Vera - 01.06.2002, Side 9
Þaer eru miklar stuðpíur stelpurnar í hljóm-
sveitinni Rokkslæðunni sem er glænýtt
kvennaband sem rokkar nánast um hverja
helgi á börum í Reykjavík og hefur líka á
stefnuskránni að ferðast um landið. Þær hafa
þegar verið bókaðar í Neskaupstað í sumar og
eru til í að ferðast hvert á land sem er til að
rokka upp stemningu.
Meðlimirnir eru ekki ókunnugar hljómsveitabrans-
anum - þrjár þeirra hafa áður verið í kvennahljóm-
sveitum og spila allar á gítar, þær Kidda rokk sem
var í Bellatrix og Ótukt, Kristín Eysteins sem einnig
var í Ótukt og hefur líka gefið út sólódisk og Gréta
Sigurjónsdóttir sem er elst í bransanum, var í þeirri
frægu hljómsveit Dúkkulisunum og hefur líka gefið
út sólódisk. Yngst í hópnum er slagverksleikarinn
Arndís Hreiðarsdóttir.
>,Við spilum mest gömul hetjurokkslög eftir
nljómsveitir eins og Gun's and Roses, ACDC, Kiss
°'fk, einnig Eurovision lög og íslensk stuðlög sem
eru orðin klassísk, t.d. Ég er á leiðinnni, Traustur
vinur og lögin sem Ótukt tók á Stelpurokksdisknum,
Eg á mig sjálf og Áfram stelpur, þau eru alltaf vinsæl.
Rokkslæður í verðlaun
Það má segja að við séum stelpur að gera strákahluti
' við fílum okkur eins og alvörurokkara, verðum
grófir töffarar á sviðinu og ekki minnkar stemningin
þegar grúppíurnar skrækja og veina. Það hefur
myndast talsverður hópur aðdáenda sem mætir á öll
gigg og þær sem sýna mest tilþrif fá rokkslæðu í lok
kvöldsins. Rokkslæðan er hönnuð í Skaparanum og
afhent með viðhöfn þeim áhorfanda sem sleppir sér
a glæsilegastan hátt í rokkið. Við höfum líka afhent
tvaer heiðurs-rokkslæður - aðra fékk Ingibjörg Sólrún
a kosningahátíðinni á Hótel íslandi og hina aðal-
mkkkerling íslands, Andrea Jónsdóttir. Það er frá-
f>ært að fylgjast með því hvaða áhrif rokkið getur haft
a konur. Stundum verður allt brjálað og strákarnir
verða hissa á því hve mikill kraftur getur brotist
fram. Konur hafa svipt sér úr að ofan og kastað sér á
okkur í hrifningarvímu. Þá líður okkur eins og sönn-
um rokkhetjum.
Verða á bílpalli á Gay Pride
Við tökum þátt í Gay Pride í ágúst, verðum á bílpalli
sem keyrir niður Laugaveginn. Vonandi láta grúppí-
urnar sig ekki vanta, þær mega hanga á pallinum og
láta í ljós hrifningu sína. Við vitum svo ekki hvað
tekur við í haust. Kannski tökum við þá annan kúrs,
förum að semja sjálfar eða eitthvað, það er ekki að
vita hvað svona stuð getur staðið lengi."
Fyrir utan rokkið hafa þessar hressu konur ýmis-
legt fyrir stafni. Kristín
Konur hafa svipt sér úr
Eysteins er nýkomin
heim úr fjögurra ára
námi í dramatúrgíu í
Danmörku og hefur
þegar fengið vinnu við
leikhúsin. Hún var að-
stoðarleikstjóri í Jóni
Oddi og Jóni Bjarna í
Þjóðleikhúsinu og hef-
ur einnig unnið með
Hafnarfjarðarleikhús-
inu. Hún er nú dramatúrg við nýtt kvennaleikrit ,
Beyglur með öllu, sem sett verður upp í Iðnó í haust
og fjallar um konur og líf þeirra. Kidda rokk vinnur
við auglýsingaframleiðslu, Gréta er kjötiðnaðarmað-
ur í Nóatúni við Hringbraut og Arndís er á tón-
menntabraut við Kennaraháskólann. Sannar rokk-
hetjur sem kýla upp stuðið í stelpunum.
EÞ
að ofan og kastað sér á
okkur í hrifningarvímu.
Þá líður okkur eins og
sönnum rokkhetjum