Vera - 01.08.2000, Síða 53
R P i F T f é I ,i g n n g r ;í E E M I N I S I 4
Hver er tilgangurinn
með því að vera með
tilvísun í klám á
hjólabretti?
Klámmynda lúkkið „komdu og taktu mig“ lúkkið,
er oft talið vænlegt til athygli í auglýsingum.
iSuippeqíSuisXjSiu; in puápq ipvjqmEjq in puXpq
Þetta er fataauglýsing, en samt virðist konan vera á
leiðinni úr fbtunum fyrir framan skólabörnin.
Hvað er í gangi hér???
Bríet mælir með...
Foxy Brown. Kvikmynd þar sem bæði „vondi kallinn"
og „hetjan" eru konur. Vonda konan er rosalega vond,
en svo skemmtilega vill til að hún rekur bæði fyrir-
sætuskrifstofu og hóruhús á sama brettinu. Hetjan er
leikin af Pam Grier sem við munum kannski helst eftir
úr hlutverki hörkukvendisins jackie Brown, en hún
gefur þeim Mel Gibson og Bruce Willis ekkert eftir í
hefndaraðgerðum gegn hinni vondu.
Ung, há, feig og Ijóshærð eftir Auði Haralds. Bókin
hefur allt sem hin fullkomna ástarsaga þarf til að bera:
Eitt stykki fyrirsjáanlegt plott, eina ofursaklausa stúlku
í vanda, einn myndarlegan riddara, einn hættulegan
sjarmör og endalausar lýsingar á klæðnaði og húsbún-
aði. Við mælum eindregið með þessarri bók fyrir hverja
þá er vill fá aðra sýn á hinn yfirborðskennda heim ást-
arsagnanna. Bókin er ádeila á hina hefðbundnu ástar-
söguformúlu og er skemmtilega kaldhæðin og bein-
skeytt að hætti Auðar.
lulie Doucet, Frönskumælandi
kanadísku teiknimyndagerðarkon-
unni. Hún byrjaði að gefa sögurnar
sínar út sjálf, Dirty Plotte (Skítuga
píkan), þar sem hún fjallar um sitt
eigið einkalíf og gefur upp yndislega
raunsæja mynd af konunni/stelpunni
sem er vel þegið andsvar við hinum
uppáþrengjandi kvenímyndum nú-
tímans. Sögurnar eru fullar af gróf-
um húmor og sjálfshæðni, bráð-
fyndnar og sjarmerandi. Hægt er að
fá allar Dirty Plotte-sögurnar í einni
stórri bók sem heitir Léve ta jambe,
mon poisson est mort! (Lyftu fætinum, fiskurinn minn
er dauður!). Aðrar bækur eru My most secret desire og
My New York diary sem dúkka upp öðru hvoru í bóka-
búðum bæjarins og síðan er auðvitað enginn vandi að
panta þær á netinu.
Sex: Annabel-Chong Story. Heimildamynd þar sem
getur að líta sorglegan heim klámmyndastjörnunnar
sem tók þátt í fyrsta Gang Bang sögunnar. Þetta er
mynd sem mikilvægt er að sjá, helst saman í hóp, og
ræða um hana eftir á.
vera •
53