Vera - 01.06.2002, Síða 11
skoðanabræðra eða hvoru tveggja. Mér finnst líka mjög
mikilvægt að eyða allri ómálefnanlegri gagnrýni um kon-
ur í pólitík. Einhvern tíman í miðri kosningabaráttunni
stóð ég sjálfa mig að því að verja Ingibjörgu Sólrúnu þeg-
ar ég heyrði sagt um hana að hún væri bara „dæmigerð
kona með ávísanahefti". Þetta ásamt svo mörgu öðru eru
dæmi um það sem við konur getum breytt sjálfar.
Réttindi karlmanna
Annað málefni sem brennur mjög mikið á mér eru rétt-
mdi feðra til að umgangast og ala upp börnin sín en það
eru ekki nema rétt rúm 20 ár síðan að þeir töldust ekki
eiga neinn rótt til umgengni við börnin sín nerna þeir
væru giftir barnsmóðurinni. Mér finnst stundum eins og
réttindi karlmanna gleymist í jafnréttisumræðunni en ég
tel afar mikilvægt að við konur sem erum að berjast yfrir
jafnrétti látum karlmennina skilja að þeir hafi líka mikilla
hagsmuna að gæta. Það gerum við með því að tala líka um
réttindi karla gagnvart börnum sínum og heimili og með
því að breyta aðeins um áherslur í umræðunni um ofbeldi
gagnvart konum. Þetta er ekki bara spurning um að kon-
ur berjist gegn þeim körlum sem beita þær ofbeldi heldur
þurfa konur og karlar að berjast í sameiningu gegn þess-
um afstyrmum sem beita konur ofbeldi, hvort sem það er
líkamlegt eða kynferðislegt ofbeldi. Það örlar stundum á
því í umræðunni um þessi mál að allir karlmenn séu sett-
lr 1 þennan flokk afstyrma en það tel ég vera afar rangt og
ovænleg aðferð til að ná árangri.
Kynferðisafbrot
I sambandi við dóma í kynferðisafbrotamálum þá er það
uiín skoðun að þarna þurfi löggjafinn að grípa inn í.
Hæstiréttur er smám saman búinn að þyngja dómana en
su þróun gengur hægt og dómar í kynferðisafbrotamálum
eru langt frá því að vera í samræmi við aðra málaflokka,
eins og fíkniefnaafbrot. Þó ég sé ekki mikill talsmaður
þyngri dóma þá verður að ríkja samræmi þarna á milli og
e8 velti fyrir mér hvaða skilaboð við erum að senda út í
samfélagið með því að dæma mann í 12 ára fangelsi fyrir
mnflutning á e-töflum á meðan maður sem nauðgar konu
a svo hrottafenginn hátt að það er varla hægt að lesa dóm-
mn án þess að kúgast, fær þrisvar til fjórum sinnum lægri
dóm.
Afhverju Sjálfstæðisflokkurinn?
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á pólitík og þegar ég var í
5- bekk MR ákváðum ég og vinkona mín að taka viðtöl við
formenn allra ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna fyrir
skólablaðið og nota þannig tækifærið til að kynnast hug-
ntyndafræði hvers og eins flokks. Guðlaugur Þór, formað-
ur ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins, sá að þarna
voru á ferðinni tvær ungar stúlkur með brennandi áhuga
a Pólitík og lagði sig allan fram um að vinna okkur á sitt
hand. Hann bauð okkur til dæmis að koma á landsfund
hokksins til að kynnast betur stefnunni og hvernig þetta
8engur nú allt saman fyrir sig og ég hef verið í flokknum
S1ðan. Þetta var erfitt val enda kem ég úr frekar vinstri
S1nnaðri fjölskyldu. Þessi grunnhugmynd um að einstak-
lingarnir eigi að fá að skapa sér sitt líf sjálfir, svo lengi
Sem þeir hafa sömu lækifæri, róði úrslitum. Hún samrým-
Þessi grunnhugmynd um að
einstaklingarnir eigi að fá að
skapa sér sitt líf sjálfir, svo
lengi sem þeir hafa sömu
tækifæri, réði úrslitum.
ist minni lífsskoðun og þess vegna lít ég til dæmis á það
sem algjört grundvallaratriði að allir á Islandi njóti sömu
tækifæra til menntunar. Frelsið er einskis virði ef fólkið
hefur ekki sömu tækifæri til að skapa sér líf sitt sjálft.
í kosningabaráttunni var flokkurinn gagnrýndur
harkalega fyrir kvennahátíðina svokölluðu og
heimasíðuna xxxd.is. Hvað finnst þér um þessa
gagnrýni?
Þetta var að vissu leyti makleg gagnrýni enda held ég að
mér sé óhætt að segja að um klúður hafi verið að ræða.
Vegna samskiptaleysis í undirbúningi frótti ég til dæmis
ekkert af þessu fyrr en deginum áður. Ég mætti ekki á
kvennahátíðina enda var ég að taka þátt í kosningabar-
áttu, ekki tískusýningu og mætti því frekar á kosninga-
fund. Flestar ungu konurnar í flokknum höfðu takmark-
aðan áhuga á þessu kvöldi en þess má hinsvegar geta að
auglýsingin var ekki í samræmi við það hvernig kvöldið
hafði verið hugsað, Inga Jóna Þórðadóttir átti til dæmis
upphaflega að flytja pólitíska ræðu þarna. Hvað varðar
heimasíðuna þá var hún sett upp án nokkurra tengsla við
flokkinn eða Valhöll og óg veit ekki einu sinni ennþá
hverjir stóðu þar að verki en þeir sem sáu um að stjórna
kosningabaráttunni létu loka þessari síðu.
Hvernig er að vera ung kona í Sjálfstæðisflokknum?
Það er gaman enda tekur flokkurinn ákaflega vel á rnóti
ungum konum. Þær segja mér það konurnar sem hafa ver-
ið þarna lengur en ég og voru til dæmis í Sjálfstæðum
konum, að flokkurinn hafi tekið stakkaskiptum á síðast-
liðnum 10 árum enda fer konum sífjölgandi innan hans.
Ég hef ekki orðið vör við mismunun af neinu tagi og ekki
rekist á neitt glerþak, allavega enn sem komið er. Þangað
til það gerist ætla ég heldur ekki að skemma fyrir sjálfri
mér með því að vera að búast við einhverju glerþaki. Ég
finn ekki alveg minn stað í Heimdalli þar sem mikil frjáls-
hyggjusjónarmið eru ráðandi, sem mér finnst ekki sam-
ræmast jafnréttishugsjóninni eða mínum pólitísku skoð-
unum en ég finn alveg rninn stað innan flokksins. Það að
hafa verið boðið 9. sæti á lista flokksins til borgarstjórnar-
kosninga var alveg gríðarlega gott tækifæri sem ég greip
og ætla að reyna að gera hið besta úr, bæði fyrir mig og
borgarbúa. Pólitíkin á örugglega alltaf eftir að verða part-
ur af lífi mínu en hins vegar reikna óg ekki með að ég
muni gera hana að ævistarfi. Nú stefni óg bara á að klára
eitt það mikilvægasta og skemmtilegasta í lífi mínu, það
er að segja lögfræðina og svo ætla ég mér í framhaldsnám
í þjóðarrétti innan fárra ára. Hitt verður tíminn svo bara
að leiða í ljós.
11