Vera - 01.06.2002, Síða 12
vera
mér finnst__________________
Kristín ólafsdóttir félagsráðgjafi
12
gott ad vera komin
á midjan aldur
Mér finnst gott að vera komin
á miðjan aldur. Þegar óg var
telpa hafði ég þá trú að mið-
aldra fólk væri orðið útbrunnið og
lifði aðallega til þess að fylgjast með
lífi barna sinna og sjá hvernig þeim
farnaðist. I dag er ég sjálf orðin mið-
aldra og sé enga samsvörun í því sem
ég áður trúði um miðaldra fólk.
Miðaldra fólk er í dag að fást við
að sleppa hendinni af börnum sínum
og fylgjast með því að þau verði sjálf-
stæðir einstaklingar og jafnframt eru
foreldrar þeirra eða tengdaforeldrar
að verða ósjálfstæðari. Þegar við
verðum miðaldra erum við flest búin
að framkvæma það sem við ætluðum
okkur. Mennta okkur, eignast eigið
húsnæði, maka, börn og fá drauma-
starfið. Mjög er misjafnt hvort draum-
arnir hafa ræst eða í hvaða röð þetta
hefur verið framkvæmt og jafnvel
hefur það allt gerst á sama tíma. En
þetta eru flestir að fást við á aldrinum
20-40 ára.
Kvennabaráttan skilaði auknu
hlutfalli kvenna á vinnumarkaðinn
án þess að þær treystu mökum sínum
til heimilisstarfa til jafns við þær
sjálfar. Utkoman varð því tvær
vinnuvaktir á dag hjá konum, sú íyrri
var atvinnan og sú seinni var heimil-
ið og börnin. Hvað gera svo þessar
konur sem hafa vanist tvöföldu
vinnuálagi þegar lítið fer að gera á
seinni vaktinni? Um fimmtugt eru
flestir komnir með „tóm hreiður",
þ.e.a.s. börnin eru farin að heiman.
Hér er tilvalinn tími fyrir miðaldur-
skreppuna. Þá er komið að því að lit-
ið er yfir farinn veg og kannað hvern-
ig draumarnir hafa ræst, hvort þær
væntingar sem við gerðum hafa orðið
eins og við óskuðum. Hvernig getum
við nýtt okkur í hag þennan nýja frí-
tíma sem áður helgaðist af umönnun
fjölskyldu og heimilis. Eru störfin
sem við vinnum draumastörfin?
A þessum tímapunkti myndast
svigrúm til þess að gefa meiri gaum
að sjálfum sér og hvað maður raun-
verulega vill og er að sækjast eftir.
Kreppan felur nefnilega einnig í sér
upphaf að einhverju nýju. Hvað sjálfa
mig varðar komst ég að þeirri niður-
stöðu eftir mína miðaldurskreppu að
ég myndi verða biturt gamalmenni ef
ég gæfi mér ekki tækifæri til að starfa
við það sem óg hefði ánægju af, þar
sem starfsæfin um miðjan aldur er
aðeins hálfnuð. Þau störf sem ég
hafði stundað fram að því voru frekar
fengin fyrir tilviljun en að ég væri
sjálf að sækjast eftir þeim vegna á-
huga. Eftir að hafa farið í áhugasviðs-
könnun var rykið dustað af 29 ára
gamalli stúdentshúfu og lagt í fjög-
urra ára háskólanám sem skilaði lög-
giltu starfsheiti. Spennandi var að sjá
hvernig greindin var eftir allan
þennan tíma. Jú við erum seinni þeg-
ar við erum orðin miðaldra og við
erum farin að gleyma - sérstaklega
mannanöfnum, en við eigum mikinn
reynsluforða úr lífi og starfi og getum
notfært okkur það. Við erum ekki
eins óþolinmóð og við vorum og við
erum umburðarlyndari við okkur
sjálf og aðra. Til þess að gera há-
skólanámið kleift skipti ég um starf
og fór að starfa þar sem vinnutíminn
hentaði náminu. Námið var ekki
auðvelt, þar sem miklar kröfur voru
gerðar til nemenda, en það var á-
kveðin ögrun og gaf vissulega góða
tilfinningu þegar áfanga var náð.
Eg er sannfærð um það að við get-
um flest sem okkur langar nógu mik-
ið til að gera. Viljinn er oft allt sem
þarf. Við erum vissulega búin að
ljúka mörgu í lífinu um miðjan aldur,
en við skulum forðast myndun tóma-
rúms í lífinu þegar komið er að tómu
hreiðri hjá okkur. Oft er sagt að hvert
tímaskeið hafi sinn sjarma og þetta
skeið gefur okkur frelsi frá mörguni
þeim kvöðum sem við höfum haft
fram að þessu. Reynum að njóta þess
okkur sjálfum í hag og ekki að syrgja
liðna tíð.
Ég skora á Birnu Berndsen, verkefnis-
stjóra hjá Congress Beykjavík, til jiess
aö skrifa næstu grein.
Aukin ökuréttindi
Kennsla til allra ökuréttinda.
• • Bifhjólapróf og almennt ökupróf (B.réttindi).
a OKU /fV ?KOI,INN Einnig kennsla fyrir ensku og taílenskumælandi fólk !
W/IMJODD Kennsla á leigu- vöru og hópbifreið og vörubifreið með eftirvagn.
Þarabakka 3, 109 Reykjavík
Sími: 567 0300 Hægt að hefja nám alla miðvikudaga!
E-mail: mjodd@bilprof.is Frábærir kennarar og góðir kennslubílar. Aukið við atvinnumöguleikana. Hringið eða komið og leitið upplýsinga.