Vera


Vera - 01.06.2001, Page 6

Vera - 01.06.2001, Page 6
Á að takmarka aftur opnunartíma skemmtistaða? Hrefna Ósk Benediktsdóttir Já, mér finnst þetta einum of. Gunnar Hersveinn Já, ég er sammála borgarstjóra í því að drukkið fólk eigi ekki að vera á skemmtistöðum á laugardags- og sunnudagsmorgnum þegar ferðafólk og fjölskyldufólk fer í bæinn. Kjartan Ásgeirsson Nei, allavega ekki að skapa aftur þau vandræði sem fylgja því þegar allir skemmtistaðir loka í einu. Valur Brynjar Antonsson Nei, mér finnst að það eigi ekki að tak- marka opnunartímann en auka frekar löggæsluna. Gunnhildur Ásta Traustadóttir Eg hef enga skoðun á því. Sigurborg Friðgeirsdóttir Já, alveg endilega. Jón Ásbergsson Já, það á að takmarka opnunartímann. María Dagsdóttir Já, alveg tvímælalaust. Smælki Hertari reglur um brjóstaaðgerðir Skaðsemi silíkonaðgerða hefur verið til umræðu á Evrópuþinginu að undan- förnu og nýverið var ákveð- ið að reglur um slíkar að- gerðir yrðu hertar. 422 þing- menn Evrópuþingsins voru fylgjandi hertari reglum, 70 á móti og 22 sátu hjá. Með tilliti til mikillar aukningar á lýtaaðgerðum hjá ungu fólki mælir þingið með banni við fegrunaraðgerðum undir 18 ára aldri og lagasetningu sem stuðlar að bættri heilsuvernd þeirra sem óska slíkra aðgerða og auknu gæðaeftirliti. Evrópuþingið ályktar að þeir sem hyggjast undirgangast lýtaaðgerð skuli hafa frí- an aðgang að tæmandi upplýsingum um mögulegar hættur og aukaverkanir sem geta fylgt í kjölfar að- gerðanna og að aðrir valkostir sem í boði eru séu kynntir. lafnframt er hvatt til þess að allir sem und- irgangast silíkonaðgerð fái í hendur ítarlega lýsingu á aðgerðinni og þeim varúðarráðstöfunum sem fylgja ber eftir aðgerð. í ályktun þingsins eru öll að- ildarríki skylduð til að skrásetja brjóstaaðgerðir sem framkvæmdar eru í löndunum og að skýrt komi fram að þær hafi áhættu í för með sér. Minnkað magn tesfósterons hjó nýbökuðum feðrum Þegar ungir menn verða feður gætir áhrifamikilla breytinga í hormónastarfsemi þeirra sem getur leitt til þess að verstu karlrembur breytast í dúnmjúka fyrirmyndardrengi. Þessi fullyrðing er niðurstaða rannsókna kandadískra líffræðinga sem nýverið birt- ist í fagtímaritinu Mayo Clinic Proceedings. Vísindamennirnir tóku sýni úrverðandi feðrum fyrir og eftir fæðingu barna sinna. í Ijós kom að karl- hormónið testósteron minnkaði til muna hjá þeim. Þess í stað hækkaði magn östradíols í líkama þeirra en það hormón er talið í samhengi við móðurlegar hvatir. Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að ungir nýbakaðir feður róast og kynþörf þeirra minnkar. Því hefur stundum verið haldið fram að karlmenn fái væg þunglyndiseinkenni sökum þess að þeir njóti ekki óskiptrar athygli þarnsmóðurinnar þegar barnið er nýkomið í heiminn. Nú þykir hins vegar sannað að depurð feðra í kjölfar fæðingar barns sé í beinu samhengi við skort á testósteronhormóninu. í um- ræðunni í kringum þessar niðurstöður kanadísku vísindamannanna hafa karlmennin David Beckham fótboltastjarna og Guy Ritchie leikstjóri og eig- inmaður Madonnu verið nefndir sem lifandi sönnun. Þeir þykja hafa tekið hamskiptum eftir að hafa orðið feður. 6 David Beckham, dúnmjúkur fyrirmyndardrengur?

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.