Vera


Vera - 01.06.2001, Page 31

Vera - 01.06.2001, Page 31
Af hverju er gott ekki nóg? Helena: í könnuninni kemur fram að konur eru almennt ánægðari en karlarnir. Aðrar kannanir styðja einnig þá niður- stöðu og benda til þess að konur leggi á- herslu á aðra þætti í vinnuumhverfi sínu heldur en karlar. )óhanna: En finnst ykkur ekki skrýtið að karlar séu miklu stoltari af starfinu þegar þeir eru miklu óánægðari með líf- ið? Mín reynsla er sú að karlmaður myndi aldrei viðurkenna að hann væri ekki stolt- ur af starfinu sínu. Helena: Hvað segja karlmennirnir við þessu? Gtsli: Já, mér finnst skrýtið að karl- menn séu stoltari af starfinu en á sama tírma leggi þeir minni metnað í starfið en konur. Maður hefði einmitt haldið að maður myndi leggja mestan metnað í þau störf sem maður er stoltur af. Daníel. Þegar ég var í sálfræðinámi gerðum við rannsókn um ánægju með námið hjá nemendum. Meðal annars spurðum við um meðaleinkunn og það kom í Ijós að konur höfðu hærri meðal- Daníel: Mér finnst líka áhugavert í sambandi við þessa punkta að munur er á því hvernig kynin bregðast við streitu og álagi. Konur eru t.d. líklegri til að sýna kvíða undir álagi og mun fleiri konur leita sér aðstoðar vegna kvfðaraskana en karlar sem eru frekar líklegir til að bæla tilfinn- ingar sfnar niður. Ásgerður: En svo ég vitni aftur í félaga minn, þá var viðhorfið hjá honum að vinnan væri hreinlega síðasta vígið. Það er að vera stoltur af stöðunni sinni og fá góð laun. Ef það færi væri karlmennskan úr sögunni. Magnús: Konur eru líka almennt opn- ari en karlar og fljótari að taka á vanda- málum en þeir. Þær tjá sig ef þeim líður illa og taka á því, velta sér jafnvel svolítið upp úr tilfinningunum. Þær spá í hvort þeim líði vel á vinnustað eða í sínu sam- bandi á meðan karlarnir halda bara á- fram, jafnvel þangað til þeir eru komnir út í öngstræti. Gísli: lafnvel þótt það sé oft sýnilegra hjá konum þegar þær eru stressaðar, kannski af því að þær tala meira um það, þá reyna karlmenn yfirleitt að halda and- litinu - vera svalir - og svo brýst óánægj- an kannski út í einhverju sem hefði verið betra að tappa af smám saman eins og konurnar gera. Þarf ekki að vera innistæða? Ásgerður Mér finnst þetta mjög at- hyglisvert. Það er stundum sagt að konur þurfi að leggja helmingi harðar að sér til að ná sambærilegum árangri og karlmenn í starfi. Ég hef tekið eftir því í gegnum tíð- ina þar sem ég hef verið að vinna að ung- ir strákar labba oft inn kokhraustir með sitt verslunarskólapróf og krefjast þess að fá kannski 350 þúsund á mánuði án þess að blikna. Og þegar maður spyr þá hvaða menntun eða reynsla búi að baki þessum kröfum þá er það algjört aukaatriði. Það er bara sjálfstraustið sem gildir. Ég sé það vissulega sem kost að hafa sjálfs- traust - en þarf ekki að vera einhver inni- stæða? Helena: Strákar hafa þessa tilhneig- ingu eins og einnig má sjá á tölum um nýstofnuð fyrirtæki. Hinn dæmigerði frumkvöðull hefur yfirleitt ekki mikla menntun en hefur þor og áræði og er nánast alltaf karlmaður. Það er algjör undantekning að konur sem hafa ekki mikið á bak við sig ákveði að skella sér í atvinnurekstur. Ásgerður En svo kemur kannski kona að sækja um starfið á eftir unga strákn- um. Hún er með tvær mastersgráður en er samt hógværðin uppmáluð. Hún veit hvað hún getur og kann og er að sækja um starf þar sem hún telur að þekking hennar nýtist. Þetta er allt annað viðhorf. Daníel. Eruð þið að segja að starfs- frami karlmanna sé hraðari innan fyrir- tækja en þeir eiga skilið, að þeir komist kannski lengra en þeir geta? Það gæti skýrt það að þeir væru ósáttir í vinnunni, því það versta sem starfsmaður getur lent í er að vera í aðstæðum sem hann ræður ekki við. Þú þarft alltaf að reyna að verja vígið sem stendur á brauðfótum. Hafa konur meiri sveigjanleika? Daníel En ef við Iftum aðeins á hug- takið starfsánægja. Einn af þeim ákvörð- einkunn en karlar. Þrátt fyrir það voru þær miklu óánægðari með sína einkunn en strákarnir. Ég fór að velta fyrir mér hvað það væri í fari kvenna sem gerði það að verkum að þær séu óánægðar þrátt fyrir að þær stæðu sig vel. Er það einhver fullkomnunarárátta? Er gott aldrei nóg? Eða er sjálfsmynd kvenna miklu lakari en karla, eða eru karlar með yfirhafna sjálfsmynd sem á sér enga stoð í raunveruleikanum? Magnús Geir Þórðarson Asgerður Jóhannsdóttir Daníel Þór Olafsson smFjmm ó

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.