Vera


Vera - 01.06.2002, Page 12

Vera - 01.06.2002, Page 12
vera mér finnst__________________ Kristín ólafsdóttir félagsráðgjafi 12 gott ad vera komin á midjan aldur Mér finnst gott að vera komin á miðjan aldur. Þegar óg var telpa hafði ég þá trú að mið- aldra fólk væri orðið útbrunnið og lifði aðallega til þess að fylgjast með lífi barna sinna og sjá hvernig þeim farnaðist. I dag er ég sjálf orðin mið- aldra og sé enga samsvörun í því sem ég áður trúði um miðaldra fólk. Miðaldra fólk er í dag að fást við að sleppa hendinni af börnum sínum og fylgjast með því að þau verði sjálf- stæðir einstaklingar og jafnframt eru foreldrar þeirra eða tengdaforeldrar að verða ósjálfstæðari. Þegar við verðum miðaldra erum við flest búin að framkvæma það sem við ætluðum okkur. Mennta okkur, eignast eigið húsnæði, maka, börn og fá drauma- starfið. Mjög er misjafnt hvort draum- arnir hafa ræst eða í hvaða röð þetta hefur verið framkvæmt og jafnvel hefur það allt gerst á sama tíma. En þetta eru flestir að fást við á aldrinum 20-40 ára. Kvennabaráttan skilaði auknu hlutfalli kvenna á vinnumarkaðinn án þess að þær treystu mökum sínum til heimilisstarfa til jafns við þær sjálfar. Utkoman varð því tvær vinnuvaktir á dag hjá konum, sú íyrri var atvinnan og sú seinni var heimil- ið og börnin. Hvað gera svo þessar konur sem hafa vanist tvöföldu vinnuálagi þegar lítið fer að gera á seinni vaktinni? Um fimmtugt eru flestir komnir með „tóm hreiður", þ.e.a.s. börnin eru farin að heiman. Hér er tilvalinn tími fyrir miðaldur- skreppuna. Þá er komið að því að lit- ið er yfir farinn veg og kannað hvern- ig draumarnir hafa ræst, hvort þær væntingar sem við gerðum hafa orðið eins og við óskuðum. Hvernig getum við nýtt okkur í hag þennan nýja frí- tíma sem áður helgaðist af umönnun fjölskyldu og heimilis. Eru störfin sem við vinnum draumastörfin? A þessum tímapunkti myndast svigrúm til þess að gefa meiri gaum að sjálfum sér og hvað maður raun- verulega vill og er að sækjast eftir. Kreppan felur nefnilega einnig í sér upphaf að einhverju nýju. Hvað sjálfa mig varðar komst ég að þeirri niður- stöðu eftir mína miðaldurskreppu að ég myndi verða biturt gamalmenni ef ég gæfi mér ekki tækifæri til að starfa við það sem óg hefði ánægju af, þar sem starfsæfin um miðjan aldur er aðeins hálfnuð. Þau störf sem ég hafði stundað fram að því voru frekar fengin fyrir tilviljun en að ég væri sjálf að sækjast eftir þeim vegna á- huga. Eftir að hafa farið í áhugasviðs- könnun var rykið dustað af 29 ára gamalli stúdentshúfu og lagt í fjög- urra ára háskólanám sem skilaði lög- giltu starfsheiti. Spennandi var að sjá hvernig greindin var eftir allan þennan tíma. Jú við erum seinni þeg- ar við erum orðin miðaldra og við erum farin að gleyma - sérstaklega mannanöfnum, en við eigum mikinn reynsluforða úr lífi og starfi og getum notfært okkur það. Við erum ekki eins óþolinmóð og við vorum og við erum umburðarlyndari við okkur sjálf og aðra. Til þess að gera há- skólanámið kleift skipti ég um starf og fór að starfa þar sem vinnutíminn hentaði náminu. Námið var ekki auðvelt, þar sem miklar kröfur voru gerðar til nemenda, en það var á- kveðin ögrun og gaf vissulega góða tilfinningu þegar áfanga var náð. Eg er sannfærð um það að við get- um flest sem okkur langar nógu mik- ið til að gera. Viljinn er oft allt sem þarf. Við erum vissulega búin að ljúka mörgu í lífinu um miðjan aldur, en við skulum forðast myndun tóma- rúms í lífinu þegar komið er að tómu hreiðri hjá okkur. Oft er sagt að hvert tímaskeið hafi sinn sjarma og þetta skeið gefur okkur frelsi frá mörguni þeim kvöðum sem við höfum haft fram að þessu. Reynum að njóta þess okkur sjálfum í hag og ekki að syrgja liðna tíð. Ég skora á Birnu Berndsen, verkefnis- stjóra hjá Congress Beykjavík, til jiess aö skrifa næstu grein. Aukin ökuréttindi Kennsla til allra ökuréttinda. • • Bifhjólapróf og almennt ökupróf (B.réttindi). a OKU /fV ?KOI,INN Einnig kennsla fyrir ensku og taílenskumælandi fólk ! W/IMJODD Kennsla á leigu- vöru og hópbifreið og vörubifreið með eftirvagn. Þarabakka 3, 109 Reykjavík Sími: 567 0300 Hægt að hefja nám alla miðvikudaga! E-mail: mjodd@bilprof.is Frábærir kennarar og góðir kennslubílar. Aukið við atvinnumöguleikana. Hringið eða komið og leitið upplýsinga.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.