Vera - 01.08.2000, Side 53

Vera - 01.08.2000, Side 53
R P i F T f é I ,i g n n g r ;í E E M I N I S I 4 Hver er tilgangurinn með því að vera með tilvísun í klám á hjólabretti? Klámmynda lúkkið „komdu og taktu mig“ lúkkið, er oft talið vænlegt til athygli í auglýsingum. iSuippeqíSuisXjSiu; in puápq ipvjqmEjq in puXpq Þetta er fataauglýsing, en samt virðist konan vera á leiðinni úr fbtunum fyrir framan skólabörnin. Hvað er í gangi hér??? Bríet mælir með... Foxy Brown. Kvikmynd þar sem bæði „vondi kallinn" og „hetjan" eru konur. Vonda konan er rosalega vond, en svo skemmtilega vill til að hún rekur bæði fyrir- sætuskrifstofu og hóruhús á sama brettinu. Hetjan er leikin af Pam Grier sem við munum kannski helst eftir úr hlutverki hörkukvendisins jackie Brown, en hún gefur þeim Mel Gibson og Bruce Willis ekkert eftir í hefndaraðgerðum gegn hinni vondu. Ung, há, feig og Ijóshærð eftir Auði Haralds. Bókin hefur allt sem hin fullkomna ástarsaga þarf til að bera: Eitt stykki fyrirsjáanlegt plott, eina ofursaklausa stúlku í vanda, einn myndarlegan riddara, einn hættulegan sjarmör og endalausar lýsingar á klæðnaði og húsbún- aði. Við mælum eindregið með þessarri bók fyrir hverja þá er vill fá aðra sýn á hinn yfirborðskennda heim ást- arsagnanna. Bókin er ádeila á hina hefðbundnu ástar- söguformúlu og er skemmtilega kaldhæðin og bein- skeytt að hætti Auðar. lulie Doucet, Frönskumælandi kanadísku teiknimyndagerðarkon- unni. Hún byrjaði að gefa sögurnar sínar út sjálf, Dirty Plotte (Skítuga píkan), þar sem hún fjallar um sitt eigið einkalíf og gefur upp yndislega raunsæja mynd af konunni/stelpunni sem er vel þegið andsvar við hinum uppáþrengjandi kvenímyndum nú- tímans. Sögurnar eru fullar af gróf- um húmor og sjálfshæðni, bráð- fyndnar og sjarmerandi. Hægt er að fá allar Dirty Plotte-sögurnar í einni stórri bók sem heitir Léve ta jambe, mon poisson est mort! (Lyftu fætinum, fiskurinn minn er dauður!). Aðrar bækur eru My most secret desire og My New York diary sem dúkka upp öðru hvoru í bóka- búðum bæjarins og síðan er auðvitað enginn vandi að panta þær á netinu. Sex: Annabel-Chong Story. Heimildamynd þar sem getur að líta sorglegan heim klámmyndastjörnunnar sem tók þátt í fyrsta Gang Bang sögunnar. Þetta er mynd sem mikilvægt er að sjá, helst saman í hóp, og ræða um hana eftir á. vera • 53

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.