Vera - 01.08.2000, Page 57
Bréf frá Kaupmannahöfn
Þegar heimsmynd
mín hrundi
Áður en ég lenti í þeim aðstæðum að
heimsmynd mín hrundi hélt ég mig víð-
sýna og hæfilega fordómafulla. Nú hefur
hins vegar komið á daginn að ég hafði
þrönga og fordómafulla sýn á heiminn.
Þetta byrjaði allt saman þegar ég gekk til
liðs við fjölmennan danskan kór í Kaup-
mannahöfn (ég legg áherslu á danskan
því nokkrir íslenskir kórar eru hér starf-
andi). Undirleikari og meðstjórnandi
kórsins er feitlagin kona með undarlega
stuttklippt hár, litað til hálfs og með hálf
afkáralegan fatasmekk svo ekki sé
minnst á brjóstahaldaraleysið. Eg
stimplaði hana lesbíu á staðnum, ekki
það ég liafi nokkuð á móti lesbíum
nema síður væri. Með betri vinkonum
mínum er í þeirra hópi og á ekkert skylt
við fyrrnefnda lýsingu heldur er hún
mjög myndarleg, flott klippt og smart í
tauinu. Þessa mynd hafði ég sennilega
frá tíðum komum mínum á bar Tuttugu
og tvo og háværum yfirlýsingum frá
karlmönnum í gegnum tíðina. Þegar
æfmgum fór að fjölga tók ég eftir fleiri
konum sem áttu við þessa lýsingu. Allar
áttu þessar konur það sameiginlegt að
vera fremur ófríðar við fyrstu sýn og
með sérstakan fatasmekk. Eins og áður
raðaði ég þeim í sama hóp kvenna án
þess að velta því mikið fyrir mér. I
nokkra mánuði gerðist fátt sem varð til
þess að breyta þessum skoðunum mín-
um sem höfðu alveg án umhugsunar
sest að í höfðinu á mér. Eg kynntist pí-
anóleikaranum og urðum við ágætis
kunningjar án þess að ég væri mikið að
velta fyrir mér kynhegðun hennar. Und-
anfarnar vikur hef ég hins vegar þurft að
skipta um skoðun smátt og smátt. Fyrst
var það þegar ein þessara kvenna fór að
tala um manninn sinn. Síðan kom önnur
með börnin sín tvö á tónleika. Nú er ekki
svo að skilja að ég viti ekki að lesbíur geta
átt börn eins og aðrir en þarna var bara
margt sem benti til hins gagnstæða. I gær-
kvöldi gerðist svo sá atburður að ég gat
ekki annað en horfst í augu við sjálfa mig
og játað að ég er jafn fordómafull og næsti
maður og eflaust verri, ef eitthvað er.
Þetta var síðasta kóræfmgin sem reynd-
ist svo vera gjafa- og ræðukvöld til heiðurs
margnefndum undirleikara. I einni af þess-
um gjafaræðum fékk hún margar litlar
gjafir með tilheyrandi ræðuhöldum: „Hér
er síðasti sígarettupakkinn sem ég kaupi
handa þér og bók til að lesa meðan þú
reykir," og þar fram eftir götunum. Svo var
ein handa syninum á meðan hún reykti og
las og önnur handa, já — hverjum örðum
en eiginmanninum. Ja, þá sagði ég við
sjálfa mig að heimsmynd mín væri í mol-
um. Það sem ég hef reynt að tileinka mér,
að kynnast fólki fyrst og dæma svo hefur
greinilega ekki staðist nema að litlu leyti.
Þetta er sennilega fylgifiskur þess að vera
búsett í stórborg, þó lítil sé. Hér eru allar
stéttir og manngerðir og þjóðir saman
komnar og allar fjölmennar og ekkert er
hægt að vita fyrir víst, sem betur fer. Sem
betur fer, segi ég líka, kynntist ég þessari
konu og það hef ég gert. Þetta er hlý og
yndisleg kona en samt bjó þessi litli for-
dómur um sig einhvers staðar í hugskot-
inu. Þessi litla reynsla hefur vonandi kennt
mér ýmislegt sem ég mun fara eftir. Hrika-
lega er ég dómhörð og til hvers? Það
breytti hvort eð er engu og hvað kemur
það mér líka við hver sefur hjá liverjum og
hvernig? Ekki er ég að auglýsa hvaða stell-
ingar ég og minn rnaður noturn í rúminu
og hvers vegna ætti það að skipta máli
hvernig aðrir gera það?
Eg skrifa þessi orð til ykkar heima á
Fróni því við búum í svo ótrúlega vernd-
uðu umhverfi, umhverfi sem verndar ekki
bara rétt einstaklingsins heldur elur og
verndar fordóma sem við vitum ekki einu
sinni að við höfum. Eg vona um leið að þið
kíkið í ykkar eigið hugskot og hreinsið út,
því öll þurfum við á áminningu að halda
eins og ég komst svo óþægilega að.
Med venlig hilsen
Eria Karlsdóttir
Viltu kaupa
hlutabréf
í Veru?
Konur hafa tekið höndum saman
og stofnað einkahlutafélag um
útgáfu Veru. Er öllu áhugafólki
um blaðið boðið að kaupa hlut
í félaginu, að lágmarki 5.000
krónur.
Oft er sagt að umræða um jafn-
réttismál nú á tímum sé í lægð en
einnig má líta á tímana sem við
lifum sem uppskerutíma eftir
baráttu og umræðu undanfarinna
ára. Stofnendur útgáfufélagsins
telja að Vera eigi að vera í takt
við það sem er að gerast og tjá
þann fjölbreytileika sem ríkir í
jafnréttisumræðunni.
Vera hefur endurspeglað hug-
myndir kvenna og baráttumál í 18
ár og er brýnt að sú umræða falli
ekki niður nú á aldahvörfum.
Dætur okkar, synir og barnabörn
þurfa að eiga blað eins og Veru!
Ef þú vilt eignast hlut í Veru
geturðu lagt inn á reikning
félagsins í Landsbankanum:
0101-26-73134, eða haft samband
í síma 552 2188, 552 6310 eða
veraSvortex.is.
vera •