rúm-
eníu og því betra að sameinast um það,“ segir Kristinn
sem fékk upplýsingar um fólkið hjá Mörthu og sendi
á 37 heimilisföng hér á landi. Hluti hópsins stofnaði
Vinafélagið og hefur Kristinn sent nokkur fréttabréf til
þeirra sem áhuga hafa. Félagið hefur einnig komið sér
upp heimasíðu, www.rixple.is/vinir. Fyrsta verkefni
Vina Balcescu var að stofna lokaðan bankareikning og
er miðað við að safna 1000 dollurum í senn, eða um
75.000 krónum. Hafa fyrstu 1000 dollararnir þegar
safnast og verið sendir út. Bankareikningurinn er:
0116-05-62550.
Sem dæmi um hvað hægt er að gera fyrir þessa
peninga segja þau að Martha hafi farið með 45 börn
í fjögurra daga ferð í sumarbústað fyrir 1200 dollara
og greiddi fyrir mat, gistingu og rútuferðir. Þau
minnast einnig á frábært framtak ungra brúðhjóna
sem giftu sig í sumar og sögðu í boðskorti að þau
óskuðu eftir því að lagt yrði inn á þennan bankareikn-
ing fremur en að þau fengju gjafir. Sannkallað hug-
sjónafólk.
„Þó að við leggjum nú áherslu á bankareikninginn
þykir börnunum mjög vænt um að fá pakka og per-
sónuleg bréf eða kort,“ segir Ragnheiður og sýnir bréf
sem hún fékk þar sem stendur m.a. We need your lett-
ers and your love to us, og Please come to visit us one day.
„Það er svo mikilvægt fyrir þau að vita að til sé fólk
sem er annt um þau. Mörg þeirra voru yftrgefm sem
kornabörn og hafa aldrei komið inn á venjuleg heim-
ili, muna bara eftir sér á sjúkrastofnunum."
Annar mikilsverður áfangi fyrirVini Balcescu er til-
boð frá hraðflutningaþjónustunni DHL sem bauð
þeim 70% afslátt á sendingum til Rúmeníu. „Þegar
krakkarnir mínir voru búin að tína saman dót til að
senda fyrir jólin varð pakkinn fjögur kíló og það kost-
aði tæpar 5000 krónur að senda hann í pósti. Þetta til-
boð DHL er því mjög mikils virði," segir Ragnheiður.
Varningur af ýmsu tagi er vel þeginn af börnunum
í Búkarest sem flest eru á aldrinum 10 til 12 ára.
Vítamín, myndbands- og segulbandsspólur er eitt af
því sem vantar sárlega og til að stytta börnunum
stundir er kærkomið að fá alls kyns föndurdót, liti og
leikföng. Sendingar til barnanna skal senda til Mörthu
Banulescu. Heimilsfangið er:
Prof. Dr. Martha Banulescu,
Iancului street 33
bloc 105A, scara B, apt. 71,
Bucharest 73376, Romania.
Netfang hennar er: banu@pcnet.ro og
heimasíða: www.aede.org/ romaid.html
4 7
VER A •