Vera


Vera - 01.06.2002, Side 15

Vera - 01.06.2002, Side 15
ÉG HELD AD ÞAD SÉ AÐ MÖRGU LEYTI SIUJÖLL MÁLGUIU HJÁ KVEIUIUAHREYFIIUGUIUIUI AD BENDA Á AD FEÐRAVELDIÐ SKAÐI KARLMENN LÍKA Mynd: Þórdís það byrjar. Mér finnst nauðsynlegur áfangi að konur séu ráðherrar, þó þær sem nú eru í ríkisstjórn standi sig ekki vel. En það er í lagi, því konur eiga að hafa jafnan rétt á við karla til að vera lélegir stjórnmála- menn. Ójöfnuðurinn í atvinnulífinu er hins vegar svo mikill að eingöngu það að berja í brestina verður nægt verkefni á næstu árum. HALTU KJAFTI OG VERTU SÆT Á áttunda áratugnum börðust kvenréttindakonur gegn fegurðarsamkeppnum með góðum árangri. Þær bentu réttilega á að keppnir af þessu tagi snúist ekki um annað en að ungar konur sýni fram á að þær séu vænleg konuefni, kunni að halda kjafti og vera sætar. Síðan fór umræðan um þessar keppnir út af sporinu, markaðsmenn fengu fegurðardrottningar til að kynna íslenskan fisk á alþjóðlegum vettvangi. Það átti að auka sölumöguleika hans verulega ef sýnt væri fram á að fiskneysla gerði konur fallegar, bros- mildar og auðsveipar. Fegurðarsamkeppnir urðu þannig að markaðstæki til að auka hagvöxt og fram- leiðni, auk þess sem að þær fengu þjóðlegan tilgang: Að kynna íslenskar afurðir erlendis. Allt tengist þetta að sjálfsögðu uppgangi nýfrjáls- hyggjunnar. Allt er söluvara og ef úreltar hugmyndir um konur sem sýningargripi „selja“ erlendis þá hljó- ta þær að vera af hinu góða. Hingað til hefur kven- réttindahreyfingin ekki náð vopnum sínum gegn þessum nauðhyggjurökum markaðssinna, enda er það erfitt ef fallist er á þau að öðru leyti. MÚRINN.IS Múrinn er ekki femínískt vefrit, þó við höfurn jafn- réttissinnaða afstöðu. Við boðum hana misoft. Kannski vanrækjum við hana miðað við hvað við gætum gert. Það er svo margt annað sem brennur á okkur. Þegar við fórum af stað kom fyrir að við vorum gagnrýndir íýrir að vera ekki með stelpu í ritnefnd. Sú gagnrýni á kannski að sumu leyli rétt á sér, en að sumu leyti á hún það ekki. Femin.is er ekki meira jafnróttisafl heldur en Múrinn eingöngu fyrir að hafa fleiri konur í ritstjórn. EIGA KYIMJAKVÓTAR RÉTT Á SÉR? Ég hef starfað í flokki með kynjakvóta og í flokki þar sem ekki var talið þörf fyrir slíkan kvóta. í Alþýðubandalaginu var kynjakvóti, líkt og nú er í Samfylkingunni. Þar þurfti sjaldan að beita kynja- kvótanum ]jví að menn vissu af honum og studdu því konur í kosningum. í Vinstrihreyfingunni-grænu framboði er ekki talin þörf á slíkum kvóta. Þar vona menn að nú sé staðan orðin þannig að þess þurfi ekki. Ástæðan fyrir slíkum kvótum er einfaldlega sú að það er eitthvað að þegar ekki er jafnt hlutfall kynjan- na í áhrifastöðum. Þá eru ekki hæfustu einstaklin- garnir valdir til áhrifa, því að þeir eru ekki allir kari- rnenn. Þegar kerfi er hannað þannig að konur gefa sig ekki að því, þá þarf að athuga hvað er að, hvort sem það er þátttaka í umræðuþáttum eða stjórn- málaflokkum. Spurningin verður að vera sú, hvað er það sem veldur því að það þyrfti að hafa kvóta. Ef menn nálgast hlutina þannig eru þeir einhverju nær í að bæta misréttið, hitt er afneitun. Stelpur eru alltof fáar meðal ungliða stjórn- málaflokkanna. Eitthvað er því ekki nógu hvetjandi fyrir þær og þarf að vinna í því. Ungar konur sem gefa sig í stjórnmál eiga líka á hættu að vera settar í öll embætti, gleyptar með húð og hári. Það eru kannski forréttindi að vera karl í stjórnmálahreyfin- gu og geta verið þar án þess að vera píndur í fram- boð. Það eru nógu margir karlar um hituna. Það er verkefni fyrir pólitískt uppeldi næstu kynslóða að breyta forsendunum þannig að stelpur vilji taka þátt og geti gert það á sömu forsendum og strákarnir. MISRÉTTI OG FORRÉTTINDI Oll kúgunartæki bitna á þorra fólks. Ég held að það só að mörgu leyti snjöll nálgun hjá kvennahreyfing- unni að benda á að feðraveldið skaði karlmenn líka. Þá virkja þær karlmennina. En þótt það sé sjálfsagt að reyna að eignast bandamenn, þá held ég að karl- menn muni aldrei bera uppi kvennabaráttuna. Vinstrimenn eru ekki alltaf jafnréttissinnar á öllum sviðum, þeir einblína stundum á stéttakúgun heirna fýrir og gleynia til dæmis kúgun ríkra þjóða á fátækum. Sú hreyfing er öflugust sem gerir sér grein fyrir að misrétti hegðar sér ailtaf eins. Ég sé mikil tengsl milli þess að berjast gegn misrétti þjóðfélagshópa og gegn kynjamisrétti. Mín forréttindi eru meiri en svo að ég liafi eingöngu forréttindi fram yfir konur. Það eru vissu- lega forréttindi að vera karlmaður en það eru líka forróttindi að tilheyra ríkri þjóð, þar sem menntun og félagsleg þjónusta eru á háu stigi. Við Islendingar lilheyrum hinum lánsömu 10% jarðarbúa og íslen- skir karlmenn hinum lánsömu 5%. Slíkt lán við fæðingu leggur fólki skyldur á herðar. Uppgangur sérliyggjunnar hefur hins vegar snúið þessu í að menn hlakka yfir heppni sinni. Og jafnvel er litið á þessa heppni sem sjálfsagðan rétt. Það er ábyrgðar- leysi senr fyrr eða síðar mun korna mönnurn í koll. Múrinn - vefril um þjóðmál, pólitík og menningu - er gefinn út af Málfundafélagi úngra róttæklínga (M.Ú.R.). http://www.murinn.is 15

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.