Vera


Vera - 01.06.2001, Page 73

Vera - 01.06.2001, Page 73
Fyrsta styttan af konu Brjóstmynd af Björgu C. Þorlóksson ofhjúpuð 17. júní sl. var afhjúpuð brjóst- mynd af Björgu C. Þorláksson við Odda, hugvfsindahús Háskóla ís- lands og mun það vera fyrsta stytt- an af nafngreindri konu utan dyra í Reykjavík. Björg varð doktor frá Sorbonne fyrir 75 árum, 17. júní 1926, fyrst íslenskra kvenna. Dokt- orsritgerð hennar fjallar um lífeðl- isfræðilegan grundvöll eðlis- hvatanna og birtist útdráttur úr henni í Skírni árið 1928 undir heit- inu „Samþróun líkama og sálar". Björg var gift Sigfúsi Blöndal en skildi við hann árið 1925. Hún varði tuttugu árum ævi sinnar í vinnu við hina miklu íslensk- dönsku orðabók ásamt manni sín- um en hann var einn titlaður rit- stjóri orðabókarinnar og vinnu Bjargar aðeins getið með orðunum „min hustru og hovedmedar- bejder." Björg bar réttindi kynsystra sinna fyrir brjósti og skrifaði grein- ar um kvenréttindamál, t.d. birtist greinin Barnsmœður eftir hana í Skírni 1907. Þar fjallar hún um réttindaleysi einstæðra mæðra og deilir hart á það að feður skuli ekki þurfa að bera ábyrgð á börnum sínum sem fæðast utan hjóna- bands. Konur sem fæddu börn sín við þær aðstæður voru dæmdar af samfélaginu en feðurnirvoru sýkn- aðir af almenningsálitinu. Björg hvetur til þess f greininni að feður verði gerðir ábyrgir fyrir börnum sínum og deilir á löggjöfina sem f gildi var. Þýðing Bjargar á ritinu Hjóna- ástir (1928) eftir Marie Stopie er einnig mikilvægur skerfur til kven- réttindamála á íslandi en þar er fjallað um takmarkanir barneigna og getnaðarvarnir og er líklega í fyrsta sinn sem slíkt er gert opin- berlega á íslandi. Auk þessa skrif- aði Björg greinar um samúðina, um kenningar Sigmunds Freud, um dauðann, um samþróun Ifk- ama og sálar o.fl. Bækur hennar og þýðingar fjalla m.a. um mataræði og þjóðþrif, um svefn og drauma og um menntamál kvenna. Einnig skrifað hún leikrit og Ijóð og þýddi erlend skáldverk. Björg lést af völdum brjóstakrabbameins árið 1934, sextug að aldri. Styttan af Björgu var reist að tilstuðlan áhugahóps um að halda á loft minningu hennar. í hópnum sitja fulltrúar frá Félagi íslenskra háskólakvenna, Kvenréttindafélagi íslands, Vísindafélagi íslendinga og fulltrúar ættingja Bjargar. tLnr.'.nrlHMH MERKIMIÐIIUN Á TÖLVUMMI GETUR SKIPT MALI ^ en það sem er í kassanum [m<l(fOK _ , er qrunnurinn. V iCanonl ----------------------- V, V_____/ Góður skjár kórónar sköpunarverkið Sgnius lutlin Artmedia skjáir fá lof fagtímarita. fcágnius Genius er einn stærsti framleiðandi aukahluta. Genius framleiðir inntaksbúnað fyrir tölvur, meðal annars mýs, netkort, teikniborð, myndlesarar o.fl. Windows Win 100 Award ABIT móðurborðin eru að mati sérfræðinga ein þau bestu I dag. HUGVER Betri vara - betra verð Vitastígur 12 • Sími 562 0707 • www.hugver.is

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.