Vera - 01.08.2000, Page 52
B B I E X
E E M I N I£ T A
f él a g 11 n g r
Hólmfríður Anna
Baldursdóttir
Graðar gellur og traustir strákar
- auglýsingabransinn krufinn
Oftar en ekki fara auglýsingar fyrir brjóstið á
fólki og ástæðurnar geta verið margvíslegar. Ein
af þeim mörgu ástæðum eru tengsl auglýsinga
við feðraveldið. Það getur vissulega verið erfitt
að koma auga á þessi tengsl, enda eru þau oft
meðvitað eða ómeðvitað falin. Samfélaginu í
dag má líkja við umbúðasamfélag þar sem aug-
lýsingabransinn ræður miklu um lit og lögun
umbúðanna og þekkt er að sá bransi lætur ráð-
ast af lögmálum karla. Lögmál karla í þessu
samhengi eru þau að í auglýsingum eru karl-
menn settir fram sem traustvekjandi og ráðandi
aðilinn, en konurnar eru sætu stelpurnar sem
horft er á og selt er út á kynþokka þeirra en ekki
traust. Þetta kalla ég lögmál karla í auglýsinga-
bransanum sem bæði karlmenn og konur við-
halda. Þetta hefur verið í gangi í einhverjum
mæli í lengri tíma en aldrei eins og nú.
Mér hefur borist til eyrna að þó svo að það
komi fram góðar hugmyndir á fundum auglýs-
ingastofanna þá eru þær hugmyndir sem eigi að
selja út á kynþokkann oftast samþykktar vegna
þess að það sé ódýrast og um leið auðveldasta
leiðin til að tryggja athygli! Þið ráðið hvort þið
kaupið þetta eða ekki, en mér finnst þetta alla-
vega mjög sorglegt ef um sannar staðreyndir er
að ræða. Eru auglýsingarnar sem við sjáum út
um allt bara metnaðarleysi eða hvað? Eg veit
það eitt að það vantar allavega frumleikann og
góðar hugmyndir. Gert er ráð fyrir að fólk sé
einfalt (en ekki margfalt) og ég held að einstak-
lingurinn kaupi ekki endalaust þessar kyn-
þokka-og æskudýrkunarpælingar sem eru not-
aðar til að ná athygli almennings í dag. Auglýs-
ingar eins og Thule-auglýsingarnar vöktu hins-
vegar mikla athygli og kostuðu örugglega ekki
mikinn pening. Þetta voru bara tveir fyndnir,
venjulegir karlar sem fóru ekki í taugarnar á
neinum, og voru þar af leiðandi algjörlega full-
komin hugmynd. Einu hugmyndirnar sem virð-
ast vera í gangi í dag eru þær að fletta ferming-
arbörnin fleiri og fleiri klæðum í auglýsingum
og er það frekar örvæntingarfull leið til að ná í
athygli. Dæmin sína meira en mörg orð og því
skulum við láta myndirnar tala sínu máli.
Það er stutt í klámið í
mörgum auglýsingum
og oft mega ekki margar
pjötlur falla til að um
klám sé að ræða.
Það er traust fólk/karlmenn
í sókninni hér.
Við eigum að treysta
þessum karlmönnum fyrir
fjármunum okkar því þeir
eru í grundvallaratriðum
ákveðnir, þora að taka
áhættur, hika ekki
og hrinda verkefnum
í framkvæmd.
„Heimurinn bíður eftir þér,
fullur af taekifærum".
Sjónvarpsauglýsingin
er ekki síður áhugaverð.
FOR MEN ONLY
Landsbankinn
Betri banki
52 •
VERA