Vera - 01.06.2001, Qupperneq 32
Viðhorfskönnun VR
Helena Jónsdóttir
Jóhanna Þróinsdóttir
Gísli Marteinn Baldursson
unarþáttum sem ráða miklu um hvort
fólk upplifir starfsánægju er álag eða
streita. Nú kemur fram í könnuninni að
konur upplifa meiri sveigjanleika í vinn-
unni, hafa t.d. meiri stjórn á vinnutíma
sínum. Getur ekki verið að þessi þáttur
skýri hærri starfsánægju hjá konum? Eru
karlmenn kannski stressaðri í vinnunni?
En svo þarf Ifka að skoða það að konur
telja sig hafa meiri sveigjanleika í starfi
en það er ekkert víst að þær hafi meiri
sveigjanleika.
Magnús Ég held að það sé allavega
miklu algengara núna að t.d. barnaupp-
eldi sé á ábyrgð beggja foreldra. Aftur á
móti er svo stutt síðan þetta byrjaði að
breytast að það er ennþá þannig að karl-
maður sem fer heim að sinna veiku barni
er álitinn hetja meðan það þykir sjálfsagt
að konan geri það.
Jóhanna Ég held að þróunin sé sú að
bæði karlar og konur muni sækjast eftir
sveigjanlegum vinnutíma. Ég held að
mynstur minna.r kynslóðar - t.d. að vinna
alla starfsævina hjá sama fyrirtæki - sé að
breytast. Það sé eiginlega ekkert hægt að
tala um kvenleg eða karlleg gildi f þvf
sambandi.
Helena Það getur líka verið að konur
hafi önnur viðmið þegar þær eru að svara.
Er kærastinn hluti af fjölskyldunni?
Jóhanna Það þarf líka að taka mið af þvf
að karlar hafa miklu fleiri flóttaleiðir heldur
en konur. Þeir eru í vinnunni, fara svo heim
og eiga frí og glápa á einhverja aðra berjast
og fá afskaplega mikið út úr því.
Císli. Það kemur mér samt á óvart að
karlar skynji síður góðan starfsanda á
vinnustöðum. Nú þekki ég til á nokkrum
vinnustöðum og á flestum stöðum eru á-
berandi karlaklúbbar sem fara saman f
hádeginu að spila fótbolta. Var ekkert
spurt um hvernig menn kunna við vinnu-
félaga sína? Mér finnst miklu algengara
að karlarnir haldi hópinn, fari í boltann
og kannski á pöbb eftir vinnu.
Magnús Þær vilja líka frekar vera með
fjölskyldunni...
Ásgerður Bíddu, er eiginmaðurinn
eða kærastinn ekki fjölskyldan?
Magnús |ú, en yfirleitt er það konan
sem reynir að halda manninum heima....
Þetta eru konurnar ekki alveg tilbúnar að
samþykkja.
Helena. Er þetta ekki bara einhver
mýta?
Gísli En er þetta ekki rétt? Mér finnst
það vera miklu algengara að karlar leiti út
fyrir heimilið heldur en konur.
Magnús |ú, ég sé þetta alls staðar í
kringum mig. Mér finnst eins og konur
séu heimakærari. Þær eru líka trygglynd-
ari og eru í nánara sambandi við vinkon-
ur sínar.
)óhanna |ú, ég held að það sé rétt að
konur hafi mun nánara samband sín á
milli en karlar. Ástæðan er eftil vill sú að
þær eru ekki jafn uppteknar af því að halda
á lofti einhverri ímynd eins og karlarnir. Ég
hef oft vorkennt körlum, sérstaklega af
minni kynslóð, því mér finnst þeir eiga svo
miklu færri leiðir til að leysa sín mál.
Magnús: |á, en strákar eru f alls konar
strákaklúbbum, í fótboltanum og fleiru. Á
þeim samkundum er ekkert verið að ræða
um tilfinningar, um líðan á vinnustað eða
sambandið við konuna. Ég þykist vita að
f saumaklúbbum bæjarins séu miklu op-
inskárri umræður um tilfinningar og innri
málefni heldur en hjá körlunum. Við vor-
um svolítið að ræða þetta þegar við sett-
um upp hádegisleikritið Rúm fyrir einn
en þar lenda tveir karlmenn á „trúnó".
Það sem er fyndið við það er að svona
trúnaðarsamtöl hjá körlum virðast oft
verða svo yfirborðsleg - þeir eru svo ó-
vanir að opna sig.
Gísli Þetta er eins og þrandarinn um
karlinn sem elskaði konuna sína svo mikið
að hann var að spá í að segja henni frá því.
Er „stafræna biliö" óbrúanlegt?
Hvað með stöðu eldri starfsmanna á
vinnumarkaðnum?
Magnús Það er rosaleg æskudýrkun í
heiminum í dag. Ég held að mörgum
eldri borgurum finnist lítið pláss fyrir þá í
nútímanum.
Helena Ég held að það geti verið
mjög erfitt fyrir fólk sem er komið eitt-
hvað yfir fimmtugt að fá vinnu, sérstak-
lega ef það hefur ekki mikla menntun, og
ekki síst fyrir konur.
ióhanna En er það eitthvað óeðlilegt?
Magnús Mér finnst það mjög sorglegt.
Jóhanna Ég held að fólki hafi alltaf
verið svolítið mismunað eftir aldri á
vinnumarkaðnum, líka hérna áður fyrr. Ég
veit þess t.d. dæmi að ein staða í lækna-
deild var auglýst með þeim aldursfyrir-
vörum að ákveðinn aðili gat ekki sótt um
stöðuna.
Helena Að ákveðnu leyti hefur þessi
32